TISA-leyniskjöl: Lagt til að heilbrigðisþjónusta verði markaðsvædd

187154178.copy_.jpg
Auglýsing

Til­laga var lögð fram í TISA-við­ræðu­lotu sem fram fór í sept­em­ber um að auka sam­keppni um heil­brigð­is­þjón­ustu á milli landa með því að mark­aðsvæða þjón­ust­una. Sam­kvæmt til­lög­unni eru miklir ónýttir mögu­leikar til að alþjóða­væða heil­brigð­is­þjón­ustu, aðal­lega vegna þess að heil­brigð­is­þjón­usta er að mestu fjár­mögnuð og veitt af ríkjum eða vel­ferð­ar­stofn­un­um. Það er því nán­ast ekk­ert aðdrátt­ar­afl fyrir erlenda sam­keppn­is­að­ila til að keppa um að veita hana vegna þess hversu lítið mark­aðsvætt umhverfi hennar er.

Það var ­samn­ings­nefnd Tyrk­lands sem lagð­i fram til­lög­una en hún var rædd í átt­undu við­ræðu­lotu TISA-við­ræðn­anna sem fór fram í Genf í sept­em­ber síð­ast­liðn­um. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum gögnum sem Kjarn­inn birtir í dag í sam­starfi við Associ­ated Whist­leblowing Press (AWP) og fjöl­miðla víðs­vegar um heim­inn. Gögn­unum var lekið til AWP sem hefur unnið að birt­ingu þeirra und­an­far­ið. Hægt er að nálg­ast gögnin í heild sinni hér.

Ísland er eitt þeirra 50 landa sem er aðili að TISA-við­ræð­un­um, sem eiga að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum milli landa. Mikil leynd hvílir yfir við­ræð­un­um. Náist að klára þær með samn­ingi mun sá samn­ingur gilda að öllu leyti hér­lend­is.

Auglýsing

Segja til­lög­una auka ójöfnuð



Sam­kvæmt til­lög­unni sem rædd var í sept­em­ber á að auka frelsi sjúk­linga til að ferð­ast til ann­arra aðild­ar­landa samn­ings­ins til að sækja sér heil­brigð­is­þjón­ustu, kjósi þeir svo. Þannig mynd­ist mark­aður með slíka.

Odile Frank, læknir sem starfar hjá Alþjóða­sam­tökum starfs­fólks í almanna­þjón­ustu (PSI), hefur rýnt í til­lög­una og segir að til­lagan myndi auka kostnað við veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu í þró­un­ar­löndum og minnka gæði hennar í þró­uðum löndum Evr­ópu, Norð­ur­-Am­er­íku, Ástr­alíu og víð­ar.

PSI segir að til­lagan gangi út frá því að heil­brigð­is­þjón­usta sé vara eins og hver önnur sem hægt sé að kaupa og selja á mark­aði. Sam­tökin segja að slíkt sjón­ar­mið líti fram hjá almanna­hag og muni auka ójöfnuð veru­lega.

Sam­kvæmt pró­fessor Jane Kelsey, breskum sér­fræð­ingi í þjón­ustu­við­skipt­um, myndi sú lausn sem lögð er til í til­lög­unni gagn­ast auð­ug­ari ein­stak­lingum og einka­fyr­ir­tækjum innan heil­brigð­is­geirans. Pen­ingar myndu hins vegar sog­ast úr heil­brigð­is­kerfum þjóða, en lág fjár­fest­ing í þeim er einmitt ein þeirra ástæða sem nefnd er sem rök fyrir því að bjóða upp á aukna aflands­þjón­ustu innan heil­brigð­is­geirans. Þannig stækki lausnin eitt þeirra vanda­mála sem hún á að leysa.

Ísland á meðal þátt­tak­enda



TISA stendur fyrir Trade in Services Agreem­ent. Við­ræð­urnar hafa staðið yfir frá því á vor­mán­uðum 2013. Alls taka 23 aðilar þátt í þeim (Evr­ópu­sam­band­ið, sem kemur fram fyrir sín 28 aðild­ar­lönd, er talið sem einn aðili í við­ræð­un­um), þeirra á meðal er Ísland. Því eru alls 50 lönd þátt­tak­endur í við­ræð­un­um.

Ísland er þáttakandi í viðræðunum. Ábyrgð á þeim heyrir undir utanríkisráðuneytið. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. Ísland er þáttak­andi í við­ræð­un­um. Ábyrgð á þeim heyrir undir utan­rík­is­ráðu­neyt­ið. Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra.

Við­ræð­urnar eru marg­hliða og snú­ast um að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum milli landa. Yfir­lýst mark­mið þeirra er að fækka hindr­unum í vegi fyr­ir­tækja sem starfa á vett­vangi þjón­ustu­við­skipta og auka gegn­sæi í milli­ríkja­við­skiptum með þjón­ustu. Samn­ings­við­ræð­urnar skipta Ísland miklu máli enda spanna þátt­töku­ríkin helstu mark­aðs­svæði íslenskra fyr­ir­tækja.

Ein­ungis einn almennur alþjóð­legur samn­ingur um þjón­ustu­við­skipti hefur verið gerður í sög­unni. Hann gengur undir nafn­inu GATS og gekk í gildi árið 1996. Síðan hefur ekki náðst að semja um nýja lausn sem tekur til­lit til þeirra breyt­inga sem orðið hafa á heim­inum und­an­farna tæpa tvo ára­tugi.

Gríð­ar­leg leynd yfir við­ræð­unum



Hægt er að lesa þau skjöl í heild sinni hér.

Skjölin eru dag­sett 14. apríl 2014 og höfðu aldrei birst opin­ber­lega áður­. Í þeim kom fram að vilji væri til þess að vinda ofan af því reglu­verki sem sett hefur verið á fjár­mála­þjón­ustu eftir hrun, liðka fyrir veru lyk­il­stjórn­enda og sér­fræð­inga í fjár­mála­geir­anum í öðrum löndum en þeirra eigin umfram aðra og setja upp ein­hvers konar yfir­þjóð­legan dóm­stól til að taka ákvarð­anir um deilu­mál sem munu spretta upp á milli fjár­mála­fyr­ir­tækja og þjóða í fram­tíð­inni.

wiki

Mikil leynd hvílir yfir umræddum skjölum og við­ræð­unum í heild. Þær þykja gríð­ar­lega við­kvæmar, enda verið að sýsla með grund­vall­ar­rétt­indi á vett­vangi sem lýtur í raun engum regl­um.  Á for­síðu skjal­anna sem Wiki­leaks lét Kjarn­ann hafa sagði meðal ann­ars að ekki mætti aflétta trún­aði á þeim fyrr en fimm árum eftir að TISA-­sam­komu­lagið taki gildi eða fimm árum eftir að við­ræð­unum ljúki, fari svo að samn­ingar náist ekki. Á skjöl­unum stendur að þau verði að „vera vistuð í lok­aðri eða öruggri bygg­ingu, her­bergi eða hirslu“.

Við­ræð­urnar fara líka fram utan Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar (WTO) og lúta því ekki þeim reglum sem gilda um þá stofn­un. Ljóst er á skjöl­unum frá bæði Wiki­leaks og nú AWP að vilji er til þess að auka frelsi í að selja þjón­ustu milli landa all­veru­lega.

Ætla að gera end­an­lega útgáfu TISA opin­bera



Ís­lenska utan­rík­is­ráðu­neytið deilir ekki mati alþjóð­legra stétt­ar­fé­laga á borð við PSI sem telja að TISA-­sam­komu­lagið muni auka hagnað alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja á kostnað rétt­inda þeirra og hag­sæld þeirra sem verra hafa það. Mark­miðið með þátt­töku Íslands í TISA-við­ræð­unum sé að gera íslensk fyr­ir­tæki sem stunda þjón­ustu­við­skipti „betur sam­keppn­is­hæf á heims­vísu og draga úr við­skipta­hindr­un­um“. Þetta er meðal þess sem kom fram í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um TISA-við­ræð­urnar sum­arið 2014.

Þar sagði einnig að TISA-­samn­ing­ur­inn yrði gerður opin­ber strax og Ísland hefur und­ir­ritað hann og íslensk upp­lýs­inga­lög gildi um öll gögn sem Ísland leggur fram í samn­ings­við­ræð­un­um. Íslensk stjórn­völd virða hins vegar „þá stað­reynd að ólíkar reglur gilda um opin­beran aðgang að upp­lýs­ingum ein­stakra þátt­töku­ríkja“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None