Auglýsing

Rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar hefur til­kynnt það að hún hafi ekki í hyggju að taka upp aðild­ar­við­ræður við ESB á nýjan leik og líti svo á að Ísland sé ekki lengur í hópi umsókn­ar­ríkja. Frá þessu var sagt í kvöld.

Málið var leynd­ar­mál rík­is­stjórn­ar­innar þangað til í kvöld. Það fékk enga þing­lega með­ferð. Þingið fjall­aði ekk­ert um það, utan­rík­is­mála­nefnd fjall­aði ekki um það, þing­flokkar rík­is­stjórn­ar­innar fjöll­uðu ekki einu sinni um það. Ein­göngu rík­is­stjórnin fjall­aði um það. Það gerði hún á fundi sínum á þriðju­dag, en henni þótti ekki taka því að hafa málið á dag­skrá fund­ar­ins svo ein­hver gæti mögu­lega fengið vit­neskju um hvað stæði til.

Hvers vegna skyldi þetta vera gert með þessum hætti? Það er aug­ljóst. Rík­is­stjórnin veit vel að hún kæm­ist ekki í gegn um þingið með þetta mál sitt. Hún hefur prófað það áður, og varð ekki ágengt þá. Það eina sem rík­is­stjórnin fékk áorkað í það skiptið var að fjölga stuðn­ings­mönnum þess að aðild­ar­við­ræðum yrði lokið og þjóðin fengi að kjósa. Í nýlegum skoð­ana­könn­unum kemur í ljós að sá stuðn­ingur hefur síður en svo minnk­að. Almenn­ingur vill fá að taka ákvörðun um málið sjálf­ur, eins og honum hefur ítrekað verið lof­að, bæði fyrir síð­ustu kosn­ingar og í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni þar sem ákveðið var að sækja um aðild. Allt tal um annað er bara útúr­snún­ing­ur.

Auglýsing

Engin þörf fyrir þingið lengur



Rík­is­stjórnin hefur boðað allt þetta ár að þings­á­lykt­un­ar­til­laga um aft­ur­köllun umsóknar yrði lögð fram á þing­inu á nýjan leik á þessu þingi. Þannig hefur verið gert ráð fyrir því að fram færi umræða um málið í þing­inu. Hún yrði hörð og á meðan yrðu lík­lega fjöl­menn mót­mæli fyrir utan, rétt eins og síð­ast þegar rík­is­stjórnin reyndi að slíta aðild­ar­við­ræð­un­um.

En nú hefur rík­is­stjórn Íslands dottið niður á aðra og þægi­legri lausn fyrir sjálfa sig. Hún telur enga þörf fyrir þingið leng­ur. Hún sendir bara bréf og segir Evr­ópu­sam­band­inu að hún vilji ekki ganga þar inn og ESB eigi að taka mið af því héðan af. Jafn­framt er tekið fram að þessi nýja stefna stjórn­valda „yf­ir­taki þær skuld­bind­ingar sem gefnar voru í aðild­ar­við­ræðum fyrri rík­is­stjórn­ar,“ svo vitnað sé í til­kynn­ingu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sem send var fjöl­miðlum í kvöld.

En nú hefur rík­is­stjórn Íslands dottið niður á aðra og þægi­legri lausn fyrir sjálfa sig. Hún telur enga þörf fyrir þingið lengur.

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra sagði í við­tali við RÚV í kvöld að síð­asta rík­is­stjórn hefði sótt um aðild að ESB og byggt það á til­mælum frá þing­inu. „Það þing er ekki til staðar og ekki sá meiri­hluti sem var að baki álit­inu á sínum tíma. Það er komin ný rík­is­stjórn með nýja stefn­u,“ sagði hann.

Þarna er margt áhuga­vert, til að mynda full­kom­inn mis­skiln­ingur um það hvernig þjóð­þing virka. Ef þessi rök­semda­færsla verður notuð frekar erum við í ansi miklu ves­eni. Þá verður nefni­lega hægt að ógilda allar ákvarð­anir þings á hverju kjör­tíma­bili fyrir sig um leið og nýtt kjör­tíma­bil hefst. Og segja svo bara „nei sko, það þing sem sam­þykkti þetta er ekki til staðar og ekki sá meiri­hluti sem var að baki þessu á sínum tíma.“ Það er aug­ljóst að þetta gengur ekki upp.

Hefur bréfið merk­ingu?



Í raun er óljóst hvort þetta bréf Gunn­ars Braga hefur ein­hverja raun­veru­lega merk­ingu. Getur hann ákveðið það, gagn­vart þing­inu og ekki síður gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu, að þessi nýja stefna rík­is­stjórn­ar­innar yfir­taki allar skuld­bind­ingar sem áður hafa verið gerðar af íslenskum stjórn­völd­um? Getur Evr­ópu­sam­bandið litið á þetta bréf sem við­ræðu­slit? Því á eftir að svara og það verður spenn­andi að sjá við­brögð sam­bands­ins á næstu dög­um. Hvernig sem svarið við þessum spurn­ingum verður er alla­vega ljóst að það er nákvæm­lega ekk­ert stór­mann­legt við þessa aðferð rík­is­stjórn­ar­innar við að slíta aðild­ar­við­ræð­un­um. Ekki gagn­vart þing­inu, ekki gagn­vart þjóð­inni og ekki gagn­vart Evr­ópu.

Rík­is­stjórn sem hefði staðið við að leyfa þjóð­inni að kjósa um fram­haldið hefði getað borið höf­uðið hátt gagn­vart þjóð, þingi og Evr­ópu. Rík­is­stjórn sem hefði farið með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í gegnum erf­iða umræðu í þing­inu og í kjöl­far þess slitið við­ræðum hefði getað verið sátt þegar hún sendi bréf um aft­ur­köllun umsóknar til Evr­ópu.

Rík­is­stjórn sem pukrast með málið og afhendir svo leyni­bréf um við­ræðu­slit til þess að reyna að sleppa við það að takast á við þingið og vilja þjóð­ar­innar er ekk­ert annað en heigull.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari
None