Virði Eimskips fallið um þrjá milljarða frá Kastljósumfjöllun

eimskip1.jpg
Auglýsing

Stjórn­endur Eim­skipa voru upp­lýstir um það í sumar að starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hefðu verið kærðir til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Eim­skip, sem er skráð á mark­að, til­kynnti þær upp­lýs­ingar ekki sér­stak­lega til Kaup­hallar Íslands.

Ólafur William Hand, upp­lýs­inga­full­trúi Eim­skips, segir að félagið hafi til­kynnt um það í sept­em­ber 2013 að það væri til rann­sóknar vegna meintra brota á 10. gg 11. grein sam­keppn­islaga og að það feli „í sér að þáttur ein­stak­linga hlýtur að koma til skoð­un­ar“. Félagið telur því ekki að það hafi þurft að til­kynna sér­stak­lega um rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara á mál­inu.

Gengi bréfa í Eim­skipum hefur fallið um 6,5 pró­sent frá því að Kast­ljós greindi frá meintum sam­keppn­is­brotum félags­ins og Sam­skipa. Alls hefur mark­aðsvirði Eim­skipa fallið um þrjá millj­arða króna á þremur dög­um.

Auglýsing

Verð­mót­andi upp­lýs­ingar



Í Morg­un­blað­inu í dag kemur fram að Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­kynnti Eim­skip og Sam­skip um það í sumar að að það hefði kært þau til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Þetta er haft eftir Páli Gunn­ari Páls­syni, for­stjóra Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ins í blað­inu. Því er ljóst að aðilar innan fyr­ir­tækj­anna tveggja hafa búið yfir upp­lýs­ingum um að meint sam­keppn­islaga­brot þeirra hafi verið kærð til sér­staks sak­sókn­ara um margra mán­aða skeið.

Samkeppniseftirlitið tilkynnti Eimskip um kæruna til sérstaks saksóknara í sumar. Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­kynnti Eim­skip um kæruna til sér­staks sak­sókn­ara í sum­ar.

Eim­skip er skráð á markað og upp­lýs­ingar um mögu­leg brot sem kærð hafi verið til rann­sókn­aremb­ættis geta verið mjög verð­mót­andi fyrir gengi bréfa í félag­inu. Við lokun mark­aða á þriðju­dag, nokkrum klukku­stundum áður en Kast­ljós sagði frá meintum brotum Eim­skipa og Sam­skipa sem eru til rann­sókn­ar, var gengi bréfa 232 krónur á hlut. Í dag er gengið 217 krónur á hlut.

­Gengið hefur því fallið um 6,5 pró­sent frá því að upp­lýs­ingar um rann­sókn­irnar voru opin­ber­aðar í fjöl­miðl­um. Mark­aðsvirði Eim­skips hefur lækkað sam­tals um þrjá millj­arða króna á síð­ustu þremur dögum

Gengið hefur því fallið um 6,5 pró­sent frá því að upp­lýs­ingar um rann­sókn­irnar voru opin­ber­aðar í fjöl­miðl­um. Mark­aðsvirði Eim­skips hefur lækkað sam­tals um þrjá millj­arða króna á síð­ustu þremur dög­um, eða um einn millj­arð króna á dag. Gengi bréfa í Eim­skip hefur ein­ungis einu sinni áður verið jafn lágt og það er nú. Það var 12.des­em­ber 2012.

Ber að til­kynna um grun á leka á inn­herj­a­upp­lýs­ingum



Eim­skip til­kynnti samt sem áður ekki um að starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins væru til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara í sumar þegar for­svars­menn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sögðu stjórn­endum félags­ins frá því að svo væri.

Í til­kynn­ingu frá Eim­skip, sem félagið sendi frá sér í gær, kemur fram að því beri laga­leg skylda til að til­kynna þar til bærum yfir­völdum ef grunur leiki á að inn­herj­a­upp­lýs­ingum hafi verið miðlað á ólög­mætan hátt. Eim­skip hafi því sent Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og Kaup­höll Íslands ábend­ingu um mögu­leg lög­brot nú, í kjöl­far umfjöll­unar Kast­ljóss. Engin við­brögð hafi borist það­an, að sögn upp­lýs­inga­full­trúa Eim­skipa.

Lekar rann­sak­aðir



Kaup­höll Íslands hefur sett hluta­bréf Eim­skips á athug­un­ar­lista vegna máls­ins. Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurn til hennar um hvort Kaup­höllin væri að rann­saka hvort þau gögn sem Kast­ljós greindi frá á þriðju­dag væru inn­herj­a­upp­lýs­ingar og hvort grunur sé um að ein­hverjir aðilar á mark­aði, sem taki þátt í hluta­bréfa­við­skipt­um, hafi haft upp­lýs­ing­arnar undir hönd­um.

Í svari Bald­urs Thor­laci­us, for­stöðu­manns eft­ir­lits­sviðs Kaup­hall­ar­inn­ar, segir að hún geti ekki að jafn­aði tjáð sig um ein­stök eft­ir­lits­mál sem eru í skoð­un. Almennt verk­lag sé þó með þeim hætti að í hvert sinn sem áður óbirtar upp­lýs­ingar koma fram um útgef­anda í fjöl­miðlum er m.a. lagt mat á það hvort þær gætu talist verð­mót­andi fyrir þá fjár­mála­gern­inga útgef­anda sem eru í við­skiptum í Kaup­höll­inn­i.“

Ef grunur sé um að upp­lýs­ing­arnar sem um ræðir gætu talist inn­herj­a­upp­lýs­ingar þá ber Kaup­höll­inni að vísa slíkum málum til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til frek­ari skoð­un­ar.

Ef grunur sé um að upp­lýs­ing­arnar sem um ræðir gætu talist inn­herj­a­upp­lýs­ingar þá ber Kaup­höll­inni að vísa slíkum málum til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til frek­ari skoð­un­ar.  Í svari Bald­urs seg­ir: „Ef grunur vaknar um að verð­mót­andi upp­lýs­ingum eða inn­herj­a­upp­lýs­ingum hafi verið lekið áður en þær eru birtar opin­ber­lega er aflað upp­lýs­inga um aðila að við­skiptum á því tíma­bili sem lek­inn gæti náð til og við­skiptin greind með hlið­sjón af máls­að­stæð­um. Fer það eftir aðstæðum og eðli mála hvort sú grein­ing fari fyrst fram innan Kaup­hall­ar­innar eða hvort Fjár­mála­eft­ir­litið fari með rann­sókn máls­ins frá upp­hafi.“

FME vill ekk­ert tjá sig um málið



Kjarn­inn beindi sömu fyr­ir­spurn og Kaup­höllin fékk til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Í svar Ólafar Aðal­steins­dótt­ur, aðstoð­ar­manns for­stjóra eft­ir­lits­ins, segir að það taki allar ábend­ingar til skoð­unar og auk þess sem eft­ir­litið taki mál til skoð­unar að eigin frum­kvæði ef til­efni er til. „Fjár­mála­eft­ir­litið getur hins vegar ekki veitt upp­lýs­ingar um ein­stök mál, þar með talið upp­lýs­ingar um hvort mál eru til rann­sóknar eða ekki.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None