Aurum-málið fer aftur fyrir Héraðsdóm, fyrri niðurstaða ómerkt

14087944054-ed1c1a2832-o-1.jpg
Auglýsing

Aur­um-­málið svo­kall­aða fer aftur fyrir hér­aðs­dóm. Hæsti­réttur Íslands kvað upp þá nið­ur­stöðu sína í dag og féllst þar með á ómerk­ing­ar­kröfu sak­sókn­ara í mál­inu.  Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari hafði kraf­ist ómerk­ingar á með­ferð máls­ins fyrir hér­aðs­dómi, þar sem allir sak­born­ingar voru sýkn­að­ir, á grund­velli þess að einn með­dóm­ari máls­ins hefði verið van­hæfur til að fjalla um það. Um­ræddur með­dóm­ari er Sverrir Ólafs­son, fjár­mála­verk­fræð­ing­ur, en hann er bróðir Ólafs Ólafs­son­ar, kenndur við Sam­skip, sem hlaut þungan fang­els­is­dóm vegna aðildar sinnar að Al-T­hani flétt­unni svoköll­uðu.

Sak­born­ingar í Aur­um-­mál­inu, þeir Lárus Weld­ing, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitn­is, Magnús Arnar Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrrum aðal­eig­andi Glitn­is, og Bjarni Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóri bank­ans, voru allir sýkn­aðir af ákæru sér­staks sak­sókn­ara um umboðs­svik í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 5. júní síð­ast­lið­inn. Einn dóm­ari máls­ins, Arn­grímur Ísberg, skil­aði sér­at­kvæði og taldi að sak­fella ætti Lárus, Magnús Arnar og Jón Ásgeir.

Hæsti­réttur seg­ir rétt að draga óhlut­drægni í efa



Eftir að nið­ur­staða hér­aðs­dóms í Aur­um-­mál­inu lá fyrir komust fjöl­miðlar á snoðir um að Sverrir og Ólafur væru bræð­ur. Þeir spurðu Ólaf Þór Hauks­son, sér­stakan sak­sókn­ara, hvort hann hefði vitað af þeim tengsl­um, sem hann neit­aði. Í kjöl­far­ið, nánar til­tekið 9. júní 2014, ræddi frétta­stofa RÚV við Sverri. Í frétt hennar sagði hann: „Ég fór til dóm­ar­ans, Guð­jóns St. Mart­eins­son­ar, sagði honum frá tengslum mín­um. Hann taldi að það væru ekki vand­kvæði á því að ég tæki þetta að mér … Ég trúi því ekki í eina sek­úndu að sér­stakur sak­sókn­ari hafi ekki vitað af mínum tengslum strax í upp­hafi. Ef hann vissi ekki af mínum tengsl­um, þá ber það vott um afskap­lega léleg og yfir­borðs­kennd vinnu­brögð. Mér finnst við­brögð hans, sko, hæpin og mér finnst þetta bera vott um örvænt­ing­ar­fullar og jafn­vel óheið­ar­legar aðgerð­ir. Og hann grípur til þeirra á erf­iðum tímum þegar að trú­verð­ug­leiki hans stofn­unar er eig­in­lega í mol­u­m.“

Í sjón­varps­fréttum saman kvöld bætt­ust eft­ir­far­andi ummæli Sverris við frétt­ina: "„Ég trúi því fast­lega að sér­stakur sak­sókn­ari hafi vitað allan tím­ann hver ég var, hann telji það hins vegar kost að full­yrða núna að hann hafi ekki vitað það. Það laum­ast að mér sá grunur að sak­sókn­ari sé í raun­inni að gera þetta til þess að veikja dóm­inn.“

Auglýsing

Í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar segir að hann telji "óhjá­kvæmi­legt að virtum atvikum máls­ins að líta svo á að ummæli með­dóms­manns­ins gæfu til­efni til að draga með réttu í efa að hann hefði verið óhlut­drægur í garð ákæru­valds­ins fyrir upp­kvaðn­ingu hér­aðs­dóms­ins."

Ómerk­ing lá í loft­inu



Kjarn­inn greindi frá því fyrr í dag að yfir­gnæf­andi líkur væru á því að Hæsti­réttur Íslands myndi vísa Aur­um-­mál­inu í heild sinni aftur til með­ferðar í Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur. Boðuð dóms­upp­saga í mál­inu í Hæsta­rétti í dag, þótti benda sterk­lega til þess.

Aðal­með­ferð ­fyrir Hæsta­rétti laut ein­vörð­ungu að ómerk­ing­ar­kröfu rík­is­sak­sókn­ara. Áður en mál­flutn­ingur hófst var verj­endum og sak­sókn­ara til­kynnt um að það yrði aðeins boðað til dóms­upp­kvaðn­ingar ef fall­ist yrði á kröfu ákæru­valds­ins um ómerk­ingu og heim­vís­un. Ella myndi málið halda áfram fyrir Hæsta­rétti og boðað yrði til mál­flutn­ings um málið í heild sinni.

Snýst um sex millj­arða króna lán til eign­ar­laus félags



Málið snýst um sex millj­arða króna lán­veit­ingu til félags­ins FS38 í júlí 2008. Lánið var veitt til að fjár­magna kaup FS38, eign­ar­laust félag í eigu Pálma Har­alds­son­ar, á 25,7 pró­sent hlut Fons hf., líka í eigu Pálma, í Aurum Hold­ing Limited. Hluti láns­ins, einn millj­arður króna, var ráð­stafað inn á per­sónu­legan banka­reikn­ing Jóns Ásgeirs. Hann nýtti þann millj­arð síðan í að borga meðal ann­ars 705 millj­óna króna yfir­drátt­ar­heim­ild sína hjá Glitni. Sér­stakur sak­sókn­ari vill meina að Jón Ásgeir hafi þannig fengið hlut í ávinn­ingi af brot­inu og notið hagn­að­ar­ins.

Sér­stakur sak­sókn­ari fór fram á sex ára fang­elsi yfir Lárusi Weld­ing þegar málið var flutt í hér­aði og fjög­urra ára fang­elsi yfir þeim Jóni Ásgeiri, Magn­úsi Arn­ari og Bjarna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None