Markaðsvirði Reita 48 milljarðar - bankar enn stórir hluthafar

hotel-reitir-hilton-1.jpg
Auglýsing

Reit­ir, stærsta fast­eigna­fé­lag lands­ins, lauk hluta­fjár­út­boði sínu á dög­unum og hefur Arion banki umsjón með útboð­inu. Sam­kvæmt til­kynn­ingu félags­ins í morgun varð mikil umfram­eft­ir­spurn í útboð­inu en mark­aðsvirði félags­ins, sam­kvæmt með­al­geng­inu í við­skiptum með bréf­in, nemur um 48 millj­örðum króna.   Bæði almenn­ingi og fag­fjár­festum bauðst að kaupa bréf í félag­inu en nú er ljóst að fjár­festar fá ekki eins mörg bréf og þeir hefðu vilj­að.

Sölu­and­virði nemur 6,4 millj­örðum króna, en um 3.600 fjár­festar ósk­uðu eftir að kaupa hluta­bréf í Reit­um, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá í morg­un. Heild­ar­eft­ir­spurn var 25,5 millj­arð­ar, en Arion banki seldi sem nemur 13,25 pró­sent af heild­ar­hlutafé í félag­inu.

Verð­mætt eigna­safn



Eigna­safn Reita saman stendur af mörgum af verð­mæt­ustu fast­eignum lands­ins.  Mik­il­væg­asta ein­staka eign félags­ins er Kringlan en félagið á einnig margar verð­mætar eignir mið­svæðis í Reykja­vík.  Félagið á stórt eigna­safn í versl­un­ar­hús­næði til við­bótar við Kringl­una, t.d. Holta­garða, Spöng­ina, Mjódd­ina og Eiðis­torg. Þá á félagið t.a.m. tvær stórar Icelandair hót­el­eign­ir; Hilton Reykja­vík hótel og Icelandair Natura.

Til­koma Reita verður annað fast­eigna­fé­lagið sem bæt­ist í hóp ­fé­laga í Kaup­höll­inn­i.  Þar er fyrir fast­eigna­fé­lagið Reg­inn og von er á Eik fast­eigna­fé­lagi í Kaup­höll­ina á næst­unn­i.  Ef allt gengur að óskum verða bréfin í Reitum tekin til við­skipta í Kaup­höll­inni þann 9. apríl næst­kom­andi.

Auglýsing

Fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu Reita lauk end­an­lega fyrir skemmstu og komu nokkrir af helstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins með nýtt hlutafé inní félag­ið. Fjár­hags­lega stendur félagið sterkt eftir þessa end­ur­skipu­lagn­ingu.

Bankar selja lítið

At­hygli vekur að af íslensku bönk­unum er það ein­ungis Arion banki sem selur hlut af sínum eign­ar­hlut í útboð­in­u.  Það teng­ist því lík­lega, án þess að það sé full­yrt hér, að Arion banki er umsjón­ar­að­ili útboðs­ins.  Arion banki átti fyrir um 22% í Reitum en seldi 13,25% í útboð­inu og halda eftir 8,7%. Lands­bank­inn á 17,7% hluta­fjár í Reitum en seldi ekk­ert í útboð­inu. Íslands­banki á 3,9% hlut í Reitum og seldi heldur ekk­ert í útboð­inu. Loks á Glitnir hf (slita­bú) 6,25% hluta­fjár í félag­inu og seldi heldur ekk­ert af sínum hlut.











































































































































































Reitir hf
hluta­fjár­eign bank­anna 16/3/2015
Eign fyrir útboð Eign eftir útboð
Arion banki 21,97% 8,72%
Lands­bank­inn 17,66% 17,66%
Íslands­banki 3,86% 3,86%
Glitnir (+ Haf Fund­ing) 6,25% 6,25%
Sam­tals bankar og slitabú Glitnis 49,74% 36,49%


Í takt við reglur Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins?



Sam­kvæmt til­mælum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins eiga fjár­mála­fyr­ir­tæki að selja eign­ar­hluti í félögum í óskyldum rekstri svo fljótt sem auðið er, en meg­in­reglan í lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki er sú að bankar eigi ekki að stunda óskyldan rekst­ur. Fjár­mála­eft­ir­litið getur síðan veitt und­an­þágur frá laga­á­kvæðum um þetta, og hefur verið dug­legt við það, jafn­vel þó nú séu brátt sjö ár frá hruni og sér­stökum aðstæðum sem þá sköp­uð­ust í kjöl­far­ið, þar sem bankar urðu hlut­hafar í mörgum fyr­ir­tækj­um.

Í ljósi mik­illar umfram­eft­ir­spurnar er aug­ljóst að end­ur­reist­u ­bank­arnir þrír, Arion banki, Lands­bank­inn og Íslands­banki, hefðu allir getað selt mun meira af sínum eign­ar­hlut, en vilja greini­lega freista þess að eiga eigna­hlut­ina leng­ur, og fá meira fyrir þá.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None