Vímuefnalöggjöf á villigötum

Ingvar Þór Björnsson og Inga Björk Bjarnadóttir
fangelsi3.jpg
Auglýsing

Á nýliðnum lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar sam­þykktu fund­ar­með­limir til­lögu Ungra jafn­að­ar­manna um að horfst verði í augu við þá stað­reynd að refsirammi vímu­lög­gjaf­ar­innar sé of strangur og sé ekki til þess fall­inn að hjálpa fólki sem stríðir við vímu­efna­vanda. Þar af leið­andi ætti varsla neyslu­skammta fíkni­efna ekki að vera refsi­verð og auknu fjár­magni að vera veitt í for­varnir og fræðslu í stað umfangs­mik­ils eft­ir­lits með neyt­end­um.

Árið 1997 sam­þykktu rík­is­stjórn Íslands og Reykja­vík­ur­borg stefnu­mörkun sem bar yfir­skrift­ina „Vímu­efna­laust Ísland árið 2002“. Það er ljóst hvernig til hefur tek­ist og erum við jafn­vel fjær mark­mið­inu nú en árið 1997. Því liggur það í augum uppi að ríkj­andi stefna, refsi­stefn­an, gengur ekki upp og brýn nauð­syn er að skoða aðrar leiðir sem gætu leitt til breyt­inga til batn­aðar er varða þessi mál­efni.

Auglýsing


Núver­andi refsi­stefna í fíkni­efna­málum hefur ekki reynst árang­urs­rík við að draga úr neyslu fíkni­efna eða koma neyt­endum sem vilja bata til aðstoð­ar. Þá hlýtur það að telj­ast bein­línis órétt­látt, að fyrir vörslu neyslu­skammta fíkni­efna, lendi fólk á saka­skrá sem tak­marki mjög atvinnu­tæki­færi þess og ferða­frelsi til fram­búð­ar. Rann­sóknir sýna að þeir sem eiga við félags­leg, heilsu­fars­leg eða per­sónu­leg vanda­mál að etja eru mun lík­legri til að verða fíkn að bráð. Gríð­ar­lega mik­il­vægt er því að líta á fíkni­efna­neyslu sem vel­ferð­ar- og heil­brigð­is­mál fremur en sem dóms­mál. Gera þarf neyt­endum kleift  að leita sér aðstoðar án ótta um gríð­ar­háar sektir og skert lífstæki­færi.



Skilj­an­legt er að það heyr­ist í gagn­rýn­is­röddum þegar rætt er um að afnema refsi­stefn­una og afglæpa­væða fíkni­efni ein­fald­lega vegna þess að við erum að stíga skref inn á áður óþekktar brautir er varða þessi mál. Reynslan er þó með ein­dæmum góð. Afglæpa­væð­ing er ekki lík­leg til að auka neyslu, né þarf afglæpa­væð­ing að gefa það til kynna að fíkni­efna­neysla sé sam­fé­lags­lega sam­þykkt, svo lengi sem öfl­ugt fræðslu- og for­varn­ar­starf fari fram með­fram var­færn­is­legum skrefum í átt til afglæpa­væð­ing­ar. Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin lagði til ekki alls fyrir löngu að afglæpa­væða einka­neyslu á fíkni­efnum og í nýrri skýrslu frá Sam­ein­uðu þjóð­unum er mælst til þess sama . Þessi leið hefur verið farin í fjöl­mörgum löndum og sífellt bæt­ist í hóp þeirra landa sem afglæpa­væða einka­neyslu fíkni­efna og er nið­ur­staðan ávallt jákvæð.



Nauð­syn­legt er að átta sig á að refsi­stefnan er ekki að virka og að finna þurfi aðra leið í þessum mál­um. Tökum fíklana frekar inn í heil­brigð­is­kerfið og hjálpum þeim að vinna bug á fíkn­inni fremur en að refsa neyt­endum og fara með þá inn í dóm­kerfið sem dregur hvorki úr neyslu né nei­kvæðum áhrifum fíkni­efna­mis­notk­un­ar.



Höf­undar eru stjórn­ar­menn í Ungum jafn­að­ar­mönn­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None