„Við erum í klassa fyrir ofan Kasakana og vinnum þá 2-0“

9954443664-2a382dd2b2-z.jpg
Auglýsing

Tölu­verð eft­ir­vænt­ing ríkir fyrir viður­eign íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta við lands­lið Kasakstan í for­keppni Evr­ópu­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu sem fram fer í dag. Leik­ur­inn verður háður í Astana, höf­uð­borg Kasakstan, og hefst klukkan 15:00 og verður í beinni sjón­varps­út­send­ingu á RÚV. Upp­hitun fyrir viður­eign­ina hefst hálf­tíma fyrir leik.

Lands­liðið hefur aldrei byrjað for­keppni fyrir stór­mót í fót­bolta jafn vel og nú. Liðið situr í öðru sæti A-rið­ils með níu stig eftir fjóra leiki, þremur stigum á eftir topp­liðið Tékka og þremur stigum betur en stjörnu­prýtt lands­lið Hol­lend­inga, sem situr í þriðja sæt­inu með sex stig. Þar að auki er íslenska lands­liðið með bestu marka­töl­una í riðl­in­um, með sjö mörk í plús, hefur skorað níu mörk og fengið á sig tvö. Sjálft Evr­ópu­meist­ara­mótið fer fram í Frakk­landi næsta sum­ar.

Mikil spenna í stuðn­ings­sveit lands­liðs­ins



Tólfan, stuðn­ings­sveit íslenska lands­liðs­ins í fót­bolta, ætlar að hitt­ast á Ölver klukkan eitt til að hita upp fyrir leik­inn. Styrmir Gísla­son, fyrr­ver­andi for­maður Tólf­unn­ar, annar stofn­enda og and­legur leið­togi stuðn­ings­sveit­ar­inn­ar, á von á fjöl­menni á Ölver í dag. „Ég er viss um að við smekk­fyllum stað­inn. Menn eru orðnir þyrstir eftir vet­ur­inn að hitt­ast og gera eitt­hvað skemmti­legt, þannig að ég á von á hörku mæt­ing­u,“ segir Styrmir í sam­tali við Kjarn­ann.

Mikil spenna ríkir fyrir leiknum á meðal stuðn­ings­manna íslenska karla­lands­liðs­ins, eins og áður seg­ir, en kom aldrei til greina að hluti þeirra færi með til Kasakstan? „Það kom vel til greina og nokkrir grjót­harðir voru með alla anga úti að reyna að koma sér og sínum út til Kasakst­an. Þeir ­gáfust hins vegar upp á því á end­an­um, þegar þeir sáu hvað ferða­lagið yrði langt og kostn­að­ar­samt. Þannig að menn ákváðu bara að spara sig í stað­inn fyrir næsta úti­leik gegn Hol­lend­ing­um, og ég get alveg lofað því að það verður eitt­hvað svaka­legt.

Auglýsing

Skyldu­sig­ur, ekki spurn­ing



Leik­ur­inn í dag er gríð­ar­lega mik­il­vægur fyrir lands­lið­ið, ætli það að vera áfram með í bar­átt­unni um að kom­ast á stór­mót í fót­bolta í fyrsta skipti í sögu karla­lands­liðs­ins. „Leik­ur­inn leggst mjög vel í mig og ég hef hörku trú á þessu,“ segir Styrmir aðspurður um hvort ekki sé um að ræða skyldu­sigur hjá íslenska lands­lið­inu. „Þjálf­ar­inn hefur sjálfur gefið út að þetta sé skyldu­sig­ur, og ég er sam­mála hon­um. Þegar maður lítur á liðin þá finnst manni að við eigum að vinna þá. Ég veit alveg að það er erfitt að fara á svona úti­völl, en ég held bara að við séum klassa fyrir ofan Kasak­ana. Við eig­um, ef allt er eðli­legt, að vinna þennan leik. Auð­vitað getur alltaf komið eitt­hvað óvænt upp á, en ég er þægi­lega bjart­sýnn fyrir þennan leik,“ segir Styrmir og spáir Íslandi 0-2 sigri gegn Kasakst­an.









Leik­dagur í Astana. Létt hreyf­ing í hàdeg­inu. Allir klàr­ir.

Posted by KSÍ - Knatt­spyrnu­sam­band Íslands on 27. mars 2015







„Eigum heima á stóra svið­inu“



Ef Ísland sigrar leik­inn í dag, verður lands­liðið komið í ansi væn­lega stöðu. „Ef við vinnum þá erum við auð­vitað komnir í fárán­lega góða stöðu. Ég við­ur­kenni fús­lega að mér leist ekki á blik­una þegar ég sá riðil­inn okkar fyrst, og það var sér­stak­lega svekkj­andi í ljósi þess hvað við vorum nálægt því að kom­ast á síð­asta stór­mót að fá svona riðil. En strák­arnir hafa bara verið ótrú­leg­ir, sem og þjálf­ar­arnir og allt teymið í kringum lið­ið, og við ætlum bara samt að rúlla þessum riðli upp.

Í við­tali við Kjarn­ann í aðdrag­anda viður­eignar Íslands og Hollands, sem fram fór á Laug­ar­dals­velli þann 13. októ­ber síð­ast­lið­inn, full­yrti Styrmir að íslenska karla­lands­liðið væri á leið­inni á stór­mót í fyrsta skiptið í sög­unni. „Ég er enn gall­harður á því. Ég bara veit að við erum að fara á stór­mót í fyrsta skiptið núna. Við erum bara með það gott lið að það á heima á stóra svið­in­u,“ segir Styrmir víg­reifur í sam­tali við Kjarn­ann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None