Gylfi Zoega kallar eftir aðkomu ríkisstjórnar að kjarasamningum

14932775807-7d53d2dfb1-z.jpg
Auglýsing

„Ef ekki tekst að lægja öld­urnar á vinnu­mark­aði á næstu vikum með bættri upp­lýs­inga­gjöf er mik­il­vægt að rík­is­stjórn stígi fram og mót­i ­til­lögur í sam­vinnu við aðila vinnu­mark­að­ar­, bæði stétt­ar­fé­lög launa­fólks og atvinnu­rek­end­ur, til­lögur sem miða að því að þorra ­launa­fólks finn­ist ekki á sig hall­að.“ Þetta skrifar Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði og nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, í viku­ritið Vís­bend­ingu, sem kom út í dag.

Gylfi segir að nú sem endranær verði rík­is­stjórnin að sýna skiln­ing á kjörum og hags­munum launa­fólks. Hún verði þó jafn­framt að útskýra mik­il­vægi þeirra almanna­gæða sem felist í stöð­ugu verð­lagi fyrir lífs­kjör og hag­vöxt til lengri tíma. „Í slíkum samn­ingum getur rík­is­vald boðið önnur almanna­gæði, svo sem breyt­ingar á skatt­kerfi og rík­is­út­gjöldum eða ­kerf­is­breyt­ing­ar, í skiptum fyrir verð­stöð­ug­leik­ann.“

Hann nefnir hús­næð­is­mál sér­stak­lega sem mögu­leika í stöð­unni. „Kannski væri upp­lagt að rík­is­stjórn­in beitti sér fyrir átaki í hús­næð­is­málum sem mið­aði að því að lækka verð á minni íbúð­u­m.“

Auglýsing

Freist­ast til að gera meiri kaup­kröfur



Gylfi fjallar um kjara­samn­ing­ana og ósætti á vinnu­mark­aði í grein sinni í Vís­bend­ing­u. Hann segir mik­il­vægt að upp­lýs­ingum sé safnað og komið í veg fyrir að óánægja verði til fyrir mis­skiln­ing. Hag­stjórn hafi gengið vel und­an­farin miss­eri „þótt leynt fari“. Óánægju­raddir heyr­ist þó um fjár­magns­höft og launa­þróun og það sé einmitt þetta tvennt sem skapi mestu hætt­una.

Þá segir Gylfi að ef félags­mönnum ein­stakra stétt­ar­fé­laga finn­ist tekju­skipt­ing í sam­fé­lag­inu órétt­lát geti þeir freist­ast til þess að gera meiri kaup­kröfur en ella óháð atvinnustigi og skeyti litlu um áhrif launa­hækk­ana á verð­bólgu. Hið sama geti gerst ef þeim finn­ist rík­is­stjórn ekki hafa unnið að hags­munum þeirra. „Það sama getur gerst ef ein­stakir hópar fá meiri launa­hækk­anir en aðrir vegna sterkrar samn­ings­að­stöðu. Nefna má nýleg dæmi um flug­menn, fram­halds­skóla­kenn­ara eða lækna.“

Hag­stjórn­ar­vand­inn felist í því að þótt hverju stétt­ar­fé­lagi finn­ist rétt­læt­an­legt að fara fram með miklar launa­kröfur sé það ekki skyn­sam­legt fyrir þjóð­fé­lagið í heild. Ef öll félög fari fram með miklar launa­kröfur og fái þær sam­þykktar „verður það til þess að verð­lag hækk­ar, gengi krón­unnar lækk­ar, höf­uð­stóll verð­tryggðra lána hækk­ar, atvinna og efna­hags­um­svif geta jafn­vel minnkað og kaup­máttur getur dreg­ist sam­an.“

Til lengri tíma lit­ið, segir Gylfi að það skipti höf­uð­máli að ­stöð­ug­leiki sé í efna­hags­mál­um, verð­lag stöðugt og gengi krón­unnar sömu­leið­is. „Frjáls ut­an­rík­is­við­skipti, frjálst flæði fjár­magns, einka­rekst­ur, aðskiln­aður banka og við­skipta­vina þeirra, var­kárni í rekstri fyr­ir­tækja, skýrt lagaum­hverfi og vel var­inn eigna­réttur í stöð­ug­u efna­hags­um­hverfi þar sem opin­ber afskipti af ­fyr­ir­tækja­rekstri eru í lág­marki skila best­u­m lífs­kjörum til lengri tíma lit­ið. Næsta verk­efni verður að reyna að ná þessu mark­miði eftir að fjár­magns­höft hafa verið losuð og spá­kaup­menn ­taka að versla með krón­una að nýju.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None