Jón Gunnarsson: "Eiga að hafa vit á því að halda sér til hliðar þegar svona hagsmunir eru í húfi"

matorkanytt.jpg
Auglýsing

Lög­mað­ur­inn Eiríkur S. Svav­ars­son, sem er einn eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins Matorku sem nýverið gerði fjár­fest­inga­samn­ing við íslenska rík­ið, kom fyrir atvinnu­vega­nefnd þann 30. októ­ber síð­ast­lið­inn fyrir hönd Lög­manna­fé­lags Íslands til að ræða frum­varp um íviln­anir til nýfjár­fest­inga á Íslandi. Hann lét nefnd­ina ekki vita af mögu­legum hags­muna­á­rekstri.

Tveimur dögum áður hafði laga­nefnd Lög­manna­fé­lags Íslands sent atvinnu­vega­nefnd umsögn vegna frum­varps­ins. Eiríkur situr í laga­nefnd­inni en er ekki skrif­aður fyrir umsögn­inni.

Mjög sér­stakt, segir for­maður nefnd­ar­innar



Jón Gunn­ars­son, for­maður atvinnu­vega­nefnd­ar, seg­ist ekki minn­ast þess að Eiríkur hafi tekið fram að fyr­ir­tæki sem að hluta til væri í hans eigu væri í við­ræðum við atvinnu­vega­ráðu­neytið um íviln­un­ar­samn­ing á sama tíma og hann kom fyrir nefnd­ina. Aðspurður um hvort honum finn­ist að um hags­muna­á­rekstur hafi verið að ræða svara Jón því ját­andi. „Mér finnst þetta vera mjög sér­stakt. Menn eiga að hafa vit á því að halda sér til hliðar þegar svona hags­munir eru í húfi.“

Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis. Jón Gunn­ars­son, for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþing­is.

Auglýsing

Aðspurður um hvort honum finn­ist að um hags­muna­á­rekstur hafi verið að ræða svara Jón því ját­andi. „Mér finnst þetta vera mjög sér­stakt. Menn eiga að hafa vit á því að halda sér til hliðar þegar svona hags­munir eru í húfi.“

Jón segir nefnd­ina ekki hafa vitað neitt um samn­ing ráðu­neyt­is­ins við Matorku fyrr en fyrir skemmstu. Hann hefur frestað afgreiðslu á frum­varpi um íviln­anir til nýfjár­fest­inga á meðan að ýmsir þættir máls­ins eru til skoð­un­ar.

Ekki náð­ist í Eirík Svav­ars­son við vinnslu frétt­ar­inn­ar.

Fær mikla afslætti



Matorka og rík­is­stjórn Íslands und­ir­rit­uðu fjár­fest­inga­samn­ing um íviln­anir til næstu tíu ára þann 27. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Við­skipta­blaðið greindi fyrst inni­haldi samn­ings­ins auk þess sem ítar­lega var fjallað um það í Kast­ljósi kvölds­ins. Í umfjöllun miðl­anna kom fram að sam­kvæmt samn­ingnum fær félagið fær afslátt af fjölda skatta og gjalda. Tekju­skatts­pró­sentan verður 15 pró­sent, á meðan önnur fyr­ir­tæki greiða 20 pró­senta tekju­skatt. Þá fær félagið helm­ings­af­slátt af trygg­inga­gjald­inu og lög­bundnu hámarki fast­eigna­gjalda, und­an­þágur vegna greiðslu aðflutn­ings­gjalda, hag­stæð­ari fyrn­inga­regl­ur, íviln­anir vegna virð­is­auka­skatts af inn­flutn­ingi og sér­stakan þjálf­un­ar­styrk fyrir starfs­menn. Allar íviln­an­irnar eiga sér for­dæmi í fjár­fest­inga­samn­ingum rík­is­ins vegna stór­iðju, gagna­ver, kís­il­ver og önnur fyr­ir­tæki.

matorka Matorka og rík­is­stjórn Íslands und­ir­rit­uðu fjár­fest­inga­samn­ing um íviln­anir til næstu tíu ára þann 27. febr­úar síð­ast­lið­inn.

 

Hlut­fall íviln­anna af heild­ar­fjár­fest­ingu félags­ins, sem hyggur á sam­keppni við fjölda íslenskra fyr­ir­tækja sem fyrir eru í bleikju­eldi, hefur vakið athygli. Sam­kvæmt Við­skipta­blað­inu nemur það að lág­marki 35 pró­sent en allt að 60 pró­sent­um. And­virði rík­is­styrks­ins hleypur á 430 millj­ónum króna á meðan heild­ar­fjár­fest­ing Matorku vegna bleikju­eld­is­ins við Grinda­vík er áætluð um 1.200 millj­ónir króna. Að með­töldum áður­nefndum þjálf­un­ar­styrk, þar sem kostn­aður getur numið allt að 295 millj­ónum króna, en þá slagar hlut­fall íviln­anna af fjár­fest­ing­unni upp í 60 pró­sent.

Á meðal stærstu eig­enda



helstu eig­endur Matorku eru þeir Einar Sveins­son og Eiríkur Svav­ars­son. Ein­ar er frændi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og fyrr­ver­andi við­skipta­fé­lagi hans á árunum fyrir hrun. Þá er Ein­ar hlut­hafi í Thorsil, sem hlaut nýverið fjár­fest­inga­samn­ing við ríkið vegna kís­il­vers á Reykja­nesi og þá á hann hlut í félag­inu sem keypti Borgun af Lands­ban­anum nýver­ið, og Kjarn­inn sagði frá fyrstur fjöl­miðla.

Eiríkur er hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur, situr í laga­nefnd Lög­manna­fé­lags Íslands og átti sæti í hafta­hópi stjórn­valda þar til nýlega, en þangað var hann ráð­inn af Bjarna Bene­dikts­syni. Eiríkur var áber­andi í sam­tök­unum InDefence og hefur meðal ann­ars gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Garða­bæ. Eig­in­kona hans er einn stofn­enda Matorku.

Við­bót klukkan 14:25 18. mars 2015:



Ei­ríkur S. Svav­ars­son, lög­maður og einn eig­anda Matorku, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna fréttar Kjarn­ans í gær­kvöldi þar sem fjallað var um að hann hafi komið fyrir atvinnu­vega­nefnd þann 30. októ­ber síð­ast­lið­inn ­fyrir hönd Lög­manna­fé­lags Íslands til að ræða frum­varp um íviln­anir til nýfjár­fest­inga á Íslandi. Eiríkur segir í yfir­lýs­ingu að hann hafi ekki átt hags­muna að gæta á fund­inum né gagn­vart efn­is­at­riðum frum­varps­ins. Með frétta­flutn­ingi af mál­inu sé "að ástæðu­lausu  ­vegið að heil­indum mínum og starfs­heiðri." Hægt er að lesa yfir­lýs­ingu Eiríks í heild sinni hér.

Kjarn­inn stendur að fullu leyti við frétt sína á mál­inu. Ekki er bent á neinar rang­færslur í frétt­inni í yfir­lýs­ingu Eiríks.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None