Eftir 50 milljarða tap skilar Skipti í fyrsta sinn hagnaði frá hruni

siminn.jpg
Auglýsing

Skipti, móð­ur­fé­lag Sím­ans og fleiri fyr­ir­tækja, hagn­að­ist um 3,3 millj­arða króna eftir skatta á síð­asta ári. Á tíma­bil­inu 2008 og til loka árs 2013 tap­aði félagið sam­tals 50 millj­örðum króna. Þetta er því í fyrsta sinn sem þetta stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins skilar hagn­aði síðan að efna­hags­hrunið átti sér stað á Íslandi haustið 2008.

Rekstr­ar­tekjur Skipta, sem eru að 99 pró­sent leyti sölu­tekj­ur, voru 30,3 millj­arðar króna í fyrra og juk­ust lít­il­lega á milli ára, eða um 1,3 pró­sent. Þær tekjur er þó langt frá því sem þær voru þegar best lét. Árið 2009 voru rekstr­ar­tekjur félags­ins til að mynda 40,3 millj­arðar króna, eða tíu millj­örðum króna hærri en í fyrra.

Ástæður þessa eru helst þær að fyr­ir­tæki sem tölu­verða veltu hafa verið seld út úr sam­stæð­unni. Á þessu tíma­bili hefur mark­aðs­hlut­deild Sím­ans á far­síma­mark­aði einnig dreg­ist umtals­vert sam­an.

Auglýsing

Stærstu eig­endur Skipta eru Arion banki (38,32 pró­sent) og íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Stefnt er að því að skrá felagið á markað í nán­ustu fram­tíð. Undir Skipti heyra Sím­inn, Skjár­inn, Míla, Sensa, Rad­íó­miðl­un, Staki og Talenta.

Tap und­an­far­inna ára vegna nið­ur­færslu við­skipta­vildar



Hið mikla tap sem hefur verið á rekstri Skipta und­an­farin ár er að stóru leyti til­komin vegna þess að við­skipta­vild félags­ins hefur verið skrúfuð niður um 33 millj­arða króna frá árs­lokum 2008. Á árinu 2013, sama ári og fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu Skipta lauk, bók­færði félagið til að mynda 17 millj­arða króna tap þrátt fyrir að hagn­aður fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta hefði verið 8,3 millj­arðar króna. Stærsta breytan í þeirri nið­ur­stöðu var nið­ur­færsla upp á við­skipta­vild upp á 14 millj­arða króna.

Orri Hauks­son, for­stjóri Skipta, sagði við Kjarn­ann í mars 2014 að þessi mikla við­skipta­vild hefði aðal­lega verið til­komin vegna einka­væð­ingar Sím­ans árið 2005. „Þá varð til stærð í bók­hald­inu vegna þess að félagið var keypt á yfir­verði og hún fékk nafnið við­skipta­vild. Hún óx síðan eitt­hvað aðeins vegna kaupa á öðrum félög­um“.

Ríkið græddi vel á sölu Sím­ans



Sala íslenska rík­is­ins á hlutafé sínu í Sím­anum sum­arið 2005 mun lík­lega fara í sögu­bæk­urnar sem ein bestu við­skipti sem fram­kvæmd hafa verið á Íslandi. Exista og við­skipta­legir með­reið­ar­sveinar þess áður stór­tæka fjár­fest­ing­ar­fé­lags, sem síðar maga­lenti stór­kost­lega, keyptu Sím­ann undir hatti félags sem fékk nafnið Skipti á upp­hæð sem í dag myndi vera um 140 millj­arðar króna.

Kaupin voru fjár­mögnuð með lánum og skuld­unum sem stofnað var til vegna þeirra var dembt aftur inn í rekst­ur­inn með því að sam­eina Skipti og Sím­ann í svoköll­uðum öfugum sam­runa. Vegna þess háa verð­miða sem greiddur var fyrir Sím­ann varð við­skipta­vild Skipta mjög há. Ofan af henni hefur þurft að vinda á und­an­förnum árum eftir að raun­veru­leik­inn tók við af sýnd­ar­veru­leika fyr­ir­hrunsár­anna.

Engin nið­ur­færsla varð á við­skipta­vild Skipta á árinu 2014 heldur stóð hún í stað. Svo virð­ist því sem að félagið sé búið að færa hana niður í takti við raun­veru­leik­ann sem það starfar í.

Rekst­ur­inn í jafn­vægi



Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna afkomu Skipta er haft eftir Orra að rekst­ur­inn hafi verið í ágætu jafn­vægi á árinu. „Tekjur juk­ust lít­il­lega og og EBITDA stendur í stað milli ára. Efna­hags­reikn­ingur félags­ins hefur gjör­breyst í kjöl­far end­ur­skipu­lagn­ingar og skilar fyr­ir­tækið nú hagn­aði í fyrsta sinn frá hruni. Hann nemur 3,3 millj­örðum króna. Fjár­fest­ingar á árinu námu 4,5 millj­örðum króna og eru þær mestu um ára­bil. Við lögðum áherslu á að halda áfram að skipu­leggja starf­sem­ina til fram­tíðar og und­ir­búa félagið fyrir skrán­ingu í kaup­höll. Til­kynnt var um sam­ein­ingu rekstrar Sím­ans og Skipta á árinu og sam­þykkti Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­ein­ing­una í árs­byrjun 2015. Þá hefur verið skerpt á upp­lýs­inga­tækn­inni með því að sam­eina UT starf­semi Sím­ans við Sensa.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None