Ríkissaksóknari fellur frá ákærulið í LÖKE-málinu svokallaða

14394583361-f669b0db5b-z-1.jpg
Auglýsing

Rík­is­sak­sókn­ari hefur ákveðið að falla frá veiga­mesta ákæru­lið í LÖKE-­máls­ins svo­kall­aða, þar sem lög­reglu­mann­inum Gunn­ari Schev­ing Thor­steins­syni var gefið að sök að hafa flett upp nöfnum 45 kvenna í mála­skrá lög­regl­unnar (LÖKE) og skoðað þar upp­lýs­ingar um kon­urn­ar, án þess að upp­flett­ing­arnar tengd­ust starfi hans sem lög­reglu­manns. Í ákæru máls­ins var Gunnar Schev­ing sak­aður um að hafa þannig mis­notað stöðu sína í því skyni að afla sér upp­lýs­ingar um kon­urn­ar.

Aðal­með­ferð í mál­inu er fyr­ir­huguð á morgun fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur, en eftir stendur ákæru­liður þar sem Gunnar er sak­aður um að hafa miðlað per­sónu­upp­lýs­ingum sem leynt áttu að fara til þriðja aðila.

Tek­inn af lífi í fjöl­miðlum



Málið var tölu­vert til umfjöll­unar í fjöl­miðlum á sínum tíma, en þar var meðal ann­ars greint frá því hvernig Gunnar Schev­ing var hand­tek­inn fyrir framan vinnu­fé­laga sína. Í fjöl­miðlum var einnig látið að því liggja að hann hafi not­fært sér aðgang sinn að upp­lýs­inga­kerfi lög­regl­unnar til að graf­ast fyrir um fórn­ar­lömb kyn­ferð­is­of­beld­is.

Gunn­ar hefur ávallt neitað sök í mál­inu og lög­maður hans Garðar Steinn Ólafs­son hefur haldið uppi harðri gagn­rýni á lög­reglu­rann­sókn máls­ins. Þess má geta að rann­sókn máls­ins var á for­ræði lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum undir stjórn Öldu Hrannar Jóhanns­dótt­ur, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra hjá emb­ætt­inu, og núver­andi aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra hjá lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Alda Hrönn var ráðin án aug­lýs­ingar og starfar nú við hlið Sig­ríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, sem var áður yfir­maður Öldu Hrannar á Suð­ur­nesj­um.

Auglýsing

Sakar lög­reglu um að hafa ekki rann­sakað málið



Garðar Steinn Ólafs­son, lög­maður Gunn­ars Scheving, sakar lög­regl­una á Suð­ur­nesjum um að hafa van­rækt að rann­saka málið til hlítar og segir að það hafi tekið tækni­mann Rík­is­lög­reglu­stjóra einn dag að kom­ast að því að ásak­anir í mál­inu ættu ekki við rök að styðj­ast.

„Fjöl­miðlar virð­ast hafa notið þess að kross­festa sak­lausan mann byggt á leka rann­sak­enda um meinta rann­sókn sína. Nú hefur komið í ljós að það fór aldrei fram rann­sókn. Skjól­stæð­ingur minn var ein­fald­lega bor­inn sökum af aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra og sak­sókn­ari trúði orðum hans um að ásak­an­irnar hefðu verið rann­sak­aðar og að gögn máls­ins styddu þær,“ segir Garðar Steinn í sam­tali við Kjarn­ann.

„Við höfum ítrekað kraf­ist þess að fram­kvæmd yrði rann­sókn á fjar­stæðu­kenndum sam­sær­is­kenn­ingum aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra. Alltaf var við­kvæðið að það hafi verið gert. Svo þegar sak­sókn­ari sett­ist niður til að und­ir­búa aðal­með­ferð í mál­inu hefur hún lesið gögn máls­ins í fyrsta skipti. Þá hefur hún upp­götvað að ákæra hafi verið gefin út á fölskum for­send­um,“ segir Garðar Steinn.

Þá gagn­rýnir hann sak­sókn­ara fyrir að falla ekki líka frá síð­ari ákæru­lið máls­ins, enda hefði slíkt í för með sér veru­lega álits­hnekki fyrir lög­regl­una á Suð­ur­nesj­um.

Kol­brún Bene­dikts­dótt­ir, sak­sókn­ari hjá Rík­is­sak­sókn­ara, hafði ekki svarað fyr­ir­spurn Kjarn­ans um ástæður þess að fallið var frá fyrri ákæru­lið máls­ins, við vinnslu frétt­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None