Þessi færsla er úr eldra greinasafni Kjarnans og gæti þess vegna birst furðulega.

Sykur og sérfræðingar dýrari - Sveppir og sjónvörp ódýrari

verðbólgumynd.png
Auglýsing

Sykur og þjón­usta sér­fræði­lækna eru þeir tveir útgjalda­liðir sem hækk­uðu mest í verði á árinu 2014, sam­kvæmt verð­bólgu­mæl­ingum Hag­stofu Íslands. Verð á sykri hækk­aði um nærri 35% á tíma­bil­inu, sem nær frá des­em­ber 2013 til des­em­ber 2014, og þjón­usta sér­fræð­ing­anna hækk­aði um ríf­lega 20%. Á móti dug­legum hækk­unum ýmissa útgjalda­liða þá lækk­aði verð fjöl­margra vara og þjón­ustna á liðnu ári. Verðkannannir á „svepp­um, rót­ar­hnýði og lauk­um“ sýndu þannig fram á tæp­lega 20% verð­lækkun milli ára auk þess sem raf­tæki lækk­uðu tölu­vert í verði.

Í hverjum mán­uði reiknar hag­stofan breyt­ingar á vísi­tölu neyslu­verðs. Vísi­talan skipt­ist í tólf flokka, svo­kall­aðar und­ir­vísi­töl­ur, sem síðan skipt­ast aftur í und­ir­-und­ir­vísi­töl­ur. Sam­tals kannar Hag­stofan mán­að­ar­lega verð­breyt­ingar á um þriðja hund­ruð útgjalda­liða, allt frá kostn­aði við mat­ar­inn­kaup og ferða­lög til verð­breyt­inga hjá hár­greiðslu­stofum og heilsu­rækt­ar­stöðv­um. Dæmi um slíkar und­ir­-und­ir­vísi­tölur eru útgjalda­lið­irnir „Syk­ur“ og „Svepp­ir, rót­ar­hnýði og laukar“. Þessar mat­vörur eru hluti af mat­ar­körf­unni sem myndar und­ir­vísi­töl­una „Matur og drykkj­ar­vör­ur“.

Und­ir­vísi­tölur verð­bólg­unnar - Hækk­anir & lækk­anir 2014 |Create infograp­hics

Auglýsing

Á mynd­inni hér að ofan má sjá hvernig und­ir­vísi­töl­urnar tólf breytt­ust á árinu 2014. Með því að smella á „hlut­falls­leg skipt­ing“ er jafn­framt hægt að sjá vægi þess­ara liða í útreikn­ingi á vísi­tölu neyslu­verðs. Matur og drykkj­ar­vara lækk­uðu í verði um tæpt 1% en sú und­ir­vísi­tala myndar um 14,5% af vísi­tölu neyslu­verðs. Langstærsti liður end­an­legu vísi­töl­unnar er „Hús­næði, hiti og raf­magn“ sem á síð­ustu tólf mán­uðum hefur hækkað um 4,44%. Þessi útgjöld vega þungt, sam­tals um 28%.

Eins og mörgum er kunn­ugt þá er tólf mán­aða breyt­ing á vísi­tölu neyslu­verðs hin alræmda verð­bólga. Hún mæld­ist í des­em­ber 0,8%. Með öðrum orðum þá hefur verð­lag í land­inu, eins og það mælist í könn­unum Hag­stof­unn­ar, almennt hækkað um 0,8% á síð­ustu tólf mán­uð­um. Fara þarf allt aftur til árs­ins 1998 til þess að finna tíma­bil þar sem verð­bólgan fór undir 1%.

Inn­an­lands­flug dýr­ara – Utan­lands­flug ódýr­ara

Þegar und­ir­-und­ir­vísi­töl­urnar eru skoð­aðar nánar eftir hækk­unum og lækk­unum á tíma­bil­inu stilla nokkrir liðir tengdir heil­brigð­is­þjón­ustu sér ofar­lega á lista yfir mestu verð­hækk­an­irn­ar. Und­ir­vísi­talan „Heilsa“ hækk­aði um tæp 6% á árinu en nokkrar und­ir­-und­ir­vísi­tölur Heils­unnar hækk­uðu mik­ið, eins og sjá má á mynd­inni hér að neð­an. Þjón­usta sér­fræð­inga var 23,3% dýr­ari en hún var í des­em­ber 2013 og þjón­usta heim­il­is­lækna hækk­aði í verði um 19,5%.

Vörur og þjón­usta sem hækk­uðu mest á árinu 2014 |Create infograp­hics



Flug­far­gjöld inn­an­lands hækk­uðu á árinu um 7,5%. Á sama tíma lækk­uðu flug­far­gjöld til útlanda um 13,2%. Ein­ungis raf­tæki og fyrr­nefndir svepp­ir, rót­ar­hnýði og laukar lækk­uðu meira í verði á árinu sem leið. Sjón­vörp, útvörp og mynd­spil­arar lækk­uðu um 17,4% milli des­em­ber­mán­aða 2013 og 2014. Gera má ráð fyrir að þær lækk­anir hafi verið fram­kvæmdar í aðdrag­anda afnáms vöru­gjalda nú um ára­mótin en raf­tæki af ýmsu tagi eru áber­andi á list­anum yfir þær vörur og þjón­ustu sem lækk­uðu mest. Af þeim þrettán liðum sem lækk­uðu mest í verði þá voru fimm þeirra raf­tæki.

Vörur og þjón­usta sem lækk­uðu mest á árinu 2014 |Create infograp­hics

Kjarn­inn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vik­ur. Mark­mið­ið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönn­um! Fyrsti þátt­ur­inn er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 15. jan­ú­ar. Fylgstu með á Face­book-­síðu Ferð til fjár.

ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None