Þrír umsækjendur hnífjafnir í hæfismati um stöðu seðlabankastjóra

AR.140629527.jpg
Auglýsing

Sam­kvæmt umsögn ­nefndar sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra skip­aði í lok júní, til að leggja mat á hæfi umsækj­enda um stöðu seðla­banka­stjóra, eru Frið­rik Már Bald­urs­son, Ragnar Árna­son og Már Guð­munds­son hæf­astir umsækj­enda til að gegna stöð­unni. Kjarn­inn hefur umsögn nefnd­ar­innar undir hönd­um.

Við mat á hæfni umsækj­enda var lagt fyrir nefnd­ina að hafa til hlið­sjón­ar; mennt­un, starfs­fer­il, reynslu og þekk­ingu á fjár­mála­starf­semi og efna­hags- og pen­inga­mál­um, stjórn­un­ar­hæfi­leika og loks hæfni í mann­legum sam­skipt­um. Nefndin mat hvern umsækj­enda þannig að hann var ýmist mjög vel hæf­ur, vel hæf­ur, hæfur eða ekki hæfur í hverjum þætti fyrir sig.

Mjótt á mun­unum



Sam­kvæmt lögum skal seðla­banka­stjóri hafa lokið háskóla­prófi í hag­fræði eða tengdum grein­um. Fjögur umsækj­enda höfðu auk þessa lokið dokt­ors­prófi og voru metin mjög vel hæf; þau Ásgeir Brynjar Torfa­son, Frið­rik Már Bald­urs­son, Lilja Mós­es­dóttir og Ragnar Árna­son. Nefndin mat sömu­leiðis Má Guð­munds­son og Þor­stein Þor­geirs­son mjög vel hæfa til að gegna stöðu seðla­banka­stjóra, en þeir hafa lagt stund á dokt­ors­nám.

Með hlið­sjón af starfs­ferli umsækj­enda mat nefndin Frið­rik Má Bald­urs­son, Lilju Mós­es­dótt­ur, Má Guð­munds­son, Ragnar Árna­son, Yngva Örn Krist­ins­son og Þor­steinn Þor­geirs­son mjög vel hæf, en Ásgeir Brynjar Torfa­son var met­inn vel hæf­ur.

Auglýsing

Í lögum um hæfi seðla­banka­stjóra er kveðið á um að hann skuli búa yfir víð­tækri reynslu og þekk­ingu á fjár­mála­starf­semi og efna­hags- og pen­inga­mál­um. Í umsögn nefnd­ar­innar má greina að hún hafi átt í nokkrum vand­ræðum með að gera upp á milli umsækj­enda hvað þetta varð­ar, þar sem hvorki er að finna í grein­ar­gerð með laga­frum­varp­inu eða nefnd­ar­á­liti meiri­hluta við­skipta­nefnd­ar, sem lagði til breyt­ingar á 0rða­lagi ákvæð­is­ins í með­förum þings­ins, leið­bein­ingar um hvernig meta eigi þessa reynslu og þekk­ingu eða til hvaða atriða eigi sér­stak­lega að horfa. Nefndin kaus því að líta sér­stak­lega til reynslu umsækj­enda af störfum við stjórn pen­inga­mála, og til starfa á fjár­magns­mark­aði og rann­sókn­ar­starfa, einkum á sviði pen­inga­mála.

Með hlið­sjón af ofan­greindu mat hæf­is­nefndin þá Frið­rik Má Bald­urs­son, Má Guð­munds­son og Ragnar Árna­son mjög vel hæfa í stöðu seðla­banka­stjóra. Lilja Mós­es­dótt­ir, Yngvi Örn Krist­ins­son og Þor­steinn Þor­geirs­son voru metin vel hæf, og Ásgeir Brynjar Torfa­son hæf­ur.

Hæf­is­nefndin gerði ekki grein­ar­mun á umsækj­endum út frá stjórn­un­ar­hæfi­leikum eða hæfni þeirra í mann­legum sam­skipt­um.

Þrír umsækj­endur hnífjafnir



Sam­kvæmt útreikn­ingi Kjarn­ans eru þeir Frið­rik Már Bald­urs­son, Már Guð­munds­son og Ragnar Árna­son hnífjafnir í kapp­hlaup­inu um seðla­banka­stjóra­stöð­una, ef hæfi þeirra er miðað út frá stiga­gjöf. Þeir hlutu allir tólf stig, Lilja Mós­es­dóttir og Þor­steinn Þor­geirs­son fengu ell­efu stig, Yngvi Örn Krist­ins­son tíu og Ásgeir Brynjar Torfa­son rak lest­ina með níu stig.

Í nið­ur­stöðu hæf­is­nefnd­ar­innar má greina hvar helst er gert upp á milli þre­menn­ing­anna: "Frið­rik Már og Ragnar hafa báðir lokið gunn og fram­halds­námi við háskóla auk dokt­ors­prófs í greinum sem krafa er gerð um (sam­kvæmt lög­um, innsk. blaða­manns). Már hefur sömu­leiðis lokið grunn- og fram­halds­námi við háskóla sem full­nægir kröfum lag­anna og jafn­framt lagt stund á dokt­or­smán um skeið. Allir búa þeir yfir víð­tækri reynslu og þekk­ingu á fjár­mála­starf­semi og efna­hag- og pen­inga­mál­um. Már sker sig þar úr hvað reynslu af banka­starf­semi varðar vegna starfa sinna í Seðla­banka Íslands um ára­bil, síð­ustu ár sem seðla­banka­stjóri, auk mik­il­vægrar reynslu sem hann öðl­að­ist í starfi sínu hjá Alþjóða­greiðslu­bank­anum í Basel í Sviss. Reynsla Frið­riks Más og Ragn­ars á þessu sviði er einna mest af fræð­i-, kennslu- og stjórn­un­ar­störfum við háskóla þar sem þeir hafa starfað um ára­bil. Frið­rik Már búi einnig að mikilvægri reynslu af sér­fræð­ings- og stjórn­un­ar­störfum hjá Þjóð­hags­stofnun og í stjórnun fyr­ir­tækja. Ragnar þekkir vel til starfa Seðla­banka Íslands eftir setu í banka­ráði hans und­an­farin fimm ár auk fleiri stjórn­un­ar­starfa."

Allir umsækj­endur um stöðu seðla­banka­stjóra hafa frest til mið­viku­dags­ins 23. júlí til að koma á fram­færi form­legum athuga­semdum er lúta að hæf­is­mati þeirra.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None