Sádí Arabar leggja 135 milljónir króna í byggingu mosku í Reykjavík

forsetis.d..jpg
Auglýsing

Sádí Arabía ætlar að leggja um eina milljón dala, 135 millj­ónir króna, í bygg­ingu vænt­an­legrar mosku í Reykja­vík. Þetta kemur fram í frétt á vef emb­ættis for­seta Íslands en Ólafur Ragnar Gríms­son átti fund með nýjum sendi­herra Sádí Arabíu hér­lendis í dag.

Nýi sendi­herrann, Ibra­him S.I. Ali­bra­him, afhenti for­seta Íslands trún­að­ar­bréf sitt á Bessa­stöðum í dag og flutti for­set­anum sam­hliða sér­staka kveðju nýs kon­ungs Sádí Arab­íu, Salman bin Abdul­aziz Al Saud.

Í frétt á vef emb­ættis for­seta Íslands segir enn­frem­ur: "Rætt var um áhuga íslenskra aðila á að kanna jarð­hita í Sádi Arab­íu, einkum með til­liti til kæl­ingar húsa. Fjallað var um þróun mála í Mið-Aust­ur­löndum og vax­andi átök á svæð­inu. Þá greindi sendi­herr­ann frá því að Sádi Arabía styddi bygg­ingu vænt­an­legrar mosku í Reykja­vík, myndi leggja fram rúm­lega eina milljón Banda­ríkja­dala til bygg­ingar hennar og að hann hefði í gær skoðað lóð­ina þar sem moskan myndi rísa."

Auglýsing

Sprengdu upp sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar



Um­ræðan um bygg­ingu mosku í Reykja­vík hefur verið afar eld­fim hér­lend­is. Átta dögum fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2014 var haft eftir Svein­björgu Birnu Svein­björns­dótt­ur, odd­vita Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í Reykja­vík, að „á meðan við erum með þjóð­kirkju eigum við ekki að úthluta lóðum undir hús eins og moskur eða kirkjur fyrir grísku rét­trún­að­ar­kirkj­una“. Í við­tali við Vísi sagð­ist hún hafa „búið í um eitt ár í Sádí Arabíu og byggi þessa skoðun mína ekki á for­dóm­um, heldur reynslu.“

Í kjöl­farið var lýst yfir stuðn­ingi við Fram­sókn­ar­flokk­inn á Face­book síðu sem bar nafnið „Mót­mælum mosku á Ísland­i“. Fylgi flokks­ins jókst mikið þessa síð­ustu daga fyrir kosn­ing­arnar og flokk­ur­inn fór úr því að mæl­ast með án borg­ar­full­trúa í að ná tveimur slíkum inn í borg­ar­stjórn.

Umræðan fór síðan aftur á flug snemma á þessu ári þegar í ljós kom að Fram­sókn og flug­vall­ar­vinir hefðu skipað Gústaf Níels­son, sagn­fræð­ing og yfir­lýstan and­stæð­ing bygg­ingar mosku í Reykja­vík, sem vara­mann í mann­réttinda­ráð borg­ar­inn­ar. Skipan hans var dregin til baka nokkrum klukku­stundum síð­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None