Sigríður Björk og Gísli Freyr fá niðurstöðu Persónuverndar á morgun

gisli_sigridur.jpg
Auglýsing

Stjórn Per­sónu­vernd­ar hyggst afgreiða athugun stofn­un­ar­inn­ar á sam­skiptum Sig­ríðar Bjarkar Guð­jóns­dótt­ur, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, og Gísla Freys Val­dórs­son­ar, þáver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu Krisjtáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, við upp­haf leka­máls­ins svo­kall­aða, á fundi sínum á morg­un.

Í kjöl­far umfjöll­unar DV þann 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn um ­sam­skipti Sig­ríðar Bjarkar og Gísla Freys, sem áttu sér stað dag­inn sem fyrstu frétt­irnar um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos birtu­st, þar sem fram kom að Sig­ríður Björk hefði sent aðstoð­ar­manni ráð­herra tölvu­póst með grein­ar­gerð um Tony Omos, sendi Per­sónu­vernd lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum póst þar sem óskað var skýr­inga varð­andi send­ingu umræddar grein­ar­gerð­ar­inn­ar. Bréfið var sent 19. nóv­em­ber, eða dag­inn eftir umfjöllun DV.

Kjarn­inn greindi frá því 27. nóv­em­ber að áður­nefndan tölvu­póst væri hvorki að finna í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu né hjá emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesj­um. Per­sónu­vernd fór þá fram á að Sig­ríður Björk afhenti tölvu­póst­inn, sem hún varð síðar við.

Auglýsing

Sig­ríður Björk, sem nú gegnir stöðu lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, hefur stað­fast­lega neitað að hafa við­hafst nokkuð sem stang­ast á við góða starfs­hætti, en eins og Kjarn­inn benti á í ítar­legri frétta­skýr­ingu í lok nóv­em­ber eru uppi ýmis álita­mál um hvort Sig­ríði hafi verið heim­ilt að afhenda Gísla Frey umbeðna grein­ar­gerð, meðal ann­ars vegna þess að hann hafi ekki verið til þess bær að óska eftir slíkum upp­lýs­ing­um. Þá vakti óneit­an­lega athygli þegar Sig­ríður sagði í við­tali við RÚV að hún hefði aldrei látið lög­reglu vita af sam­skiptum hennar og Gísla á meðan rann­sókn leka­máls­ins stóð.

Eftir stjórn­ar­fund hjá Per­sónu­vernd á morgun verður nið­ur­staða stofn­un­ar­innar send þeim Sig­ríði Björk og Gísla Frey. Nið­ur­staða Per­sónu­verndar er end­an­leg, en búast má við að hún verði birt á vef­síðu stofn­un­ar­innar síð­degis á mánu­dag­inn, til að tryggja að nið­ur­staðan ber­ist máls­að­ilum áður en hún verður birt opin­ber­lega.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None