Borgarstjóri segir framkvæmdir Valsmanna ekki hafa áhrif á flugvöllinn

14471454313_5d118e43e8_z.jpg
Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir að þau fram­kvæmda­leyfi sem gefin hafi verið út á Vals­reitnum svo­kall­aða, teng­ist ein­ungis veglagn­ingu og und­ir­bún­ings­fram­kvæmdum á reitum sem séu utan flug­línu og hafi því hvorki áhrif á Reykja­vík­ur­flug­völl til eða frá. Þetta segir borg­ar­stjóri í sam­tali við Kjarn­ann og vísar þar með á bug gagn­rýni inn­an­rík­is­ráð­herra á vinnu­brögð borg­ar­innar í mál­inu.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið sendi Reykja­vík­ur­borg bréf í síð­ustu viku þar sem Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra lýsti þeirri afstöðu sinni að það hafi verið „með öllu ótíma­bært að gefa út fram­kvæmda­leyfi og hefja fram­kvæmd­ir“ á svæði Vals­manna við Hlíð­ar­enda. Á­stæðan er sú að fram­kvæmd­irn­ar, sem séu und­an­fari frek­ari upp­bygg­ingar og bygg­inga­fram­kvæmda í Vatns­mýr­inni, geti ekki átt sér stað nema að skipu­lags­reglum Reykja­vík­ur­flug­vall­ar, sem heyri undir inn­an­rík­is­ráðu­neyt­ið, sé breytt.

Sakar borg­ina um að fara fram úr sér



Í bréfi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir einnig að Sam­göngu­stofa hafi til umfjöll­unar mögu­leg áhrif lokun neyð­ar­braut­ar­innar og að Rögnu­nefndin svo­kall­aða, sem kannar mögu­lega flug­vall­ar­kosti, hafi ekki lokið störf­um. „Á meðan að nið­ur­stöður nefnd­ar­innar liggja ekki fyrir og ekki hafa verið teknar ákvarð­anir á grund­velli til­lagna hennar verður flug­braut 06/24 [svokölluð neyð­ar­braut] ekki lokað eða aðrar ákvarð­anir teknar sem leiða til þess að flug­brautin verði tekin úr notk­un.

Í ljósi fram­an­greindra atrið var með öllu ótíma­bært að gefa út fram­kvæmda­leyfi og hefja fram­kvæmdir á þeim grund­velli. Ráðu­neytið skorar á Reykja­vík­ur­borg að virða gild­andi skipu­lags­reglur og þá stjórn­sýslu­með­ferð sem er í gangi fyrir Sam­göngu­stöf­u.“

Auglýsing

Seina­gangur hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu



Borg­ar­stjóri segir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans aðspurður um við­brögð hans við bréfi inn­an­rík­is­ráð­herra að bréfið verði kynnt í borg­ar­ráði í næstu viku og því svarað form­lega í kjöl­far­ið.

„Borgin fer að sjálf­sögðu að lög­um, og vinnur sam­kvæmt gild­andi skipu­lagi í þessu máli einsog öðr­um. Þarna eru jafn­framt í gildi samn­ingar sem að sjálf­sögðu ber að virða. Okkur er ljóst að dreg­ist hefur af hálfu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins að breyta skipu­lags­reglum vall­ar­ins í sam­ræmi við samn­inga og deiliskipu­lag vall­ar­ins, sem unnið var í sam­ráði við ráðu­neyt­ið. Ég reikna með að leitað verði skýr­inga í því efni og að sjálf­sögðu er þar ekki við borg­ina að sakast,“ segir Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None