Mjög sjaldgæft að fangar vilji hefja afplánun áður en þeir eru boðaðir

sigurdur_og_olafur.jpg
Auglýsing

Mjög sjald­gæft er að ein­stak­lingar leit­ist eftir því að hefja afplánun fang­els­is­dóma áður en þeir eru boð­aðir til afplán­un­ar. Þegar slíkar óskir ber­ast er allt reynt til að koma til móts við þær, segir Páll Win­kel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­un­ar.

DV greindi frá því fyrr í dag að Ólafur Ólafs­son, einn sak­born­ing­anna í Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða, hafi þegar óskað eftir því að hefja afplán­un. Hana hafa Ólafur haf­ið, líkt og aðrir fang­ar, í Hegn­ing­ar­hús­inu við Skóla­vörðu­stíg og hann hafi síðan verið færður í opna fang­elsið að Kvía­bryggju. Ólafur hlaut fjög­urra og hálfs árs dóm í Hæsta­rétti fyrr í þessum mán­uði.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hafa aðrir dóm­þolar í Al Than­i-­mál­inu ekki óskað eftir því að hefja afplánun og bíða því boð­unar til að hefja fang­els­is­vist sína. Menn­irnir fjórir sem hlutu dóma í því máli, sem að mati Hæsta­réttar var alvar­leg­asta efna­hags­brota­mál sem dæmt hefur verið í á Íslandi, hlutu fjög­urra til fimm og hálfs árs fang­els­is­dóma.

Auglýsing

Vilja bregð­ast skjótt við



Páll Win­kel seg­ist ekki geta tjáð sig um mál ein­stakra fanga. Stofn­unin sem hann stýri vinni ein­fald­lega innan þess ramma sem henni er mark­aður í lög­um. „Ef ein­stak­lingur óskar eftir því að kom­ast inn í afplán­un, þrátt fyrir langan boð­un­ar­lista, þá er leit­ast við að verða við því eins skjótt og hægt er. Það á jafnt við um ein­stak­linga sem eru að koma í fyrsta sinn til afplán­unar og menn sem eru að koma inn í tuttug­asta sinn.“

Páll segir að það sé hins vegar ákaf­lega sjald­gæft að ein­stak­lingar óski eftir því að hefja afplánun áður en þeir eru boð­aðir til henn­ar.

Samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun er samsetning fanga á Litla Hrauni svipuð og hún er í opnu fangelsum landsins. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Fang­els­is­mála­stofnun er sam­setn­ing fanga á Litla Hrauni svipuð og hún er í opnu fang­elsum lands­ins.

Fjöldi rýma í opnum fang­elsum á Íslandi hefur auk­ist mjög á und­an­förnum árum. Kvía­bryggja var stækkuð árið 2008 og rýmum þar þá fjölgað úr 14 í 22. Þegar Sogni var breytt í opið fang­elsi bætt­ust 20 rými við, og stundum eru fleiri fangar vistaðir á þessum tveimur stöðum en opin­ber rým­is­geta þeirra segir til um, enda boð­un­ar­listar mjög lang­ir.

Kjarn­inn greindi til að mynda frá því í októ­ber í fyrra að 475 manns biðu eftir því að hefja afplánun í íslenskum fang­els­um. Sá sem hafði beðið lengst hafði beðið í fimm ár.

Svipuð sam­setn­ing og á Litla Hrauni



Alls­konar fangar afplána í opnum fang­elsum­,ekki bara menn sem hafa verið dæmdir fyrir efna­hags­brot. Þar sitja líka ein­stak­lingar sem hafa hlotið þunga dóma en hafa unnið sig upp í rétt­indum á meðan að á afplánun stend­ur. Því eru vistaðir ein­stak­lingar á Kvía­bryggju sem hafa hlotið dóma fyrir mann­dráp, kyn­ferð­is­brot gagn­vart börn­um, stór­fellt fíkni­efna­smygl, síbrot osfr. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Fang­els­is­mála­stofnun er sam­setn­ing fanga í þessum tveimur opnu fang­elsum mjög svipuð og á Litla Hrauni.

Mikil breyt­ing verður í fang­els­is­málum þjóð­ar­innar undir lok þessa árs þegar nýtt fang­elsi á Hólms­heiði verður opn­að. Við það mun fang­els­is­rýmum fjölga um 30 og hægt verður að vinna á löngum biðlist­um. Sam­hliða stendur til að loka bæði Hegn­ing­ar­hús­inu, sem var tekið í notkun fyrir um 140 árum síðan og er á unda­þágu frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum vegna þess að það upp­fyllir ekki lág­marks­skil­yrði, og Fang­els­inu í Kópa­vogi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None