Greinargerð Bjarna: Tvær leiðir færar til að losa fjármagnshöft

bjarniben.jpg
Auglýsing

Tvær leiðir eru færar til þess að taka á þeim greiðslu­jafn­að­ar­vanda sem Ísland stendur frammi fyrir við losun fjár­magns­hafta. Önnur er sú að eig­endur inn­lendra eigna veiti afslátt á þeim í skiptum fyrir erlendan gjald­eyri. Hin er sú að tryggja að kvikar eign­ir, þær sem eru lík­legar til að vilja fara út úr íslensku hag­kerfi við losun hafta, fær­ist í lang­tíma­eign­ir. Þetta kemur fram í nýrri grein­ar­gerð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um fram­gang áætl­unar um losun fjár­magns­hafta sem var birt í dag.

Í grein­ar­gerð­inni segir að aðstæður til los­unar hafta séu nú um margt ákjós­an­leg­ar. „Gott jafn­vægi er í þjóð­ar­bú­skapnum með afgangi af rekstri rík­is­sjóðs, verð­bólga er lág og und­ir­liggj­andi er við­skipta­af­gangur sem hefur skilað sér í upp­bygg­ingu óskuld­setts gjald­eyr­is­forða, sem nemur í dag um 60 millj­örðum króna.“

Þrí­þætt vanda­mál



Vanda­málið sem Ísland standi frammi fyrir sé hins vegar greiðslu­jafn­að­ar­vanda­mál. „ Það vanda­mál er þrí­þætt[...]aflandskrónu­vand­inn, vanda­mál tengd útgreiðslu úr fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem sæta slita­með­ferð og hugs­an­legt útflæði ann­arra aðila, þ.m.t. inn­lendra aðila. Áætl­anir um losun hafta verða að tryggja að alvar­leg hætta eða örð­ug­leikar skap­ist ekki í geng­is- og pen­inga­mál­um. Gjald­eyr­is­höftin eru vernd­ar­ráð­stöfun sem hafa tryggt stöð­ug­leika sem aftur skap­aði for­sendur fyrir end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins og úrvinnslu skulda­mála heim­ila og fyr­ir­tækja í land­in­u“.

Umfang aflandskrónu­vand­ans nú er um 235 millj­arðar króna og heild­ar­eignir fjár­mála­fyr­ir­tækja í slita­með­ferð eru um 2.400 millj­arðar króna (41 pró­sent þeirra eru inn­lend­ar). Mun erf­ið­ara er að leggja mat á mögu­legt útlæði inn­lendra aðila en í skýrslu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins frá 13. mars er áætlað að það gæti numið um 500 millj­örðum króna.

Auglýsing

Í grein­ar­gerð­inni segir að í reynd séu ein­ungis tvær leiðir til að taka á þessum greiðslu­jafn­að­ar­vanda. „Það er annað hvort gert með því að (i) veita afslátt af inn­lendum eignum þegar þeim er skipt fyrir erlendan gjald­eyri (e. haircut), (ii) að tryggja að kvikar eignir fær­ist í lang­tíma­eign­ir, þ.e. að lengja í skuld­um. Skil­málar slíkra breyt­inga á eignum og skuldum verða því að tryggja að ómögu­legt sé að gjald­fella þær eða koma á fyrra ástandi. Þannig má gera ráð fyrir skamm­tíma­eig­endur slíkra gern­inga veiti afslátt af þeim (haircut) við sölu en lang­tíma­fjár­festar hagn­ist á þeim til lengri tíma lit­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None