Flugmaðurinn „venjulegur maður“ sem var talinn „100% hæfur“

h_51861598-1.jpg
Auglýsing

Eftir að greint var frá því hvernig flug­slysið í frönsku ölp­unum bar að, og eftir að greint var frá nafni flug­manns­ins sem virð­ist hafa brot­lent vél­inni vilj­andi, hafa fjöl­miðlar safnað saman ýmsum upp­lýs­ingum um það hver hann var.

Mað­ur­inn hét Andr­eas Lubitz og var 28 ára gam­all. Hann var frá bænum Monta­baur, sem er í vest­ur­hluta Þýska­lands, um 100 kíló­metra norð­vestur af Frank­furt. Hann bjó með for­eldrum sínum í Monta­baur en hafði íbúð til umráða í Dus­seldorf, þar sem hann vann, að sögn bæj­ar­stjóra Monta­baur, Gabriele Wieland.

andreas-lubitz Þessi mynd var tekin af Face­book-­síðu Lubitz, sem hefur síðan þá verið lok­að. (Mynd: Face­book)

Auglýsing

 

„Hann átti fullt af vin­um, hann var ekki ein­fari,“ segir Peter Ruecker, góð­kunn­ingi Lubitz í sam­tali við Reuters. „Hann var venju­legur maður [...] Hann var mjög ánægður með starf sitt hjá Germanwings og honum gekk vel.“ Aðrir við­mæl­endur sögðu hann hafa verið rólyndan og þög­u­lan, og að hann hafi ekki borið þess nein merki að vilja fremja sjálfs­víg. Hann er sagður hafa átt kærustu, hafa verið skemmti­legur og hlaupið lang­hlaup í frí­tíma sín­um.

Lubitz hóf störf hjá Germanwings í sept­em­ber 2013 eftir að hafa verið í þjálfun hjá Luft­hansa í Bremen. Hann hafði aðeins flogið 630 klukku­stundir sem flug­mað­ur. For­stjóri Luft­hansa, Carsten Spohr, sagði að Lubitz hafi tekið sér langt og óvænt hlé á meðan á þjálfun hans hjá Luft­hansa stóð, en að hann hefði sannað sem sem 100 pró­sent hæfan til að fljúga. Hann hóf flug­manns­þjálfun árið 2008, en eftir að hann lauk námi vann hann sem flug­þjónn um stund. „Það voru aldrei neinar efa­semdir um hæfni hans eða hæfi­leika,“ sagði hann. Jafn­framt kom fram í máli hans að allir flug­menn fari í sál­fræði­mat þegar þeir eru ráðnir inn hjá Luft­hansa, en þeir þurfa aldrei að fara í slíkt mat aft­ur.

Svona lítur flugstjórnarklefi í Airbus A320 út. (Mynd:EPA) Svona lítur flug­stjórn­ar­klefi í Air­bus A320 út. (Mynd:EPA)

Inn­an­rík­is­ráð­herra Þýska­lands, Thomas de Maizi­ere, segir ekk­ert benda til þess að Lubitz hafi verið tengdur hryðju­verka­sam­tökum miðað við þær upp­lýs­ingar sem til­tækar eru um hann. Lík­legri skýr­ing er að hann hafi framið sjálfs­víg. Þótt það sé afskap­lega sjald­gæft að slíkt ger­ist með þessum hætti eru til dæmi um það.

Lög­regla gætir nú heim­ilis fjöl­skyldu hans í Monta­baur, en fjöl­skyldan fór á slys­stað­inn eins og aðstand­endur ann­arra sem lét­ust. Þau voru hins vegar farin aftur til Þýska­lands þegar greint var frá því í morgun hvernig í mál­inu lá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None