Sigmundur Davíð segir mikilvægt að leynd ríki um losun hafta

9951285886-15087b1b43-z-1.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er enn þeirrar skoð­unar að áætlun um losun fjár­magns­hafta eigi að vera leyni­leg svo hún verði ekki skemmd. Erlendir kröfu­hafar hafi mikla hags­muni af því að nálg­ast upp­lýs­ingar um afstöðu stjórn­valda til að geta hámarkað end­ur­heimtir sín­ar. Þetta kom fram í svari hans við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn frá Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­manns Vinstri grænna, um málið á Alþingi í dag.

„Þegar menn spila sókn­ar­bolta þá byrja þeir ekki á að kynna sókn­ar­á­ætl­un­ina fyrir gagn­að­il­an­um,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra. Hann spurði síðan sjálfan sig um hvort að það væri raun­veru­lega um keppni að ræða í þessu máli, hvort erlendir kröfu­hafar væru gagn­að­ilar í því. Sig­mundur Davíð svar­aði spurn­ing­unni síðan svona:  „Því verð ég að svara ját­and­i“. Að minnsta kosti hluti kröfu­hafa væru eðli­lega að gæta þeirra miklu hags­muna sem þeir ættu undir og væru aðrir hags­munir en íslensku þjóð­ar­inn­ar.

Opnun gæti skemmt stöð­una



Katrín spurði hvort ekki væri mik­il­vægt að áætlun um losun hafta og áætlun um hvað taki við eftir að slík skref verði stigin yrðu opin­ber. Hún rifj­aði upp að Sig­mundur Davíð hefði áður sagt að hann væri þeirrar skoð­unar að þessar áætl­anir ættu að vera leyni­leg­ar.

Sig­mundur Davíð svar­aði því til að  „eins og hátt­virtur þing­maður veit eru um gríð­ar­lega hags­muni að ræða“.  Er­lendir kröfu­hafar hefðu ráðið lög­menn, almanna­tengla og fleiri til að gæta þeirra hags­muna. Meðal þess sem þeir leggi áherslu á sé að fal­ast eftir upp­lýs­ingum um afstöðu stjórn­valda til hafta­los­unar til að geta hámarkað end­ur­heimtir sínar og um leið veikt stöðu Íslands í mál­inu.  „Ég er enn sömu skoð­unar og ég var á síð­asta ári [...]að mik­il­vægt sé að þessi vinna verði ekki gerð opin­ber fyrr en hún er komin á það stig að ekki sé hætta á því að hún verði skemmd,“ sagði Sig­mundur Dav­íð.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None