Kjarninn birtir úrskurð Persónuverndar í heild sinni

gisli_sigridur.jpg
Auglýsing

Eins og fram hefur komið má rekja til­urð skoð­unar Per­sónu­verndar á sam­skiptum Sig­ríðar Bjarkar Guð­jóns­dótt­ur, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, og Gísla Freys Val­dórs­son­ar, þáver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, til fréttar sem birt­ist í DV 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem greint var frá sam­skiptum tví­menn­ing­anna við árdaga leka­máls­ins svo­kall­aða.

Í frétt­inni var greint frá því að Sig­ríður Björk og Gísli Freyr hefðu talað tví­vegis saman í síma, dag­inn sem fyrstu frétt­irnar  um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos birt­ust í fjöl­miðl­um. Þá hefur Sig­ríður Björk við­ur­kennt að hafa sent Gísla Frey grein­ar­gerð um Tony Omos í tölvu­pósti, síðar þennan sama dag.

Sam­kvæmt úrskurði Per­sónu­verndar inni­hélt skjalið sem Sig­ríður Björk sendi Gísla Frey, upp­lýs­ingar um rann­sókn á saka­máli þar sem Tony Omos hafði stöðu grun­aðs manns. Þá hafði skjalið að geym upp­lýs­ingar um tengsl hans við aðra ein­stak­linga sem þar eru nafn­greind­ir, þar á meðal Evelyn Glory Jos­eph. Um var að ræða drög að skýrslu sem unnin er sam­kvæmt lögum um með­ferð saka­mála, en í slíkri skýrslu er getið ein­stakra rann­sókn­ar­að­gerða og nið­ur­stöðu þeirra. Skjalið sem Sig­ríður Björk sendi Gísla Frey var ódag­sett og óund­ir­rit­að.

Auglýsing
Í bréfi sem Sig­ríður Björk sendi Per­sónu­vernd þann 3. des­em­ber 2014 kveðst hún hafa verið í góðri trú og að hún hafi ekki haft ástæðu til að ætla annað en að aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra hafi óskað eftir gögn­unum í umboði ráð­herra. Í bréfi Sig­ríðar til Per­sónu­verndar seg­ir: „Ég hafði ekk­ert til­efni til að álykta, eða ætla, að ann­ar­legar ástæður gætu legið að baki beiðni aðstoð­ar­manns­ins um upp­lýs­ing­ar. Mér var kunn­ugt um að málið var til með­ferðar hjá ráðu­neyt­inu [...] Ég gekk út frá því að aðstoð­ar­maður ráð­herra væri hluti af þeim vinnu­hópi sem að mál­inu væri að vinna innan ráðu­neyt­is­ins og sendi honum þar af leið­andi grein­ar­gerð­ina.“




Sam­skipti um tölvu­póst­sam­skipti



Per­sónu­vernd óskaði eftir tölvu­póst­sam­skiptum Gísla Freys og Sig­ríðar Bjark­ar. Gísli Freyr svar­aði því til að hann hefði þau ekki undir hönd­um. Sig­ríður Björk svar­aði með bréfi þann 30. jan­úar síð­ast­lið­inn. Með því bréfi fylgdu upp­lýs­ingar um sam­skipti inn­an­húss hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum varð­andi skýrslu­drögin um Tony Omos og tölvu­póst­sam­skiptin við Gísla Freyr.

Í nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar segir hins vegar að þar hafi verið um að ræða „út­prentun af tölvu­bréfi lög­reglu­stjóra til hans frá 20. nóv­em­ber 2013, auð­kenndu sem „Trún­að­ar­mál“ í efn­is­línu en með svohljóð­andi texta í meg­in­máli: „Sent skv. umtali. Hefur ekki verið sýnt öðrum í þessu formi.“ Sama dag og þessi gögn bár­ust sendi fyrrum lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum Per­sónu­vernd tölvu­bréf sem hafði að geyma skjá­mynd af tengiliða­upp­lýs­ingum fyrir umræddan aðstoð­ar­mann, þar á með­al. net­fang, en af skjá­mynd­inni má sjá að þessar tengiliða­upp­lýs­ingar birt­ast í sam­hengi við fyrr­greint tölvu­bréf til aðstoð­ar­manns­ins. Í tölvu­bréf­inu sjálfu birt­ist ekki sjálft net­fangið heldur aðeins nafn hans, en í tengiliða­upp­lýs­ing­unum kemur fram að tölvu­bréfið hafi verið sent á vinnu­net­fang hans hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­in­u.“

Ekki vistað í mála­skrá



Sam­skipti Sig­ríðar Bjarkar við Gísla Frey voru ekki vistuð í mála­skrá­ar­kerfi lög­reg­unnar á Suð­ur­nesj­um. Þetta kom fram í bréfi frá lög­regl­unni þann 22. des­em­ber 2014. Þar segir einnig að „um­ræddum skýrslu­drögum hafi verið miðlað frá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum til aðstoð­ar­manns­ins eftir að skjali um til­greindan hæl­is­leit­anda hafði verið miðlað til fjöl­miðla án full­nægj­andi heim­ild­ar. Sé því ljóst að upp­lýs­ingar í því skjali hafi ekki verið sótar úr skýrslu­drög­un­um.“

„Fyrir liggur að Lög­reglan á Suð­ur­nesjum skráði ekki umrædda miðlun skýrslu­draga til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í mála­skrár­kerfi sitt. Þá liggur fyrir að ráðu­neytið skráði ekki í mála­skrá að því hefði borist þessi skýrslu­drög, né heldur að því hefði borist fyrr­nefnd fram­burð­ar­skýrsla frá Útlend­inga­stofn­un.“

Skýrslu­drögin ekki í mála­skrá ráðu­neytis



Skýrslu­drögin voru ekki á meðal þeirra gagna í mál sem var til með­ferðar í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu um Tony Omos. „Þegar af þeirri ástæðu getur umrædd miðlun skýrslu­drag­anna frá Lög­reg­unni á Suð­ur­nesjum til ráðu­neyt­is­ins ekki fallið undir fyrr­greindar heim­ildir til vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga í ljósi þess að nauð­syn hagi staðið til hennar í þágu stjórn­sýslu­máls. Þá liggur ekki fyrir að hún falli undir vinnslu­heim­ildir á öðr­um.

Í úrskurð­ar­orði seg­ir:

Miðlun Lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum á skýrslu­drögum með per­sónu­upp­lýs­ingum um Tony Omos, Evelyn Glory Jos­eph og fleiri ein­stak­linga til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hinn 20. nóv­em­ber 2013, sem og beiðni ráðu­neyt­is­ins þar að lút­andi, studd­ist ekki við við­hlít­andi heim­ild.

Skortur á skrán­ingu um miðlun drag­anna í mála­skrá lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum, sem og um öflun þeirra í mála­skrá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, fór í bága við kröfum um upp­lýs­inga­ör­yggi. Hið sama gildir um skort á skrán­ingu um mót­t­töku ráðu­neyt­is­ins hinn 20. nóv­em­ber 2013 á fram­burð­ar­skýrslu Tony Omos frá Útlend­inga­stofn­un.

Ekki var gætt við­un­andi öryggis við miðlun fyrr­nefndra skýrslu­draga til ráðu­neyt­is­ins frá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum og fyrr­nefndrar fram­burð­ar­skýrslu frá Útlend­inga­stofnun til ráðu­neyt­is­ins. 

Í sam­tali við Kjarn­ann segir Sig­ríður Björk að við­bragða sé að vænta frá henni vegna úrskurðar Per­sónu­vernd­ar.

Hægt er að lesa úrskurð Per­sónu­verndar hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None