Utanríkisráðuneytið vill ekki auglýsa sendiherrastöður

10841791_882152258474709_8266369715428372478_o.jpg
Auglýsing

Utan­rík­is­ráðu­neytið leggst gegn því að lögum um utan­rík­is­þjón­ustu verði breytt þannig að aug­lýsa þurfi stöður sendi­herra. Þetta kemur fram í svörun ráðu­neyt­is­ins til Rík­is­end­ur­skoð­un­ar, sem hvetur ráðu­neytið í nýrri skýrslu til að beita sér fyrir því að stöður sendi­herra verði aug­lýst­ar.

Í lögum um utan­rík­is­þjón­ust­una er veitt heim­ild til þess víkja frá meg­in­reglu um aug­lýs­inga­skyldu fyrir stöðu sendi­herra. „­Rík­is­end­ur­skoðun hvetur utan­rík­is­ráðu­neyti til að beita sér fyrir því að heim­ild til að víkja frá meg­in­reglu um aug­lýs­inga­skyldu fyrir stöðu sendi­herra verði felld úr lögum um utan­rík­is­þjón­ustu Íslands og stuðla þannig að auknu gagn­sæi, jafn­ræði og vand­aðri stjórn­sýslu við skip­anir í stöðu sendi­herra,“ segir í skýrslu sem Rík­is­end­ur­skoðun hefur birt, en hún fjallar um rekstur og starf­semi sendi­skrif­stofa Íslands. Rík­is­end­ur­skoðun setur þar fram fimm ábend­ingar til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, og und­an­þága vegna aug­lýs­inga er ein þeirra.

Flutn­ings­skylda og fram­gangs­kerfi í gildi



Ut­an­rík­is­ráðu­neytið fékk að svara ábend­ing­unum og birt­ast svör þess í skýrsl­unn­i. Þar kemur fram að vegna flutn­ings­skyldu og fram­gangs­kerfis sem sé við lýði í utan­rík­is­þjón­ust­unni telji ráðu­neytið mik­il­vægt að und­an­þága frá aug­lýs­inga­skyldu vegna starfa sendi­herra verði áfram í gildi.

Starfs­menn í utan­rík­is­þjón­ustu eru flutn­ings­skyldir sam­kvæmt lögum „og innan hennar er fram­gangs­kerfi byggt á lög­un­um. ­Flutn­ings­skyldan gerir það að verkum að fram­gangur starfs­manna hennar er ólíkur því sem ger­ist í öðrum opin­berum stofn­un­um,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins. Þar kemur fram að fjölgun í utan­rík­is­þjón­ust­unni eigi sér stað með því að laus störf séu aug­lýst sam­kvæmt regl­um, og starfs­menn séu ráðnir til starfa í sam­ræmi við nið­ur­stöðu ráðn­ing­ar­ferl­is. Almennt sé fólk ráðið sem hafi nýlega hafið starfs­feril að loknu námi og þjálfun til fram­tíð­ar­starfa í utan­rík­is­þjón­ustu bygg­ist meðal ann­ars á þessum fyrstu árum, og fólk geti svo vænst fram­gangs í starfi.

Auglýsing

Þá er rétt að taka fram að starfs­maður sem kemur til álita að hljóti fram­gang í emb­ætti sendi­herra hefur þegar sótt um laust aug­lýst starf, þ.e. við upp­haf starfs­fer­ils síns.

„Fram­gangur til að gegna emb­ætti sendi­herra getur t.d. komið til þegar starfs­maður í sendi­herra­stöðu hefur töku eft­ir­launa og reyndur diplómat er skip­aður í sendi­herra­stöðu í stað­inn. Þegar sú staða er uppi, telst emb­ætti sendi­herra ekki laust í skiln­ingi laga og reglna þannig að skylda til aug­lýs­ingar vakni. Þá er rétt að taka fram að starfs­maður sem kemur til álita að hljóti fram­gang í emb­ætti sendi­herra hefur þegar sótt um laust aug­lýst starf, þ.e. við upp­haf starfs­fer­ils síns.“

Að jafn­aði ekki sótt út fyrir utan­rík­is­þjón­ust­una



Ráðu­neytið segir að að jafn­aði sé ekki sótt út fyrir utan­rík­is­þjón­ust­una þegar skipað er í sendi­herra­stöður og stærstur hluti sendi­herra séu með reynslu­meiri starfs­mönnum sem hafi byggt upp „stað­góða þekk­ingu á sviði alþjóða­sam­skipta og stjórn­mála, starfi alþjóða­stofn­ana og milli­ríkja­við­skipta á löngum tíma.“

Hins vegar sé hægt að öðl­ast sam­bæri­lega reynslu úr öðrum störfum og þá reynslu beri að meta eins og aðra. „­Sendi­herra­efni utan raða utan­rík­is­þjón­ust­unn­ar, t.d. úr stjórn­mál­um, við­skipta- og menn­ing­ar­lífi, búa yfir mik­illi reynslu af sam­bæri­legum störf­um, hafa ríka þekk­ingu á alþjóða­málum og eru góð við­bót við mannauð ráðu­neyt­is­ins.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None