Hjálpum í stað þess að bjarga

Gylfi Ólafsson
IMGP7221-1.jpg
Auglýsing

Hetju­sög­urnar sem ber­ast af varð­skipum Íslands á Mið­jarð­ar­hafi hafa tæp­lega farið fram hjá mörg­um. Land­helg­is­gæslan lætur enda ekki undir höfuð leggj­ast að setja af þessu fréttir inn á vef sinn sem frétta­miðlar taka upp með glöðu geði. Tæp­lega 200 manns var bjargað nú síð­ast af áhöfn­inni á Tý, en áður hefur Ægir komið að björgun 130 manns svo dæmi séu tek­in.

Áhafn­irnar sinna sínu starfi vænt­an­lega af alúð og fag­mennsku. Gott starf þeirra varpar hins­vegar ljósi á það hvernig Ísland stendur sig almennt í mót­töku og aðstoð við flótta­menn. Íslend­ingar taka við fáum flótta­mönn­um. Máls­með­ferð hæl­is­leit­enda og flótta­manna er hæg. End­ur­tekið er vísað til Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og flótta­fólk sent til baka til fyrsta við­komu­lands í Evr­ópu, þrátt fyrir að Ísland geti tekið við fólk­inu.

Hetju­dáðir fjár­magn­aðar af öðrum



Til að bíta höf­uðið af skömminni eru störf Land­helg­is­gæsl­unnar á Mið­jarð­ar­hafi ekki fjár­mögnuð af íslenska rík­inu. Þau eru fjár­mögnuð af Frontex , landamæra­stofnun Evr­ópu­sam­bands­ins. Verk­efnið í heild er svar Gæsl­unnar við offjár­fest­ingu í bún­aði og nið­ur­skurði í fjár­fram­lögum frá íslenska rík­inu. Með því að leigja út búnað og mann­afla er hjá því kom­ist að selja bún­að­inn áður en betur árar.

Fyrir utan það að bjarga fólki sem ræðst illa búið í sigl­ingu yfir Mið­jarð­ar­haf­ið, sinnir Land­helg­is­gæslan almennri landamæra­gæslu á haf­inu. Aukið eft­ir­lit eykur áhætt­una við að fara yfir haf­ið; bátar þurfa að vera minni til að kom­ast óséð­ir. Gæslan heldur landa­mærum Schen­gen-­svæð­is­ins lok­uðum og tryggir að fátækt fólk í þriðja heim­inum geti ekki brot­ist til betra lífs með aðstoð vest­rænna vel­ferð­ar­kerfa.

Auglýsing

Við eigum að hjálpa fólki áður en það afræður að eyða aleig­unni til að fá mögu­leika á að geta smyglað sér inn í Evrópu.

Flótta­fólkið sem bjargað er af skip­verjum Gæsl­unnar er að flýja slæmar aðstæður heima fyrir og freista þess að smygla sér til ann­arra landa. Hægt væri að minnka vand­ann á tvennan hátt; ann­ars vegar að bæta aðstæð­urnar heima fyrir og hins vegar að veita flótta­fólk­inu lög­legar leiðir til að kom­ast til landa með betri þjóð­fé­lags­að­stæð­ur.

Fréttir Gæsl­unnar eru eðli­lega fáorðar um það hvað tekur við hjá fólk­inu sem er bjarg­að. En dáðir Týs og Ægis minna á hið stærra vanda­mál. Þar er spurn­ingum ósvar­að.

Gætum gert annað og meira



Ís­land gæti sýnt mun meiri mynd­ar­skap þegar kemur að hinum verr stöddu í heim­in­um. Þannig er til dæmis auð­velt að auka fjár­magn til þró­un­ar­sam­vinnu, taka við fleiri hæl­is­leit­endum og flótta­mönn­um, eða aðstoða þær stofn­anir sem til dæmis berj­ast gegn sjúk­dómum sem auð­velt er að koma í veg fyr­ir.

Við eigum að hjálpa fólki áður en það afræður að eyða aleig­unni til að fá mögu­leika á að geta smyglað sér inn í Evr­ópu. Og ef við björgum fólki úr sjáv­ar­háska, eigum við að tryggja að lífið sem tekur við sé gott og ham­ingju­ríkt. Fyrir slíkt mann­úð­ar­starf eigum við ekki að taka greiðslu, heldur sinna á okkar eigin kostn­að.

Höf­undur er heilsu­hag­fræð­ing­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None