Ekkert fékkst upp í 65 milljóna kröfur á gjaldþrota félag sem Illugi átti hlut í

10054123454-c2aeab2ed4-o-1.jpg
Auglýsing

Ekk­ert fékkst upp í 65 milljón króna kröfur í bú Sero ehf., félags sem Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, átti hlut í. Skiptum á búi félags­ins lauk 29. jan­úar 2013, nokkrum mán­uðum áður en að Ill­ugi varð ráð­herra í rík­is­stjórn. Sam­kvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi Sero, sem er fyrir árið 2008, tap­aði félagið rúmum hund­rað millj­ónum króna á árunum 2007 og 2008. Eigið fé Sero var nei­kvætt um 153 millj­ónir króna í lok árs 2008.

Ráð­herra segir frá gjald­þroti fyr­ir­tækis



Ill­ugi setti stöðu­upp­færslu á Face­book í dag, vegna frétta af kaupum stjórn­ar­for­manns Orku Energy á íbúð hans, þar sem Ill­ugi sagði meðal ann­ars frá því að hann og eig­in­kona hans hafi orðið fyrir nokkrum fjár­hags­legum áföllum fyrir nokkrum árum. „Hrunið lék okkur grátt eins og marga aðra af okkar kyn­slóð, gjald­þrot fyr­ir­tækis sem ég og tengda­faðir minn heit­inn áttum þýddi að á okkur féllu millj­óna ábyrgðir og tekju­missir sem ég varð fyrir þegar ég tók mér launa­laust leyfi frá þing­störfum gerði sitt. Við stóðum því frammi fyrir því að selja íbúð okkar eða eiga það á hættu að missa hana.“

Fyr­ir­tækið sem varð gjald­þrota hét Sero ehf.og var líf­tækni­fyr­ir­tæki sem stað­sett var á Skaga­strönd. Félagið ætl­aði sér meðal ann­ars að vinna prótein­vökva úr grá­sleppu sem ann­ars yrði fargað til að fram­leiða bragð­efni fyrir ýmis konar mat­væla­iðn­að. Rekst­ur­inn gekk hins vegar ekki upp og Sero  var úrskurðað gjald­þrota 8. nóv­em­ber 2012.

Skiptum í búinu lauk 29. jan­úar 2013 og voru kröfur í búið alls 65,4 millj­ónir króna. Engar eignir fund­ust í búinu og því fékkst ekk­ert upp í kröf­urn­ar. Sam­kvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi Sero, sem er fyrir árið 2008, átti Ill­ugi tólf pró­sent hlut í félag­inu. Sam­kvæmt hags­muna­skrán­ingu á vef Alþingis árið 2009 hafði sá hlutur þá minnkað niður í tíu pró­sent.

Auglýsing

Þungur rekstur



Stærstu eig­endur Sero voru Einar Oddur Krist­jáns­son heit­in, tengda­faðir Ill­uga, og Stein­dór Har­alds­son. Einar Oddur átti 27 pró­sent hlut og Stein­dór 24 pró­sent en auk þess átti Torfa­hús, félag í eigu Ein­ars Odds, 19 pró­sent. Auð­humla svf., móð­ur­fé­lag Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar, átti auk þess 17 pró­sent hlut. Teitur Björn Ein­ars­son, bróðir eig­in­konu Ill­uga og núver­andi aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, var fram­kvæmda­stjóri félags­ins.

Sam­kvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi Sero nam tap félags­ins 77,2 millj­ónum króna árið 2008 og 27,8 millj­ónum króna árið áður. Sam­tals námu skuldir Sero 187,2 millj­ónum króna í lok árs 2008 en eignir þess 34,5 millj­ónum króna. Eigið fé var því nei­kvætt um 152,7 millj­ónir króna á þeim tíma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None