Vegagerðin í hundruð milljóna viðskiptum við ættingja starfsmanna

14357160377-b10a3ec824-k-1.jpg
Auglýsing

Vega­gerðin hefur átt í við­skiptum við ætt­ingja starfs­manna, fyrrum starfs­menn og jafn­vel þá starfs­menn­ina sjálfa. Um er að ræða hund­ruð millj­óna króna við­skipti við bróður deild­ar­stjóra hjá Vega­gerð­inni, hund­ruð millj­óna króna verk­töku fyrrum starfs­manns Vega­gerð­ar­innar fyrir hana og kaup á ræst­ingum fyrir úti­búi Vega­gerð­ar­innar í Hafn­ar­firði af fyr­ir­tæki í eigu deild­ar­stjóra þess og eig­in­konu hans. Kast­ljós greindi frá þessu í ítar­legri umfjöllun í kvöld.

Mörg hund­ruð milljona við­skipti við bróður deild­ar­stjóra



Kast­ljós skoð­aði nokkur til­felli þar sem við­skipti Vega­gerð­ar­inn­ar, ein stærsta stofnun rík­is­ins, þóttu orka tví­mæl­is. Fyrsta til­fellið voru við­skipti við fyr­ir­tækin Sam­rás og Fjar­orku, sem Vega­gerðin hefur átt í við­skiptum við fyrir um 400 millj­ónir króna á und­an­förnum árum. Sam­rás fæst við verk­fræði­ráð­gjöf og Fjar­orka selur tækja­bún­að. Ekk­ert þeirra verka sem fyr­ir­tækin tvö unnu fyrir Vega­gerð­ina voru boðin út og sam­kvæmt Kast­ljósi eru engin eru til staðar sem benda til að óform­legar verðkann­anir liggi að baki  neinu þeirra.

vegagerð

Guð­laugur Jón­as­son er eini eig­andi Sam­rásar og á helm­ing í Fjar­orku. Hann er bróðir Nico­lai Jón­as­son­ar, deild­ar­stjóra þjón­ustu­deildar Vega­gerð­ar­inn­ar. Við­skipti Vega­gerð­ar­innar við Sam­rás og Fjar­orku hafa öll farið fram í gegnum deild­ina sem Nico­lai stýr­ir.

Auglýsing

Í Kast­ljósi kom fram að sam­kvæmt lögum um opin­ber inn­kaup eigi að bjóða út öll vöru­kaup yfir 11,5 millj­ónum króna. Sum við­skiptin við fyr­ir­tæki Guð­laugs eru langt yfir þeim mörk­um. Auk þess leggja stjórn­sýslu­lög og siða­reglur Vega­gerð­ar­innar bann við því að opin­berir starfs­menn komi að við­skiptum við ætt­ingja sína.

Fyrrum starfs­menn og eig­in­konur



Annað til­fellið snýr að kaupum Vega­gerð­ar­innar á verk­taka­þjón­ustu af fyr­ir­tæk­inu Hnjóti hf. Það fyr­ir­tæki var lengi í eigu Magn­úsar Guð­bjarts­son­ar, sem er fyrrum starfs­maður Vega­gerð­ar­inn­ar. Hann er ekki lengur skráður eig­andi Hnjóts en kemur fram sem tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins í sam­skiptum þess við Vega­gerð­ina. Í umfjöllun Kast­ljóss kom fram að Magnús og þrjú fyr­ir­tæki honum tengd, meðal ann­ars Hnjót­ur, hafi fengið alls 205 millj­ónir króna fyrir ýmis verk sem unnin voru að beiðni fyrrum sam­starfs­manna hans á und­an­förnum árum.

Þriðja til­fellið snýst um kaup úti­bús Vega­gerð­ar­innar í Hafn­ar­firði á ræst­ing­ar­þjón­ustu af fyr­ir­tæki í eigu Bjarna Stef­áns­sonar og eig­in­konu hans fyrir alls um tíu millj­ónir króna á und­an­förnum árum. Bjarni er deild­ar­stjóri úti­bús­ins.  Hann hafði sjálfur umsjón með kaupum á ræst­ing­ar­þjón­ust­unni og stýrði meðal ann­ars útboði á þjón­ust­unni þar sem mót­bjóð­andi sendi til­boð sitt meðal ann­ars beint á Bjarna.

Í Kast­ljósi sagði að sam­kvæmt gögnum sem það hefur undir hönd­unum um þessi til­felli sé „erfitt að sjá að við­skiptin sam­rým­ist þeim reglum sem Vega­gerðin hefur sjálf sett sér, auk þess sem eðli­legt er að spurt sé hvort þessi við­skipti, sem sam­tals nema á sjö­unda hund­rað millj­óna króna, sam­ræm­ist lög­um“.

Í við­tali við Kast­ljós sagði Vega­mála­stjóri að vel geti verið að lög hafi verið brotin í við­skipt­unum sem voru til umfjöll­unar og að fullt til­efni sé til að fara betur yfir þau.

Vega­gerðin hefur skipað starfs­hóp til að fara yfir við­skipti Vega­gerð­ar­innar við ofan­greinda aðila í kjöl­far við­tals­ins sem Kast­ljós tók við Vega­mála­stjóra . Við­skiptum ræst­inga­fyr­ir­tæk­is­ins sem Bjarni Stef­áns­son og eig­in­kona hans eiga við Vega­gerð­ina hefur verið hætt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None