Sigmundur Davíð: "Furðulegt hvað menn æsa sig sumir"

9951303834-6436720f14-z.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að það sé ,,f­urðu­legt hvað menn æsa sig sumir og reyna að flækja mál sem er í raun sára­ein­falt", og á þar við stöðu umsóknar Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu. Það sé ó­heið­ar­legt að við­halda stöðu umsókn­ar­rík­is. Íslend­ingar vilji ekki aðild.

Hann segir að það hafi ekki verið Alþingi, og þaðan af síður þjóð­in, sem sótti um aðild að sam­band­inu. "Það var síð­asta rík­is­stjórn sem gerði það og það gerði hún með ýmsum fyr­ir­vörum, m.a. áskildu þau sér rétt til að slíta við­ræð­unum á hvaða stigi sem væri." Þetta er haft eftir honum í Morg­un­blað­inu í dag.

Til­efnið er bréf Gunn­ars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra til Evr­ópu­sam­bands­ins um að Ísland vilji ekki lengur vera skil­greint sem umsókn­ar­ríki að sam­band­inu. Líkt og Kjarn­inn greindi frá í gær lítur Evr­ópu­sam­bandið ekki svo á að umsókn Íslands hafi verið dregin til baka þrátt fyrir bréf­ið. Því er Ísland enn flokkað sem umsókn­ar­ríki.

Auglýsing

Ekki heil brú



Sig­mundur Davíð segir þann ­meiri­hluti sem hafi sam­þykkt umsókn­ina um aðild á þingi hafa verið þving­aðan og núver­andi þing styðji hana ekki. " Verk­beiðni síð­asta þings til síð­ustu rík­is­stjórnar hefur aug­ljós­lega ekk­ert gildi fyrir nýja rík­is­stjórn. Ef sú væri raunin gæti núver­andi meiri­hluti skuld­bundið öll þing fram­tíð­ar. Það væri aug­ljós­lega ekki lýð­ræð­is­leg­t,« skrifar Sig­mundur Dav­íð.»Þá stendur bara eftir spurn­ing­in: dettur ein­hverjum í hug að það sé sann­gjarnt að ætl­ast til þess að núver­andi rík­is­stjórn, sem er alfarið and­víg aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, lýsi því yfir að hún vilji sækj­ast eftir aðild og taki að sér að klára það sem síð­asta rík­is­stjórn sigldi í strand?

Sem­sagt, finnst ein­hverjum raun­hæft að ætl­ast til þess að ný rík­is­stjórn láti stjórn­ast af þving­aðri ályktun síð­asta þings og það meira að segja án þess að njóta þeirra fyr­ir­vara sem síð­asta rík­is­stjórn þó tók sér þegar hún áskildi sér rétt til að slíta hvenær sem væri. Það er ekki heil brú í að halda því fram að það hvíli enn meiri skylda á nýrri rík­is­stjórn sem er á móti aðild en rík­is­stjórn­inni sem sótti um og sagð­ist geta slitið hvenær sem væri.

Gleymum því ekki að það að vera umsókn­ar­ríki er yfir­lýs­ing um vilja til að ganga í ESB. Það vilja Íslend­ingar ekki, og lái þeim hver sem vill, og það vill rík­is­stjórnin ekki. Þess vegna væri óheið­ar­legt að við­halda stöðu umsókn­ar­rík­is. Afstaðan er skýr: Við viljum ekki ganga í ESB og af því leiðir að við viljum ekki sækj­ast eftir því að ganga í ESB."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None