Arion banki leggur fram kauptilboð í 38 prósent hlut í Valitor

9954305546-46dc4c8134-k.jpg
Auglýsing

Arion banki hefur lagt fram kauptil­boð í 38 pró­sent hlut Lands­bank­ans í Valitor. Taki Lands­bank­inn til­boð­inu og selji hlut­inn þá mun Arion banki eiga 98,8 pró­sent hluta­fjár. Þetta kom fram í Kvöld­fréttum Stöðvar 2 í kvöld. 

Eins og greint var frá í frétta­skýr­ingu á vef Kjarn­ans í dag, þá er mikil upp­stokkun í gang­i á eign­ar­haldi greiðslu­korta­fyr­ir­tækja hér á landi, ekki síst þar sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur gert bönk­unum það ómögu­legt að starfa saman eða í sam­ráði á vett­vangi greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­anna.

Páll Gunnar Páls­son, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sagði í sam­tali við Kjarn­ann í dag, að sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi knúið á um breyt­ingar á eign­ar­haldi hjá greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­unum á und­an­förnum mán­uð­um, og sett sig upp á móti því að full­trúar frá bönk­unum öll­um, sem eru eig­endur greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­anna, geti átt með sér sam­starf eða sam­ráð á vett­vangi þess­ara fyr­ir­tækja, hvort sem það er í stjórn eða með annarri aðkomu.

Auglýsing

Þrjú stærstu greiðslu­korta­fyr­ir­tækin á Íslandi eru Valitor, Borgun og Kredit­kort. Stærstu eig­endur Borg­unar eru Íslands­banki með 62 pró­sent hlut og Eign­ar­halds­fé­lag Borg­unar slf. með 31,2 pró­sent hlut en félagið keypti hlut­inn af Lands­bank­anum á dög­unum fyrir tæp­lega 2,2 millj­arða króna. Aðrir eig­end­ur, með óveru­lega hluti hver, eru Arion banki, BPS ehf., Spari­sjóður Vest­manna­eyja, Spari­sjóður Norð­fjarðar og síðan á Borgun hf. lítið eitt af eigin hlut­um.

Valitor hf. er 99 pró­sent í eigu Valitor Hold­ing hf., sem eru í eigu banka að mestu leyti. Arion banki er stærsti eig­and­inn með 60,78 pró­sent hlut og Lands­bank­inn er með 38 pró­sent hlut. Spari­sjóðir og smærri fjár­mála­fyr­ir­tæki eiga síðan afgang­inn, tæp­lega tvö pró­sent.

Kredit­kort er síðan í eigu Íslands­banka að nær öllu leyti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None