Sigríður Benediktsdóttir útskýrir hagvöxt og landsframleiðslu

Sigríður-Benediktsdóttir.jpg
Auglýsing

„Lands­fram­leiðla er fram­leiðsla á allri vöru og þjón­ustu innan ákveð­ins land­svæðis yfir ákveðið tíma­bil. Við notum gjald­mið­il, krónur á Íslandi, til þess að mæla lands­fram­leiðsl­una.“ Svona útskýrði Sig­ríður Bene­díkts­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri hjá Seðla­banka Íslands, fyr­ir­bærið lands­fram­leiðslu í síð­asta þætti af Ferð til fjár á RÚV.

Að fengnu leyfi frá Helga Selj­an, frétta­manni og öðrum umsjón­ar­manni þátt­anna, þá fór Sig­ríður með jöfn­una sem skýrir hvernig lands­fram­leiðslan er reikn­uð. „Við leggjum þá saman allt það sem ein­stak­lingar neyta, allt það sem ríkið neytir og alla fjár­fest­ingu. Til þess að ná saman öllu sem við fram­leið­u­m innan land­svæð­is­ins þá bætum við einnig öllum útflutn­ingi við en drögum frá allt það sem við fluttum inn, því við neyttum þess en fram­leiddum það ekki,“ sagði Sig­ríð­ur. For­múlan lítur þá svona út:

Auglýsing


Verg lands­fram­leiðsla = einka­neysla + sam­neysla + fjár­fest­ing + útflutn­ingur – inn­flutn­ing­ur.

Mæli­kvarði á hag­sæld

En hvers vegna er svona oft litið til lands­fram­leiðsl­unn­ar, bæði í fréttum og umræðum um efna­hags­mál?



„Ástæðan hvers vegna við notum lands­fram­leiðslu svona mikið er sú að hún er ákveð­inn mæli­kvarði á hag­sæld. Því meira sem við fram­leiðum af vöru og þjón­ustu, því mun meira getum við neytt. Þar af leið­andi notum við breyt­ing­una á lands­fram­leiðslu sem mæli­kvarða til að sjá breyt­ingu á okkar hag­sæld,“ skýrir Sig­ríður og á þar við hag­vöxt, það er breyt­ingu á lands­fram­leiðslu milli ára.



„Það er mik­il­vægt að vita að hag­vöxtur mælir bara breyt­ing­una á magn­inu á vöru og þjón­ustu en ekki verð­inu. Við erum að horfa á hversu mikið við fram­leiðum af vörum og þjón­ustu innan ákveð­ins hag­svæðis á ákveðnum tíma, og miðum það við ákveð­inn tíma áður. Þetta þýðir ein­fald­lega að ef verð­bólga er fimm pró­sent en lands­fram­leiðsla eykst um tíu pró­sent, þá má segja að hag­sæld hafi í raun auk­ist um fimm pró­sent.“

3,5% hag­vöxtur árið 2013

Með öðrum orðum þá er tekið til­lit til almennra verð­lags­breyt­inga, verð­bólg­unnar svoköll­uðu, þegar hag­vöxtur er reikn­að­ur. Þá er lands­fram­leiðsla hvers árs færð á fast verð­lag. Í tölum Hag­stof­unnar er miðað við árið 2005 og í töfl­unni hér að neðan má bæði sjá hvernig lands­fram­leiðslan hefur breyst á föstu verð­lagi og hvernig hún hefur breyst á verð­lagi hvers árs (þegar ekki er tekið til­lit til verð­bólg­unn­ar).



Til dæmis nam lands­fram­leiðsla árið 2013 um 1.873 millj­örðum króna, sam­an­borið við 1.774 millj­arða árið 2012. Aukn­ingin var 5,6 pró­sent milli ára. Sé tekið til­lit til verð­bólg­unn­ar, og stærð­irnar færðar á fast verð­lag, þá kemur í ljós að hag­vöxt­ur­inn var jákvæður 3,5 pró­sent árið 2013. Taflan hér að neðan sýnir hag­vöxt hvers árs, frá alda­mótum til 2013.



Kjarn­inn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vik­ur. Mark­mið­ið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönn­um! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 19. febr­ú­ar. Fylgstu með á Face­book-­síðu Ferðar til fjár.



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnHallgrímur Oddsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None