Sameiginlegur hagnaður bankanna þriggja frá hruni er 370 milljarðar

bankar_island.jpg
Auglýsing

Hagn­aður stóru við­skipta­bank­anna þriggja, Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka hefur verið mikið til umræðu síð­ustu daga. Sam­an­lagt tóku þeir inn um 80 millj­arða króna í hagnað á síð­asta ári. Hagn­aður þeirra þriggja frá hruni er um 370 millj­arðar króna.

Íslend­ingar eru tæp­lega 330 þús­und tals­ins. Ef hagn­aði bank­anna þriggja frá hruni yrði skipt niður á Íslend­inga myndi hver og einn þeirra fá rúm­lega 1,1 milljón króna í sinn hlut.

Rík­is­bank­inn tekur lang­mest inn



Sá sem hefur hagn­ast lang­mest á þessum árum er Lands­bank­inn, sem er að stærstu leyti í eigu íslenska rík­is­ins. Hann græddi 28,8 millj­arða króna í fyrra og hefur sam­tals rakað inn tæp­lega 142 millj­örðum króna frá upp­hafi árs 2009. Virð­is­breyt­ingar á útlánum námu 20 millj­örðum króna og skipta því mestu í upp­gjöri bank­ans í ár. Í árs­reikn­ingi er sagt að þetta sé til­komið „vegna auk­inna gæða lána­safns­ins“. Það þýðir í raun að fleiri standa í skilum og hægt er að reikna með betri end­ur­heimtum en áður var áætl­að.

Lands­bank­inn er raunar eini bank­inn sem má og getur greitt eig­anda sínum almenni­legan arð. Ríkið hagn­ast því vel á þess­ari starf­semi. Vegna árs­ins 2013 greiddi bank­inn rík­inu 20 millj­arðar króna í arð og mun greiða því 24 millj­arða króna á þessu ári.

Auglýsing

Arion banki og Íslands­banki eru að stærstu leyti í eigu þrotabú Kaup­þings og Glitn­is. Ríkið á síðan lit­inn hlut í hvorum þeirra, þrettán pró­sent í Arion banka og fimm pró­sent í Glitni. Arð­greiðslur þeirra fara að stærstum hluta til í þrotabú sem enn á eftir að slíta.

 

Metár hjá Arion banka

Arion banki átti metár í fyrra og hagn­að­ist um 28,6 millj­arða króna. Hluti þess hagn­aðar er vegna upp­reikn­aðs virðis hluta­bréfa í HB Granda, sem bank­inn á enn rúm­lega sex pró­sent hlut í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu. Þá hækk­uðu þókn­ana­tekj­ur, vaxta­tekj­ur, geng­is­hagn­aður og rekstra­tekjur vegna sölu eigna, leigu­tekna, virð­is­breyt­inga á eign­um, iðgjalda af líf­trygg­inga­starf­semi og sölu­hagn­aðar af atvinnu­hús­næði. Alls hagn­að­ist Arion banki um tæpa 16 millj­arða króna meira í fyrra en á árinu 2013. Það er hagn­að­ar­aukn­ing upp á 125 pró­sent. Stjórn bank­ans leggur til að hann greiði 45 pró­sent af hagn­aði árs­ins í arð, eða 14,3 millj­arða króna. Þrettán pró­sent þeirrar upp­hæðar rennur til íslenska rík­is­ins. Sam­an­lagður hagn­aður Arion banka frá því að hann var búinn til á rústum Kaup­þings er 104 millj­arðar króna.



Stöð­ugur hagn­aður síð­ustu þrjú ár



Hagn­aður Íslands­banka hefur verið í kringum 23 millj­arða króna á hverju ári síð­ast­liðin þrjú ár. Í fyrra var hann 22,8 millj­arðar króna, um 300 millj­ónum króna minni en árið áður. Sam­tals hefur bank­inn rakað inn 124,6 millj­örðum króna í hagnað frá árinu 2009.

Vaxta­tekjur bank­ans lækk­uðu á milli ára en voru samt 27 millj­aðar króna. Þókn­an­an­tekjur hækk­uðu á móti og má rekja þær að mestu til við­skipta­banka­sviðs, sem þjón­ustar ein­stak­linga, og dótt­ur­fé­laga bank­ans.

Ís­lands­banki ætlar að greiða fjóra millj­arða króna í arð í ár vegna árs­ins 2014 en greiddi þrjá millj­arða króna í fyrra. Íslenska ríkið fær fimm pró­sent af þeirri arð­greiðslu.

Ríkið borgar 153 millj­arða króna vegna end­ur­reisn­ar­innar

Líkt og flestir vita þá voru bank­arnir þrír end­ur­reistir af rík­inu með handafli eftir að íslenska banka­kerfið hrundi með látum í októ­ber 2008. Rík­is­sjóður hefur lagst út í tölu­verðan kostnað vegna þessa. Rík­is­sjóður lagði við­skipta­bönk­unum þremur til bæði reiðufé í formi víkj­andi lána, alls 800 millj­ónir króna til hvers og eins þeirra, og lagði auk þess inn í þá skulda­bréf þegar þeir voru fjár­magn­að­ir. Rík­is­sjóður hefur síðan greitt vexti af þeim skulda­bréf­um.

Upp­haf­lega stóð til að ríkið myndi eiga, og þar af leið­andi fjár­magna að fullu, alla nýju bank­anna þrjá. Á end­anum var meiri­hluti hluta­fjár í tveimur þeirra, Íslands­banka (ríkið á enn fimm pró­sent), og Arion banka (ríkið á enn 13 pró­sent), afhendur kröfu­höfum þeirra til að hægt yrði að ljúka fjár­mögn­um. Þess vegna eru útgefin skulda­bréf rík­is­ins til Arion banka og Íslands banka mun lægri en það sem lagt var til Lands­bank­ans, eða sam­tals upp á 68,4 millj­arða króna. Íslenska ríkið hefur því greitt sam­tals 26 millj­arða króna í vexti vegna skulda­bréfa sem það lagði inn í þessa tvo banka.

Skulda­bréfið sem lagt var inn í Lands­banka var tölu­vert hærra, eða upp á 121,2 millj­arða króna, enda á ríkið þann banka nán­ast að fullu. Því hefur rík­is­sjóður þurft að greiða 44,2 millj­arða króna í vexti vegna fjár­mögn­unar Lands­bank­ans. Við bæt­ist svo 19,2 millj­arða króna skulda­bréf sem lagt var inn í Lands­bank­ann þegar hann tók yfir SpKef, en tölu­vert vant­aði upp á að sá spari­sjóður hafi átt eignir til að standa undir inn­láns­skuld­bind­ingum sín­um. Það skulda­bréf hefur kostað rík­is­sjóð 2,6 millj­arða króna í vexti.

Rík­is­sjóður hefur greitt sam­tals 72,8 millj­arða króna í vexti vegna end­ur­reisnar við­skipta­bank­anna.

Ríkið stofn­aði líka til skuldar gagn­vart Seðla­banka Íslands þegar það tók á sig tap hans eftir hrun­ið. Það tap er rekj­an­legt að mestu til athafna þeirra þriggja banka sem nýju við­skipta­bank­arnir þrír eru byggðir á. Íslenska ríkið hefur greitt um 80 millj­arða króna í vexti og verð­bætur á þess­ari skuld sinni við Seðla­banka Íslands. Sam­an­lagðar vaxta­greiðslur og verð­bætur rík­is­sjóðs vegna lána, sem tekin voru til end­ur­reisnar á fjár­mála­kerf­inu frá hruni í októ­ber 2008 til dags­ins í dag, nema því alls um 153 millj­örðum króna.

Á móti á ríkið vit­an­lega eign­ar­hluti í bönk­unum þremur og fær greiddan arð úr þeim. Auk þess greiða þeir marga millj­arða króna í skatta á hverju ári.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None