Bankasýsla ríkisins verður lögð niður og ráðherra veitt vald til að einkavæða banka

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Banka­sýsla rík­is­ins verður lögð niður og eign­ar­hlutir rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum færðir undir fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Hann á að setja sér­staka eig­anda­stefnu rík­is­ins sem tekur til þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem ríkið á eign­ar­hluti í, skipa þriggja manna ráð­gjaf­ar­nefnd, án til­nefn­inga, til að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð þeirra eign­ar­hluta. Þetta kemur fram í frum­varpi til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem útbýtt á vef þings­ins mið­degis í dag.

Ríkið ætlar að selja 30 pró­sent í Lands­banka á næstu tveimur árum



Ís­lenska ríkið er umsvifa­mik­ill eig­andi í bönkum lands­ins. Eftir banka­hrunið voru eignir og skuldir föllnu bank­anna færðar yfir í þá nýju með handafli rík­is­ins, þótt ríkið sjálft hafi aldrei átt þær eign­ir. Til við­bótar lagði ríkið til eig­in­fjár­fram­lag í nýju bank­ana sem tryggði því á end­anum 98 pró­sent hlut í Lands­bank­an­um, 13 pró­sent hlut í Arion banka og fimm pró­sent hlut í Íslands­banka.

Í rík­is­fjár­mála­á­ætlun fram til árs­ins 2019, sem var einnig birt í dag, er gert ráð fyrir að ríkið selji 30 pró­sent af hlut í Lands­bank­anum á árunum 2015 og 2016. Sölu­and­virðið á að nota til að borga upp skulda­bréf sem gefin voru út til að fjár­magna fallnar fjár­mála­stofn­anir árið 2008, og námu í lok síð­asta árs 213 millj­örðum króna. Þetta á að lækka vaxta­kostnað rík­is­ins um 3-4 millj­arða króna á ári næstu árin.

Auglýsing

Auk þess á íslenska ríkið hluti í nokkrum spari­sjóð­um.

Einka­væð­ing banka, taka tvö



Síð­asta rík­is­stjórn setti á fót sér­staka rík­is­stofn­un, Banka­sýslu rík­is­ins, til að halda á hlutum í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. Í nýja frum­varp­inu er lagt til að sú stofnun verði lögð niður og vald hennar fært beint undir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Til­gang­ur­inn er aug­ljós­lega sá að hefja und­ir­bún­ing að sölu og sölu­með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. Nýtt einka­væð­ing­ar­ferli er i bígerð. Síð­ast þegar ríkið réðst í slíka einka­væð­ing­ar­að­gerð, á árunum 2002 og 2003, gekk það ekki betur en svo að bank­arnir sem það seldi uxu á örfáum árum upp í að verða marg­falt stærri en þjóð­ar­fram­leiðsla Íslend­inga og hrundu svo eins og spila­borg haustið 2008. Sú einka­væð­ing hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir spill­ingu, ógegn­sæi og ófag­leg­heit, enda reynsla þeirra sem fengu að kaupa bank­ana af fjár­mála­starf­semi lítil sem eng­in.

Ráð­herra tekur einn ákvörðun um sölu



Sam­kvæmt nýja frum­varp­inu hefur Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, heim­ild til að selja eign­ar­hluti rík­is­ins í Arion banka, Íslands­banka, spari­sjóðum og 30 pró­sent hlut í Lands­bank­an­um. Hann getur að eigin frum­kvæði, eða að feng­inni til­lögu ráð­gjafa­nefndar sem hann einn skipar, hafið nýtt banka­einka­væð­ing­ar­ferli. Þegar slíkt ákvörðun liggur fyrir skal lögð áhersla á „opið sölu­ferli, gagn­sæi, hlut­lægni og hag­kvæmni. Með hag­kvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða mark­aðs­verðs fyrir eign­ar­hluti. Þess skal gætt að skil­yrði þau sem til­boðs­gjöfum eru sett séu sann­gjörn og að þeir njóti jafn­ræð­is. Við sölu skal kapp­kosta að efla virka og eðli­lega sam­keppni á fjár­mála­mark­að­i.“.

Rík­is­kaup eiga að ann­ast sölu­með­ferð­ina og skila ráð­herr­anum rök­studdu mati á því hvaða til­boð sé best. Ráð­herra tekur hins vegar einn ákvörðun um hvort að taka eigi til­boði í við­kom­andi eign­ar­hlut í banka eða ekki.

Lög­in, verði þau sam­þykkt, taka gildi í byrjun næsta árs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None