Sigmundur Davíð: „Brá mjög“ að heyra af morðinu á Nemtsov

9951275365_06d0a92bd6_z.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra syrgir rúss­neska stjórn­ar­and­stæð­ing­inn Boris Nemtsov á Face­book síðu sinni, og seg­ist von­ast til þess að morðið á honum verði til þess að vekja athygli á mik­il­vægi frjáls­lynd­is, friðar og frels­is.

Sig­mundur Davíð reyndi að fá Nemtsov til Íslands á tíunda ára­tugnum til þess að halda fyr­ir­lest­ur, en að því varð ekki. Hann segir hann hafa verið ein­stakan prinsipp­mann sem hafi ekki látið „hræða sig frá því að lýsa skoðun sinni og vekja umræðu um mál sem aðrir töldu að ekki mætti ræða“.











Mér brá mjög að heyra að rúss­neski stjórn­mála­mað­ur­inn Borís Nemtsov hefði verið myrtur í gær­kvöldi. Ég hef fylgst með Nemtsov í meira en 20 ár og var mik­ill aðdá­andi hans á tíunda ára­tugn­um.

Nemtsov var ein­stakur prinsipp­maður sem lét aldrei hræða sig frá því að lýsa skoðun sinni og vekja umræðu um mál sem aðrir töldu að ekki mætti ræða. Nemtsov var snill­ingur á sviði eðl­is­fræði og stærð­fræði og hóf starfs­feril sinn sem vís­inda­mað­ur­. Ungur varð hann mik­ils­virtur upp­finn­inga­maður og rit­aði fjöl­margar fræði­grein­ar.

Auglýsing

Eftir Tsjernobíl-slysið 1986 fór hann að láta til sín taka í stjórn­málum og leiddi árang­urs­ríka bar­áttu gegn bygg­ingu kjarn­orku­vers í heima­hér­aði sínu. Hann lagði svo til atlögu við valda­kerfi komm­ún­ista­flokks Sóví­et­ríkj­anna og bauð sig fram til þings sem umbótasinni sem tal­aði óhikað fyrir frelsi og lýð­ræð­i­svæð­ingu. Hann náði ekki kjöri í fyrstu til­raun en ári seinna var hann kjör­inn á þing rúss­neska sóvétlýð­veld­is­ins.

Í því kjöri hafði hann betur gegn gamla ,,flokksapparati“ Komm­ún­ista­flokks­ins. Ári seinna liðu Sóví­et­ríkin undir lok og Nemtsov varð ötull umbótasinni í hinu nýja Rúss­landi sem þing­mað­ur, hér­aðs­stjóri, aðstoð­ar­for­sæt­is­ráð­herra og flokks­for­mað­ur.

Um miðjan tíunda ára­tug­inn skrif­aði ég Borís Nemtsov bréf og kann­aði hvort hann gæti hugsað sér að koma til Íslands og halda fyr­ir­lest­ur. Því miður varð ekki af því en mér til ánægju náði Nemtsov mik­illi hylli í heima­land­inu um það leyti og var tal­inn lík­legur til að verða kjör­inn for­seti Rúss­lands árið 2000. Það breytt­ist með rúss­nesku fjár­málakrís­unni 1998 en Nemtsov hélt áfram bar­áttu sinni fyrir umbótum og friði.

Ekki náði ég að hitta Borís Nemtsov þótt við höfum verið for­menn syst­ur­flokka en þraut­segja hans verður áfram mik­il­væg hvatn­ing og von­andi mun þessi sorg­legi atburður verða til að vekja athygli á mik­il­vægi frjáls­lynd­is, friðar og frels­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None