Framtíðin nýr námslánasjóður - Lánar að hámarki 13 milljónir

14131793324_882160158e_z-1.jpg
Auglýsing

Fram­tíðin er nýr náms­lána­sjóður sem hóf göngu sína í dag og veitir háskóla­nemum bæði fram­færslu- og skóla­gjalda­lán. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Fram­tíð­inni. Fram­tíðin er fjár­mögnuð í gegnum skulda­bréfa­sjóði sem eru í stýr­ingu hjá fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu GAMMA. Að baki skulda­bréfa­sjóð­unum standa stofn­ana­fjár­festar eins og líf­eyr­is­sjóðir og trygg­inga­fé­lög, eigna­stýr­ingar og almennir fjár­fest­ar.

Hámarks­lán er þrettán millj­ón­ir, en lág­markið 500 þús­und, en og end­ur­greiðslu­tím­inn er tólf ár. Byrjað er að greiða lánin til baka einu ári eftir að námi er lok­ið.

Allir náms­menn sem ætla í háskóla­nám á Íslandi eða erlendis geta sótt um náms­lán hjá Fram­tíð­inni. Einnig er starfs­nám, end­ur­menntun og nám með vinnu á Íslandi láns­hæft, að því er fram kemur í til­kynn­ingu.

Auglýsing

Fram­tíðin mun bjóða upp á tvær teg­undir náms­lána, ann­ars vegar óverð­tryggð lán með breyti­legum vöxtum og hins vegar verð­tryggð lán með föstum vöxt­um. Sjóð­ur­inn áætlar að veita nokkur hund­ruð náms­mönnum lán á ári.

Vaxta­kjörin eru eft­ir­far­andi, sam­kvæmt því sem fram kemur á vef sjóðs­ins.









































Vextir Í námi Eftir náms­lok
Óverð­tryggðir breyti­legir vextir 9,75% 8,75%
Verð­tryggðir fastir vextir 7,45% 6,45%


Þetta eru sam­bæri­legir vextir og bjóð­ast við­skipta­vinum bank­anna til kaupa á bíl­um, en hámarks­end­ur­greiðslu­tími þeirra lána er sjö ár.

Náms­menn sem eru með lán hjá LÍN, sem lánar náms­mönnum verð­tryggt til lengri tíma með nið­ur­greiddum kjörum af rík­is­sjóði, geta einnig sótt um lán hjá Fram­tíð­inni. „Hér er um við­bót­ar­val­kost að ræða fyrir þá sem þurfa að fjár­magna kostn­að­ar­samt nám, til dæmis erlend­is, eða hafa hug á að mennta sig frekar eftir nokkur ár á vinnu­mark­aði eða með­fram vinn­u,“ segir í til­kynn­ingu frá sjóðn­um.

Hlíf Sturlu­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður Fram­tíð­ar­inn­ar, segir  að stofnun lána­sjóðs­ins fjölgi mögu­leikum náms­manna til að kosta nám sitt, hvort sem um er að ræða skjóla­gjöld eða hærri fram­færslu meðan á námi stend­ur. „Það er til hags­bóta fyrir ein­stak­ling­ana sjálfa að fjár­festa í menntun og um leið sam­fé­lagið allt enda eykst sam­keppn­is­hæfni Íslands með auk­inni mennt­un,“ segir hún í til­kynn­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None