Kjarninn birtir bréf Sigríðar Bjarkar til Persónuverndar

gisli_sigridur.jpg
Auglýsing

Kjarn­inn hefur bréf sem Sig­ríður Björk Guð­jóns­dótt­ir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sendi Per­sónu­vernd þann 30. jan­úar síð­ast­lið­inn. Bréfið má rekja til athug­unar Per­sónu­verndar á sam­skiptum Sig­ríðar Bjark­ar, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, og Gísla Freys Val­dórs­son­ar, þáver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra. Hægt er að nálg­ast bréfið hér.

Eins og kunn­ugt er braut Sig­ríður Björk lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga er hún miðl­aði grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos til Gísla Freys. Þá er í úrskurði Per­sónu­verndar gerðar alvar­legar athuga­semdir við að miðl­unin hafi farið í bága við kröfur um upp­lýs­inga­ör­yggi, þar sem ekki var beitt sér­stökum ráð­stöf­unum á borð við dulkóðun eða læs­ingu með sterku lyk­il­orði.

Svar Sig­ríðar Bjarkar fyrr­greindu bréfi til Per­sónu­verndar er áhuga­vert hvað þetta varð­ar. Þar seg­ir: „Ekki hefur tíðkast að gera sér­stakar ráð­staf­anir við send­ingu pósta til inn­an­rík­is­ráðu­neytis né hafa tölvu­póstar frá ráðu­neyt­inu verið sér­stak­lega auð­kennd­ir, til dæmis með atbeina raf­rænna skil­ríkja eða þess hátt­ar.“

Auglýsing

Póst­þjónn Stjórn­ar­ráðs­ins studdi ekki dulkóðuð sam­skipti



Í bréfi Sig­ríðar Bjarkar kemur fram að Rík­is­lög­reglu­stjóri reki mið­lægt upp­lýs­inga- og fjar­skipta­kerfi lög­reglu. Net­fjar­skipti á neti lög­regl­unnar séu dulkóðuð og því séu send­ingar á borð við tölvu­pósta dulkóð­aðar á milli starfs­manna innan lög­reglu­nets­ins. Póst­þjónn rík­is­lög­reglu­stjóra er þannig stilltur að við hverja send­ingu á ytri póst­þjón spyr hann mót­að­il­ann hvort hann geti tekið við dulkóð­aðri send­ingu. Ef svarið er já, fer tölvu­póst­ur­inn dulkóð­aður frá einum póst­þjóni til ann­ars. Ef svarið er nei fer hins vegar póst­ur­inn ódulkóð­aður frá póst­þjóni lög­regl­unn­ar.

Eftir fyr­ir­spurn Per­sónu­verndar um öryggi áður­nefndrar póst­send­ingar Sig­ríðar Bjarkar á við­kvæmum per­sónu­upp­lýs­ingum til Gísla Freys, leit­aði Sig­ríður upp­lýs­inga hjá tölvu­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, að því er fram kemur í bréfi henn­ar. „Í ljós kom að póst­þjónn Stjórn­ar­ráðs­ins studdi ekki á þeim tíma dulkóðuð sam­skipti. Slík til­högun varð hins vegar virk hjá þeim síðla árs 2014.“

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None