Dotcom er blankur, svanurinn hans var myrtur og konan stakk af með 17 ára ungling

h_50672025.000.jpg
Auglýsing

Hinn skraut­legi Kim Dotcom lifir nokkuð ævin­týra­legu lifi. En að und­an­förnu virð­ist allt ganga á aft­ur­fót­unum hjá stofn­anda nið­ur­hals­síðn­anna MEGA og Megaupload. Nýverið hætti PayPal að taka við greiðslum frá við­skipta­vinum MEGA sem gerir það að verkum að allt fjár­flæði til Dotcom vegna hennar var  stöðv­að. Aðgerðin kemur á vondum tíma fyrir Dotcom sem virð­ist vera orð­inn nokkuð félít­ill. Hann hefur að minnsta kosti biðlað til hæsta­réttar í Nýja Sjá­landi, þar sem hann býr um þessa mund­ir, um að aflétta fryst­ingu á eignum sínum sem metnar eru á um tólf milljón dala, um 1,6 millj­arða króna, svo hann geti borgað leigu, borgað lög­mönnum sínum og keypt í mat­inn. Eign­irnar voru frystar vegna mála sem rekin eru gegn Dotcom þar sem því er haldið fram að nið­ur­hals­síð­urnar hans séu ólög­leg­ar.

Sam­kvæmt frétt Business Insider eru pen­inga­vanda­mál ekki það eina sem Dotcom er að glíma við þessa dag­anna, því ein­hver myrti einn af svön­unum hans og konan hans, Mona Dotcom, stakk af með 17 ára strák sem hann hafði ráðið til að spila tölvu­leiki við fjöl­skyldu­með­limi.

 

Auglýsing


Svan­ur­inn myrtur

Und­an­farin ár hefur Dotcom búið á Nýja Sjá­landi, en banda­rísk stjórn­völd vilja mjög hafa hendur í hári þessa finnsk-þýska inter­net-frum­kvöðli. Hann sagði frá því í lok síð­asta árs að hann væri orð­inn félaus og ljóst að ákvörðun PayPal um að loka greiðslu­gátt­inni hans mun ein­ungis dýpka þá hít.

Ekki það að Dotcom hafi liðið skort und­an­farin ár. Hann leigir eitt íburð­ar­mesta hús sem fyr­ir­finnst í Nýja Sjá­landi og á lóð­inni hans búa meðal ann­ars svan­ir. Þeim fækk­aði reyndar um einn fyrir skemmstu, en Dotcom heldur því fram að einn svana hans hafi verið myrtur fyrr í þessum mán­uði.

Í kjöl­farið óskaði hann eftir nýju heim­ili fyrir maka hins myrta svans þar sem sá virð­ist hald­inn slæmu þung­lyndi og neitar að éta eftir ást­vina­miss­inn. Dotcom telur auk þess að svan­ur­inn sé ekki lengur öruggur þar sem hann býr nú eftir morðið á maka hans.



Stakk af með 17 ára ung­ling

Til að bæta gráu ofan á svart þá fór eig­in­kona Dotcom, og móðir tví­bura hans, frá honum seint á síð­asta ári. Hún stakk af með 17 ára dreng sem Dotcom hafði ráðið til að spila tölvu­leiki við fjöl­skyldu­með­limi. Miðað við við­brögð Dotcom á Twitter þá hefur brott­hlaup konu hans ekki farið neitt sér­stak­lega vel í hann, en þau berj­ast nú hat­ramm­lega fyrir dóm­stólum vegna eigna­skipta í kjöl­far skiln­að­ar­ins. Ef full­yrð­ingar Dotcom um blank­heit eru réttar er hins vegar ólík­legt að Mona geti átt von á miklum pen­ingum frá hon­um.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None