Persónuvernd: Lögreglan braut lög með miðlun á Geir Jóns-skýrslunni

m.tm_.li_.jpg
Auglýsing

Per­sónu­vernd hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að skrán­ing per­sónu­upp­lýs­inga um mót­mæl­endur í Bús­á­hald­ar­bylt­ing­unni í lög­reglu­kerfið LÖKE hafi  verið heim­il. Miðlun þeirra upp­lýs­inga, í skýrslu lög­reglu þar sem hægt var að lesa nöfn þeirra sem fjallað var um, sam­rýmd­ist hins vegar ekki lögum nr. 77/2000, um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga.

Per­sónu­vernd kemst að því að öryggi vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga í skýrsl­unni hafi ekki verið nægi­lega tryggt. Því er það nið­ur­staða Per­sónu­verndar að: „sú að skrán­ing per­sónu­upp­lýs­inga um kvar­tendur í upp­lýs­inga­kerfi lög­reglu, LÖKE, hafi verið heim­il. Þá er skrán­ing per­sónu­upp­lýs­inga í þágu sam­an­tek­ar­innar talin heimil hvað varðar þá kvar­tendur sem störf­uðu sem lög­reglu­menn fyrir lög­regl­una en óheimil hvað varðar þá kvar­tendur sem voru við­staddir mót­mæl­in. Loks var miðlun per­sónu­upp­lýs­inga um kvar­tend­ur, sem bar að afmá sam­kvæmt úrskurði úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, ekki talin sam­rým­ast lögum nr. 77/2000."

Nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar í heild sinni má lesa hér.

Auglýsing

Hægt var að sjá afmáðan texta



Skýrslan sem Geir Jón Þór­is­son, fyrrum yfir­lög­reglu­þjónn, skrif­aði um skipu­lag lög­reglu við þau mót­mæli sem fram fóru hér­lendis á árunum 2008 til 2011 var mikið til umfjöll­unar í fyrra­haust eftir að í ljós kom að hægt var að sjá afmáðan texta undir sterku ljósi eða með því að afrita hann í raf­rænni útgáfu skýrsl­unn­ar.

Lög­regl­unni var gert að afhenda ein­tök af skýrsl­unni í kjöl­far nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál um að Eva Hauks­dótt­ir, sem er einn nafn­greindra mót­mæl­enda í skýrsl­unni, ætti rétt á að sjá hana. Í kjöl­farið voru ein­tök send á suma fjöl­miðla. Þau ein­tök voru skömmu síðar inn­kölluð eftir að í ljós kom að hægt var að sjá afmáða text­ann.

Per­sónu­vernd óskaði form­lega eftir skýr­ingum frá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í lok októ­ber 2014 vegna upp­lýs­inga­söfn­unar hennar um ein­stak­linga sem tóku þátt í mót­mælum í byrjun árs 2009. Nú er komin nið­ur­staða í það mál.

Kjarn­inn hefur skýrsl­una umdeildu undir hönd­um. Hana má lesa hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None