Kristján Þór Júlíusson: "Það er margt á huldu í utanríkisráðuneytinu"

kristjan_thor_vidtal_frame_530.jpg
Auglýsing

Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra segir að eng­inn starfs­maður heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins hafi aðkomu að TISA-við­ræð­un­um, hann hafi ekk­ert heyrt um til­lögu um við­auka við samn­ing­inn sem í fólst að fella mark­aðsvæð­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu undir hann og að afstaða Íslands til þessa, sem var opin­beruð í frétt Kjarn­ans í gær, hafi ekki verið borin undir hann.

Þetta kom fram í svörum Krist­jáns Þórs við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­manns Vinstri grænna, í þing­inu í dag. Fyr­ir­spurn Katrínar byggði á frétt Kjarn­ans frá því í gær um að til­laga hafi verið lögð í TISA-við­ræðu­lotu í sept­em­ber sem í fólst að auka sam­keppn­i um heil­brigð­is­þjón­ustu á milli landa með því að mark­aðsvæða þjón­ust­una. Kjarn­inn birti gögn sem sýndu fram á þetta. Upp­lýs­inga­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sendi Kjarn­anum síðan póst í gær­kvöldi þar sem fram kom að Ísland telji til­lög­una ekki eiga heima í við­ræð­unum og taki ekki þátt í við­ræðum um að gera hana að við­auka við TISA-­samn­ing­inn.

Ísland er eitt þeirra 50 landa sem er aðili að TISA-við­ræð­un­um, sem eiga að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum milli landa.

Auglýsing

Svo mikil leynd að ráð­herrar mála­flokka vita ekk­ert



Katrín spurði Krist­ján hvort honum hafi verið kunn­ugt um til­lög­una og hver afstaða hans væri til henn­ar. Krist­ján sagð­ist fyrst hafa heyrt um hana í fréttum í gær og að eng­inn starfs­maður hans ráðu­neytis kæmi að við­ræð­un­um. Utan­rík­is­ráðu­neytið hafi síðan veitt þær upp­lýs­ingar að það telji að til­lagan eigi ekki heima í TISA-við­ræð­un­um.

Katrín kom þá aftur í pontu og sagð­ist telja það all nokkur tíð­indi ef heil­brigð­is­ráð­herra læsi um að til­laga sem þessi væri orðin hluti af samn­ings­við­ræð­unum og að utan­rík­is­ráðu­neytið hafi lýst yfir afstöðu sinni til máls­ins án þess að upp­lýsa Krist­ján.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, spurði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra út í TISA-viðræðurnar í dag. Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, spurði Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra út í TISA-við­ræð­urnar í dag.

Katrín sagði það und­ar­legt að Ísland tæki þátt í við­ræðum sem svo mikil leynd hvíldi yfir að ráð­herrar í rík­is­stjórn vissu ekki að verið væri að ræða þeirra mála­flokka. Auk þess fengi almenn­ingur í land­inu mjög litlar upp­lýs­ingar um við­ræð­urnar og utan­rík­is­ráðu­neytið hefði raunar lýst því yfir að leynd myndi hvíla yfir öllum upp­lýs­ingum þangað til að samn­ingur yrði und­ir­rit­að­ur. Hún spurði Krist­ján að lokum hvort hann væri sam­mála afstöðu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í mál­inu.

Krist­ján svar­aði fyr­ir­spurn­inni með því að segja: „Það er margt á huldu í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og utan­rík­is­mál­um. Það er alveg á hrein­u.“ Hann hafi hins vegar engar for­sendur til að tjá sig um eða taka afstöðu til máls sem hann þekki ekki "hæt­is­hót" til.

Telja ónýtta mögu­leika vera í mark­aðsvæð­ingu heil­brigð­ist­þjón­ustu



Sam­kvæmt til­lög­unni sem lögð var fram í TISA-við­ræðu­lot­unni í sept­em­ber eru miklir ónýttir mögu­leikar til að alþjóða­væða heil­brigð­is­þjón­ustu, aðal­lega vegna þess að heil­brigð­is­þjón­usta er að mestu fjár­mögnuð og veitt af ríkjum eða vel­ferð­ar­stofn­un­um. Það er því nán­ast ekk­ert aðdrátt­ar­afl fyrir erlenda sam­keppn­is­að­ila til að keppa um að veita hana vegna þess hversu lítið mark­aðsvætt umhverfi hennar er.

Það var ­samn­ings­nefnd Tyrk­lands sem lagð­i fram til­lög­una en hún var rædd í átt­undu við­ræðu­lotu TISA-við­ræðn­anna sem fór fram í Genf í sept­em­ber síð­ast­liðn­um. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum gögnum sem Kjarn­inn birtir í dag í sam­starfi við Associ­ated Whist­leblowing Press (AWP) og fjöl­miðla víðs­vegar um heim­inn. Gögn­unum var lekið til AWP sem hefur unnið að birt­ingu þeirra und­an­far­ið. Hægt er að nálg­ast gögnin í heild sinni hér.

Næsta við­ræðu­lota í TISA-við­ræð­un­um, sú tíunda, hefst í næstu viku.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None