Verðbólgan hefur étið sælgætispokann

sofinn.png
Auglýsing

Þeir Breki Karls­son og Helgi Selj­an, umsjón­ar­menn Ferðar til fjár á RÚV, ræddu í síð­asta þætti hvernig virði pen­inga rýrn­ar. Helgi rifj­aði það upp hvernig hann gat einu sinni keypt stóran poka af sæl­gæti fyrir hund­rað kall. Í dag, ein­hverjum tutt­ugu árum síð­ar, fær hann varla svo mikið sem kara­mellu fyrir sama pen­ing. „Hvernig stendur á því að ég fæ eina kara­mellu núna en áður gekk ég út með brjósklos undan farg­in­u,“ spurði hann Breka.

Söku­dólg­ur­inn er auð­vitað verð­bólgan. Það sem fæst fyrir sömu fjár­hæð minnkar og minnkar með árun­um. Með öðrum orðum þá rýrnar verð­gildi pen­ings­ins – minna fæst fyrir hann en áður. Eins og Breki benti á, þá verður þó að hafa í huga að áður tók það mun lengri tíma að vinna sér inn fyrir sams­konar stærð af sæl­gætis­poka og í gamla daga. Fleiri hund­rað kallar fást fyrir vinnu en þá.

Auglýsing


„Laun hafa að með­al­tali hækkað um 23 pró­sent umfram verð­bólgu und­an­farin 25 ár,“ sagði Breki. Kaup­máttur launa, það er það magn af vörum eða þjón­ustu sem við fáum fyrir kaupið okk­ar, hefur þannig auk­ist á þessum tíma, þótt stór poki af sæl­gæti kosti í dag miklu meira en hund­rað krón­ur.



Breyt­ing á vísi­tölu neyslu­verðs yfir tólf mán­aða tíma­bil er jafnan kölluð verð­bólga, eða verð­hjöðnun ef verð­lag lækkar á tíma­bil­inu. Hag­stofan mælir hund­ruð vara og þjón­ustu­liða í hverjum mán­uði til þess að fylgj­ast með verð­lags­breyt­ing­um. Þessar vörur og þjón­usta vigta mis­þungt í vísi­töl­unni. Eins og fram kom í síð­asta þætti af Ferð til fjár þá er afar mis­jafnt hvernig verð hefur breyst á ein­stökum lið­um. Þannig hefur rjómasúkkulaði hækkað um tæp­lega helm­ing á síð­ast­liðnum 15 árum á sama tíma og verð á galla­buxum hefur nærri tvö­fald­ast. Á þessu tíma­bili hækk­aði verð­lag í land­inu um 116 pró­sent, sam­kvæmt vísi­tölu neyslu­verðs.

Verðbreyting á rjómasúkkulaði og gallabuxum frá 1999 til 2014. Verð­breyt­ing á rjómasúkkulaði og galla­buxum frá 1999 til 2014.

Kjarn­inn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vik­ur. Mark­mið­ið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönn­um! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 5. febr­ú­ar. Fylgstu með á Face­book-­síðu Ferðar til fjár.



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None