Ríkissjóður ætlar að byrja að greiða niður hallann á lífeyriskerfinu

Auglýsing

Rík­is­sjóður mun á næsta ári, árið 2016, byrja að greiða á ný inn á upp­safn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar opin­berra starfs­manna. Það verður í fyrsta sinn frá því fyrir hrun sem þetta verður gert og áform eru uppi um að greiða inn á hall­ann árlega næstu árin. Þetta segir Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við Morg­un­blaðið í dag.

Þar er haft eftir Bjarna: "Verði þetta ekki gert mun falla á rík­is­sjóð árleg gjald­færsla upp á um 20 millj­arða eftir um tíu ár. Með þess­ari greiðslu og frek­ari greiðslum á næstu árum er ætl­unin að forða þessu og ýta því lengra inn í fram­tíð­ina."

Vandi sem velt hefur verið á undan



Frá og með þessu ári, 2015, verður byrjað að reikna auknar ævi­líkur Íslend­inga inn í stöðu íslenska líf­eyr­is­kerf­is­ins. Kjarn­inn greindi frá þessu í nóv­em­ber í fyrra. Þar sem Íslend­ingar eru sífellt að verða eldri aukast þar með skuld­bind­ing­arn­ar. Áætlað er að halli opin­bera kerf­is­ins, sem er með rík­is­á­byrgð og er því í raun "skuld" rík­is­ins við greið­endur iðgjalda í opin­bera líf­eyr­is­sjóði, verði vel yfir 700 millj­arða króna eftir þessa breyt­ingu.

­Á­ætlað er að halli opin­bera kerf­is­ins, sem er með rík­is­á­byrgð og er því í raun "skuld" rík­is­ins við greið­endur iðgjalda í opin­bera líf­eyr­is­sjóði, verði vel yfir 700 millj­arða króna eftir þessa breytingu. 

Auglýsing

Þessi skuld er ekki til­greind á rík­is­reikn­ingi, en hún er eitt stærsta vanda­mál sem ríkið stendur frammi fyrir þrátt fyrir það.

Langstærsti hluti þess­arrar skuldar er við B-deildir opin­berra líf­eyr­is­sjóða, að mestu leyti við Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins. Eina leiðin til að takast á við þennan vanda er að ríkið greiði háar upp­hæðir upp í skuld sína á hverju ári. Geri ríkið það ekki safn­ast skuldin ein­fald­lega upp og gerir það að verkum að ríkið þarf að greiða um 20 millj­arða króna á ári í hít­ina eftir um ára­tug. Þær skuldir myndu sem sagt lenda á fram­tíðar skatt­greið­end­um.

Á árunum fyrir hrun var reyndar byrjað að takast á við hall­ann og frá árinu 1999 fram að hruni voru nokkrir millj­arðar króna greiddir árlega til að minn­ka gat­ið. Því var snar­lega hætt eftir hrun og engin þeirra rík­is­stjórna sem setið hafa síðan þá hefur séð til­efni til að byrja á slíkum greiðslum aft­ur. Þangað til að Bjarni gaf út ofan­greinda yfir­lýs­ingu í Morg­un­blað­inu í morg­un.

Líka vanda­mál hjá A-deildum sjóð­anna



Vanda­mál opin­bera líf­eyr­is­kerf­is­ins ligg­ur þó ekki bara hjá B-deild­un­um, heldur líka hjá A-deildum sjóð­anna. Sá halli sem er á þeim er bein­leiðis ólög­leg­ur. Í stað þess að taka á vanda­mál­inu er hins vegar lagt fram  nýtt laga­frum­varp árlega sem heim­ilar opin­beru sjóð­unum að safna meiri halla.

Nú síð­ast var það lagt fram í sept­em­ber 2014. Sam­kvæmt lögum mátti ekki reka A-deild Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna sveit­ar­fé­laga og sömu deild innan Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna ríks­ins með meira en 11 pró­sent halla. Sveita­fé­laga­sjóð­ur­inn var rek­inn með 12,5 pró­sent halla og A-deild LSR með 11,7 pró­sent halla árið 2013.

­Sam­kvæmt lögum mátti ekki reka A-deild Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna sveit­ar­fé­laga og sömu deild innan Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna ríks­ins með meira en 11 pró­sent halla. Sveita­fé­laga­sjóð­ur­inn var rek­inn með 12,5 pró­sent halla og A-deild LSR með 11,7 pró­sent halla árið 2013.

 

Til að takast á við þessa stöðu var svig­rúmið ein­fald­lega hækkað upp í 13 pró­sent með nýju laga­frum­varpi og sá tími sem heim­ilt er að reka sjóð­ina yfir 10 pró­sent halla lengdur úr sex árum í sjö. Árið 2014 var því sjö­unda árið í röð sem A-deild sjóðs­ins er nei­kvæð. Haldi þetta áfram verður sjóð­ur­inn auð­vitað á end­anum tóm­ur.

Vandi sem taka verður á



Þessu verður óhjá­kvæmi­lega mætt á ein­hverjum tíma­punkti með sömu með­ölum og þarf að beita til að vinna á halla almenna líf­eyr­is­kerf­is­ins. T.d. með því að hækka eft­ir­launa­aldur í allt að 70 ár, með því að hækka iðgjöldin sem við borgum til sjóð­anna um hver mán­að­ar­mót og með ein­hvers­konar skerð­ingu rétt­inda, til dæmis með því að dreifa töku líf­eyris á fleiri ár.

Auk þess er yfir­lýstur vilji hjá öllum innan kerf­is­ins að breyta opin­bera kerf­inu til sam­ræmis við það almenna. Erf­ið­lega hefur hins vegar gengið að ná saman um þá breyt­ingu þar sem for­svars­menn þeirra sem eru hluti af opin­bera kerf­inu vilja ekki gefa hinn góða og rík­is­á­byrgða líf­eyri eftir nema að fá eitt­hvað í stað­inn, til dæmis hærri laun.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None