Hrólfur hafnar því að Framsókn hafi viljað komast yfir DV

15003216880-ce1a14ed47-z.jpg
Auglýsing

Hrólfur Ölv­is­son, fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafnar því að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi sóst eftir því að eign­ast hlut í DV. Kjarn­inn hafði það eftir  Ólafi M. Magn­ús­syni, fram­kvæmda­stjóra mjólk­ur­bús­ins Kú og fyrrum stjórn­ar­for­manni DV,  að Hrólfur  hafi þrí­vegis fundað með sér undir því yfir­skini að menn tengdir Fram­sókn­ar­flokknum vildu kaupa DV. Þetta hafi gerst á þeim tíma sem Ólafur var stjórn­ar­for­maður DV, en hann sagði sig úr stjórn­inni í maí í fyrra. Kjarn­inn sendi Hrólfi fyr­ir­spurn um málið í gær­morgun sem hann svar­aði ekki, Þá svar­aði ekki á skrif­stofu Fram­sókn­ar­flokks­ins þegar hringt var þang­að.

Í yfir­lýs­ingu segir Hrólfur „Vegna frétta í Kjarn­anum og öðrum frétta­miðlum í dag um að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi sóst eftir því að eign­ast hlut í DV, skal upp­lýst að það er rangt. Hvorki ég fyrir hönd flokks­ins, né Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur farið þessa á leit og full­yrð­ingar Ólafs Magn­ús­sonar þar um eru rang­ar. Ólafur Magn­ús­son kom nokkrum sinnum á minn fund til að ræða ýmis per­sónu­leg mál­efni, bæði fjár­hags­leg og önn­ur. Aldrei var einu orði minnst á að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði hug á að eign­ast hlut í blað­inu, en Ólafur hafði orð á því að fyrra bragði að DV væri í fjár­þröng og þyrfti á auknu hlutafé að halda. 

Í frétt Kjarn­ans er eft­ir­far­andi haft orð­rétt eftir Ólafi: „Þegar ég var stjórn­ar­for­maður DV á sínum tíma þá kom fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins og hitti mig nokkrum sinnum og spurði hvort ég gæti beitt mér fyrir því að menn tengdir flokknum gætu kom­ist í að kaupa bréf í DV með ein­hverjum hætti. Það yrði auð­vitað ekki flokk­ur­inn sjálf­ur, heldur menn sem Kaup­fé­lag Skag­firð­inga myndi útvega fjár­muni til þess að gera það. Ég ljáði auð­vitað aldrei máls á þessu.“

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None