Píratar næst stærsti stjórnmálaflokkurinn, Framsókn missir fylgi

Helgi.Hrafn_.8.jpg
Auglýsing

Píratar eru næst stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins sam­kvæmt nýrri könnun Frétta­blaðs­ins. Alls myndu þeir fá 21,9 pró­sent atkvæða ef kosið yrði nú og þing­mönnum flokks­ins fjölga úr þremur í fjórt­án. Í blað­inu er haft eftir Helga Hrafni Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata, að hann gleðj­ist yfir nið­ur­stöð­unum en að hann taki töl­unum með fyr­ir­vara. „Í fyrsta lagi er ekki sjálf­gefið að þetta komi upp úr kjör­kössum og ekk­ert sjálf­gefið að þetta hald­ist. Það er mik­il­vægt að við ofmetn­umst ekk­ert af þessu.“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sem fyrr stærsti flokkur lands­ins og mælist með 28 pró­sent fylgi. Hinn stjórn­ar­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur, heldur hins vegar áfram að daga og mælist nú með 10,1 pró­sent fylgi. Hann fékk 24,4 pró­sent atkvæða í síð­ustu alþing­is­kosn­ing­um.

Lít­ill byr virð­ist vera í seglum ann­arra stjórn­ar­and­stöðu­flokka en Pírata. Sam­fylk­ingin mælist með 16,1 pró­sent fylgi, Vinstri græn með 10,4 pró­sent fylgi og Björt fram­tíð er sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­inni minnsti stjórn­mála­flokkur lands­ins með full­trúa á þingi með 9,2 pró­sent fylgi. Þeir sem myndu vilja kjósa annað eru 4,3 pró­sent.

Auglýsing



Í könn­un­inni var hringt í 1.024 manns þar til 800 svör feng­ust, sam­kvæmt lag­skiptu úrtaki dag­ana 10. og 11. mars. Svar­hlut­falið var því 78,1 pró­sent. Þátt­tak­endur voru valdir með slembi­úr­taki úr Þjóð­skrá. Svar­endur skipt­ust jafnt eftir kyni, og hlut­falls­lega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þing­kosn­inga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er lík­leg­ast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er lík­legra að þú myndir kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn, eða ein­hvern annan flokk? Alls tóku 60,8 pró­sent þeirra sem náð­ist í afstöðu til spurn­ing­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None