Klámsíður taka þátt í baráttunni um internetið

internet.jpg
Auglýsing

Tvær af mest sóttu klám­síðum inter­nets­ins, Porn­hub og Red­tu­be, hafa sleg­ist í hóp fjölda tækni­fyr­ir­tækja sem berj­ast gegn áformum banda­rískra fjar­skipta­fyr­ir­tækja um að hægja á þeim hluta nets­ins sem ekki borgar þeim fyrir aukin hraða. Fjöl­margar vef­síður ætla að hægja á upp­hleðslu á síðum sínum næst­kom­andi mið­viku­dag í mót­mæla­skyni við áformin og til að sýna vef­vöfr­urum við hverju þeir megi búast verði vilji fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna ofan á.

Vilja búa til­ „hrað­braut­ir"



Bar­áttan um inter­netið snýst um vilja stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tækja Banda­ríkj­anna: Comcast, Ver­izon, Time Warner Cable og At&t, til að hagn­ast á nýjan hátt á inter­net­inu. Hug­mynd þeirra gengur út á að láta vef­síður greiða sér­stök gjöld til sín til að fá aðgang að svoköll­uðum „hrað­braut­u­m“, sem tryggja hraða upp­hleðslu á síð­unum og betri streymi á efni þeirra. Þær vef­síður sem annað hvort vilja ekki eða geta ekki greitt fjar­skipt­ar­is­unum mun verða refsað með því að hægt verður á upp­hleðslu og streymi á síð­un­um, jafn­vel svo mikið að þær muni hrein­lega ekki virka. Vef­vafr­arar munu því hætta að fara inn á þær og síð­urnar í kjöl­farið deyja.

Áformin hafa vakið gríð­ar­lega athygli og reiði í Banda­ríkj­un­um, enda talið að þau séu grímu­laus árás á helstu grunn­stoð­ina fyrir því að inter­netið virkar svona vel, þar ríkir full­komið jafn­ræði. Hags­muna­sam­tök sem mynduð hafa verið gegn áformum fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna segja að net-hlut­leysi (e. net-­neutrality)  hverfi ef þau fái að verða að veru­leika og inter­net­ið, eins og við þekkjum það í dag, muni deyja í kjöl­far­ið. Vef­síður í eigu þeirra fyr­ir­tækja sem muni borga hátt verð fyrir aukin hraða muni ein­oka inter­net­ið, og þar með taka yfir dag­skrár­vald þess.

Amazon, Goog­le, Face­book og Net­flix á móti



Það eru ekki bara inter­net-not­endur í Banda­ríkj­unum sem þurfa að hafa áhyggjur af þess­ari þró­un. Talið er víst að fjar­skipta­fyr­ir­tæki víðar í heim­in­um, meðal ann­ars í Evr­ópu, fylgist vel með þróun mála þar til að kanna hvort stýr­ing á hraða upp­hleðslu vef­síðna geti orðið arð­bært við­skipta­módel í fram­tíð­inni fyrir þau líka.

Banda­rísku fjar­skipta­fyr­ir­tæk­in, sem eru gíf­ur­lega óvin­sæl á meðal neyt­enda þar í landi fyrir að veita slaka en dýra þjón­ustu, reka nú erindi um málið fyrir banda­rísku fjar­skipta­nefnd­inni, Federal Comm­un­ication Commission (FCC). Mörg stærstu tækni­fyr­ir­tæki heims­ins, til dæmis Amazon, Goog­le, Face­book og Net­fl­ix, hafa öll mót­mælt áformunum harð­lega.

Auglýsing

Klámið og bar­áttan um inter­netið



Þau taka þó ekki þátt í aðgerð­ar­átaki sem fjöl­mörg inter­net­fyr­ir­tæki hafa skráð sig til þátt­töku í og kall­ast „bar­áttan um inter­net­ið“ (e. battle for the net). Í næstu viku, nánar til­tekið mið­viku­dag­inn 10. sept­em­ber, stendur til að halda „Hægan dag“ (e. go-slow day). Vef­vafrar sem fara inn á þær síður sem taka þátt í átak­inu munu þá geta upp­lifað hvernig upp­á­halds­síð­urnar þeirra myndu virka ef hægt yrði á þeim í takt við áform banda­rísku fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna. Þeim verður síðan beint inn á síður þar sem þeir geta komið stuðn­ingi sínum við inter­net-hlut­leysi á fram­færi við ráða­menn í Banda­ríkj­un­um.

Á heima­síðu átaks­ins,  má sjá að risa­vef­síður á borð við Reddit, Mozilla og Etsy munu taka þátt í mót­mæl­un­um. Þeim barst síðan óvæntur liðs­auki í lok síð­ustu viku þegar tvær af stærstu klám­vef­síðum heims­ins, Porn­hub og Red­tu­be, bætt­ust í hóp þeirra sem ætla að taka þátt í bar­átt­unni á mið­viku­dag­inn. Í frétt the Guar­dian um málið er haft eftir tals­konu Porn­hub að síðan muni ekki hægja á streymi not­enda heldur verði risa­stórum skila­boðum komið fyrir á síð­unni sem allir not­endur muni þurfa að loka áður en þeir fá að svala upp­haf­legum til­gangi heim­sóknar sinnar á síð­urn­ar. Tals­konan segir von­ast til að ná til um 50 milljón manna á einum degi með þessum hætti.

Bæði Porn­hub og Red­tube eru í eigu fyr­ir­tækis sem heitir Mind­geek, sam­steypu sem er með höf­uð­stöðvar sinar í Lúx­em­borg og seg­ist vera einn af fimm stærstu band­vídd­ar-not­endum í heimi, með um 1,7 millj­arða heim­sóknir á mán­uði.

John Oli­ver tók net-hlut­leysi fyrir í þætti sínum í júní með eft­ir­minni­legum hætti. Hægt er að sjá þátt­inn hér að neð­an.

[em­bed]https://www.youtu­be.com/watch?v=fp­bOE­oRr­HyU[/em­bed]

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None