Útsýnið úr fílabeinsturninum

Auglýsing

„Ég skal við­ur­kenna það að ég hlakk­aði til þegar ég fór að sofa í gær­kvöldi og vakn­aði kátur í morg­un,“ sagði Sig­mundur Davíð í til­efni skulda­leið­rétt­ing­ar­dags­ins sem vænt­an­lega verður rauður dagur héðan í frá. Í myrkv­uðu húsi í Garða­bænum hefur kveðið við annan tón þar sem Bjarni Bene­dikts­son hefur staðið glas­eygður og grá­baug­aður fyrir framan bað­her­berg­is­speg­il­inn og sagt við sjálfan sig: „Sama hvað ger­ist á morgun þá ertu ennþá flottur strák­ur,“ og hnyklað svo brjóst­vöðvana á sér mátt­leys­is­lega því til ósann­færðar stað­fest­ing­ar.

Á meðan á ofæfða blaða­manna­fund­inum stóð hefur hann svo síend­ur­tekið þessa mön­tru í hausnum á sér á meðan hann horfði á vel vara­sal­vaðar varir for­sæt­isáð­herr­ans hreyfast hljóð­laust á milli þess sem hann velti fyrir sér hvort það væri ein­hver leið til þess að aftengja vit­und sína lík­am­anum á meðan á þessum skrípa­leik stóð.

­Samt stendur stærsti stjórn­mála­flokkur Íslands þög­ull í far­þega­sæt­inu og horfir á þennan gjörn­ing fara fram, hug­mynda­fræði­lega holur að innan eins og til­finn­inga­lega tómi feðra­veld­is­út­hverfa­pabb­inn sem hann er

Auglýsing

Hann hlýtur nefni­lega að skamm­ast sín. Alveg eins og allur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlýtur að skamm­ast sín. Eins glötuð og hún oft er þá er hann nefni­lega flokkur hug­mynda­fræði sem gengur út á frelsi – og jafn­framt ábyrgð ein­stak­lings­ins í sam­fé­lag­inu – sem sam­ræm­ist illa þeim gjörn­ingi að láta opin­beru fé rigna yfir fólk eins og rapp­ari á strípi­klúbbi í lélegu tón­list­ar­mynd­bandi frá tíunda ára­tugn­um. Samt stendur stærsti stjórn­mála­flokkur Íslands þög­ull í far­þega­sæt­inu og horfir á þennan gjörn­ing fara fram, hug­mynda­fræði­lega holur að innan eins og til­finn­inga­lega tómi feðra­veld­is­út­hverfa­pabb­inn sem hann er – hafði eitt sinn drauma og vænt­ingar um ein­hverja Ayn Randíska hetjupara­dís en horfir nú dauð­eygður á sjón­varpið til að deyfa í burtu magapín­una af öllu stolt­inu sem hann hefur þurft að gleypa. Ætli það sé ekki eins gott að hann megi ekki versla sér bjór í hverf­is­búð­inni því að ann­ars mundi hann lík­lega drekka sig í svefn á hverju kvöldi.

Sið­blindur fær sýn!



En það voru ekki bara titr­andi efri­varir í Hörp­u­nni heldur líka uppi í Efsta­leiti þar sem Gísli Freyr Val­dórs­son var leið­asti maður í sjón­varpi síðan for­stjóri Brit­ish Petr­o­leum baðst afsök­unar á því að hafa hellt 800 milljón lítrum af olíu niður í Mexík­óflóa. Auð­mjúkur baðst hann afsök­unar á því að hafa dregið þennan lyga­myllu­stein á eftir sér í tæpt ár og þarna loks­ins kom­inn á sið­ferð­is­lega enda­stöð. Ég hefði ekki trúað þessu hefði ég ekki séð þetta með mínum eigin augum – eins og að horfa á sjón­varps­út­send­ingu frá krafta­verka­stund með Benny Hinn – sið­blindur fær sýn!

Hann virt­ist reyndar ekki muna mörg atriði máls­ins, né eftir neinum sam­tölum við fólk og í raun gat hann ekki fært atburð­ar­rás­ina í nein orð – nema þá ein­földu stað­reynd að sökin var hans og sam­viskan leyfði honum ekki að halda þessum lyga­vef gang­andi.

Vinir hans og vel­gjörð­ar­menn úr Sjálf­stæð­is­flokknum kepp­ast svo um að senda honum heilla­óskir og koma í orð aðdáun sinni á þeim gríð­ar­lega per­sónu­lega styrk sem hann sýndi með því að ljúga stans­laust í tíu mán­uði, dylgja um hæl­is­leit­end­ur, benda á aldr­aðar skúr­inga­konur og játa svo þegar óyggj­andi sönn­un­ar­gögn lágu loks­ins fyrir.

Vinir hans og vel­gjörð­ar­menn úr Sjálf­stæð­is­flokknum kepp­ast svo um að senda honum heilla­óskir og koma í orð aðdáun sinni á þeim gríð­ar­lega per­sónu­lega styrk sem hann sýndi með því að ljúga stans­laust í tíu mán­uði, dylgja um hæl­is­leit­end­ur, benda á aldr­aðar skúr­inga­konur og játa svo þegar óyggj­andi sönn­un­ar­gögn lágu loks­ins fyr­ir. „Öll él stytti upp um síðir Gísli minn...You’ll be back!” peppar pól­stjarna íslenskrar sið­vit­und­ar, Tryggvi Þór Her­berts­son. Svo sendir Fíla­delf­íu­söfn­uð­ur­inn líka heilla­kveðj­ur.

Helen Kell­er-­málsvörnin



Þrátt fyrir allt þetta ber inn­an­rík­is­ráð­herra enn fyrir sig Helen Kell­er-­málsvörn­ina og vill meina að hvorki augu, eyru né önnur af hennar skyn­færum hafi verið virk síð­ast­liðið tæpa árið og að hún geti ekki borið ábyrgð á afglöpum ófag­legs og póli­tískt ráð­ins aðstoð­ar­manns. Hún mun sitja sem fast­ast þangað til hún verður borin út enda búin að segja af sér nógu mörgum emb­ætt­um.

En núna þegar þeir eru búnir að fram­kvæma stóra Ein­ars Mika­els-töfra­bragðið sitt og breyta 80 millj­örðum í til­gangs­laust kjaftæði þá hlýtur kæru­leys­is­lyfið fljót­lega að renna af fólki

Í þessu blóð­baði stendur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ein­hvern veg­inn eftir sem sig­ur­veg­ari í stríði henti­stefn­unnar gegn hug­mynda­fræði. En núna þegar þeir eru búnir að fram­kvæma stóra Ein­ars Mika­els-töfra­bragðið sitt og breyta 80 millj­örðum í til­gangs­laust kjaftæði þá hlýtur kæru­leys­is­lyfið fljót­lega að renna af fólki og það þarf að und­ir­búa næsta útspil til að halda sýn­ing­unni gang­andi í rúm­lega tvö ár til við­bót­ar. Nú þegar er byrjað að berja þann upp­stopp­aða hest sem er Reykja­vík­ur­flug­völlur og er þá lík­legt að næst verði gripið í gamla slag­ara eins og per­ver­tískan áhuga á skipu­lags­málum í Soga­mýr­inni, fjöl­menn­ing­ar­fó­bíu og sturl­aðan ótta við erlent græn­meti.

Ann­ars er ekk­ert nýtt í því að lygarar haldi áfram að ljúga. Það er samt ágætt að hafa í huga að stærsta ástæðan fyrir því að lygarnar kom­ast stundum upp er að frekir blaða­menn fá óþol­andi þrá­hyggju fyrir að afhjúpa þær. Hefðu þeir Jón Bjarki og Jóhann Páll ekki haldið áfram að hamra á þessu máli í nærri heilt ár þá hefði lík­lega eng­inn fellt nein tár í Efsta­leit­inu. Það er ekki sjálf­gefið á tímum þar sem Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu hefur varla við að snúa við dómum yfir íslenskum blaða­mönnum sem Hæsta­rétti fannst vera of hortug­ir. Stundum er ekki nóg að kveikja bara á kerti úti í glugga og vona að sið­lausu svik­ar­arnir skammist sín. Stundum er allt í lagi að gelta smá og rífa kjaft.

Góða fólkið hefur mælt.

Hanna Birna segðu af þér.

Park­li­fe!

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiKjaftæði
None