Framsókn samþykkir tillögu um að banna bónusa í bankakerfinu

karlgar.jpg
Auglýsing

Flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins sam­þykkti í dag til­lögu Karls Garð­ars­son­ar, þing­manns flokks­ins, um að bónusar í banka­kerf­inu verði alfarið bann­að­ir. Karl greinir frá þessu í stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu sinni og seg­ist afskap­lega ánægður með þann mikla stuðn­ing sem til­lagan fékk. "Við eigum að vera leið­andi þjóð í þessum mál­u­m," segir Karl.

Afstaða Fram­sókn­ar­flokks er í and­stöðu við þá stefnu um bónusa í fjár­mála­kerf­inu sem mörkuð er í frum­varpi sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur lagt fram um breyt­ingar á lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki. Sam­kvæmt frum­varp­inu mega bón­us­greiðslur ekki verða hærri en 25 pró­sent af árs­launum starfs­manna í fjár­mála­geir­an­um. Sam­tök fjár­mála­fyr­ir­tækja skil­uðu nýverið umsögn um frum­varpið þar sem fram kom að slík tak­mörkun á bón­us­greiðslum væri íþyngj­andi að þeirra mati. Sam­tökin lögðu til að evr­ópskur lag­ara­mmi yrði full­nýttur og fjár­mála­fyr­ir­tækjum gert kleift að greiða starfs­mönnum sínum á bil­inu 100 til 200 pró­senta af árs­launum í kaupauka.

kalligarðars

Auglýsing

Íslands­banki og Arion banki gjald­færðu sam­tals um 835 millj­ónir króna vegna kaupauka­greiðslna til starfs­manna sinna á síð­asta ári. Um hund­rað starfs­menn fá slíkar greiðslur hjá hvorum banka fyrir sig. Arion banki gjald­færði 477 millj­ónir króna í fyrram sem var 25 millj­ónum króna meira en árið á und­an. Sam­tals hefur bank­inn því gjald­fært tæpan millj­arð króna vegna kaupa­auka­kerfis síns á síð­ustu tveimur árum. Íslands­banki gjald­færði 258 millj­ónir króna í fyrra, eða 17 millj­ónum krónum meira en árið 2013. Sam­tals nema kaupaukar til starfs­manna bank­ans því rúmum hálfum millj­arði króna á tveimur árum.

Vert er að taka fram að í sam­ræmi við regl­ur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins er greiðslu á að minnsta kosti 40 pró­sent kaupauka frestað um þrjú ár.













Lands­bank­inn, sem er að mestu í eigu rík­is­ins, er ekki með árang­urstengdar greiðsl­ur. Um 1.400 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn bank­ans fengu hins vegar 0,78 pró­sent gef­ins árið 2013 og fá greiddan arð vegna hans. Heild­ar­greiðslan verður um 200 millj­ónir króna. ­Gjörn­ing­ur­inn var liður í sam­komu­lagi frá árinu 2009, um fjár­hags­upp­gjör milli gamla og nýja Lands­bank­ans. Skatta­legt verð­mæti hluta­bréf­anna nam 4,7 millj­örðum króna.













Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None