Skattsvikarar fá eitt ár til að skila skattaundanskotum

Auglýsing

Starfs­hópur sem skip­aður var í byrjun des­em­ber til að skoða hvort lög­festa eigi svo­kall­að­aðar „grið­ar­regl­ur“ fyrir þá sem hafa skotið eignum utan skatti kjósi þeir að greiða skatta­skuld sína hefur skilað nið­ur­stöðu sinni. Til­lögur hóps­ins eru ann­ars vegar í formi draga að frum­varpi um „grið­ar­regl­ur“ og hins vegar í formi grein­ar­gerðar um laga­heim­ildir skatta­yf­ir­valda til að sporna gegn skattsvikum og ábend­ingum um úrbætur á þeim laga­heim­ild­um.

Í drög­unum að laga­frum­varpi um málið segir að þeir sem kjósi að nýta sér „grið­ar­regl­urn­ar“ geti frá fyrsta júlí næst­kom­andi og út júní á næsta ári til að skila skattaund­anskotum sín­um. Geri þeir það munu þeir ekki þurfa að sæta refs­ingu.

Listi yfir það sem má skoða betur



Í frum­varps­drög­unum stend­ur: „Hver sá skatta­að­ili sem á tíma­bil­inu frá 1. júlí 2015 til 30. júní 2016 óskar að eigin frum­kvæði eftir leið­rétt­ingu á álögðum opin­berum gjöldum vegna ófram­tal­inna tekna eða eigna erlendis skal ekki sæta þeim refs­ingu sem mælt er fyrir í 109. gr. Ákvæði 1. mgr. á ekki  við ef þegar er hafið skatta­eft­ir­lit, skatt­rann­sókn eða lög­reglu­rann­sókn á fram­tals­skilum skatta­að­il­ans vegan tekna eða eigna erlend­is. Hið sama gildir ef rann­sókn er hafin á skatta­að­ila á grund­velli laga nr. 64/2006, um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka“.

Í grein­ar­gerð hóps­ins er listað upp það sem hópnum finnst að þurfi að skoða betur í þessum málum hér­lend­is. Þar segir að nýta eigi nið­ur­stöðu vinnu hjá OECD, breyta lögum vegna inn­leið­ingar á sam­ræmdum upp­lýs­inga­staðli OECD, berj­ast gegn kenni­tölu­flakki, auka sam­vinnu rík­is­skatt­stjóra og inn­heimtu­manna rík­is­ins, auka sam­vinnu vegna bóta­svika, auka sam­vinnu vegna pen­inga­þvætt­is­mála sem tengj­ast skattsvikum og toll­krít.

Auglýsing

Hóp­ur­inn skip­aður í byrjun des­em­ber



Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra tók ákvörðun um að skipa starfs­hóp­inn í byrjun des­em­ber 2014. Í hópnum eru Ása Ögmunds­dótt­ir, lög­fræð­ing­ur, Guð­rún Jenný Jóns­dóttir lög­fræð­ingur til­nefnd af Skatt­rann­sókn­ar­stjóra, Lísa K. Yoder lög­fræð­ingur til­nefnd af Skatt­rann­sókn­ar­stjóra, og Guðni Ólafs­son við­skipta­fræð­ing­ur.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu sem send var út vegna skip­unar hóps­ins átti hann að skila nið­ur­stöðum eigi síðar en 15. febr­ú­ar. Hann fékk síðar við­bót­ar­frest til dags­ins í dag að skila nið­ur­stöðum sín­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None