Hanna Birna fór með ósannindi í viðtali í Íslandi í dag

Screen.Shot_.2015.04.28.at_.16.16.41.jpg
Auglýsing

Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, full­yrti í við­tali við sjón­varps­mann­inn Sindra Sindra­son í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær­kvöldi, að sími hennar og tölva hafi verið skoðuð við rann­sókn leka­máls­ins. Sú full­yrð­ing stenst hins vegar ekki skoð­un, því hið rétta er að ein­ungis símar og tölvur aðstoð­ar­manna hennar voru skoð­aðar í rann­sókn lög­reglu.

Sindri spurði hvort það hefði verið við­eig­andi fyrir ráð­herra að hafa jafn mikil sam­skipti við Stefán Eiríks­son, þáver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, og raun ber vitni.

„Eftir á að hyggja, nei. Hins vegar var þetta algjör­lega for­dæma­laust. Það hefur ekki komið upp áður að lög­regla, sem er und­ir­stofnun ráðu­neyt­is, þarf að rann­saka ráðu­neyti. Ég var til rann­sóknar og ég auð­vitað fór í yfir­heyrslur og svo fram­vegis þannig að þannig hafði ég auð­vitað ákveðnar upp­lýs­ing­ar. Ég er líka ráð­herra sem þarf að vera viss um það að aðrar upp­lýs­ingar sem ég hef, til dæmis í sím­anum mínum sem var skoð­að­ur, tölv­unni minni sem var skoð­uð, og aðgangskort­inu mínu sem var skoðað í ráðu­neyt­inu og svo fram­veg­is, ég varð að vera viss um að þær upp­lýs­ingar sem menn fengju snéru ein­ungis að þessu máli. Þannig að þegar ég tal­aði við Stefán var það alltaf um svona almenn atriði er vörð­uðu slík­a ­rann­sók,“ sagði Hanna Birna í við­tal­inu í Íslandi í dag.

Auglýsing

Hvorki sími né tölva rann­sökuð af til­lit­semi við ráð­herra



Í skrif­legu svari Helga Magn­úsar Gunn­ars­son­ar, vara­rík­is­sak­sókn­ara, við fyr­ir­spurn DV í lok nóv­em­ber, kemur fram að síma­notkun Hönnu Birnu hafi ekki ekki skoðuð við rann­sókn leka­máls­ins. Þar sem „emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara og lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vildu ekki ganga of nærri stöðu Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur, frá­far­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, við rann­sókn máls­ins [...] Þetta var gert til þess að gæta með­al­hófs,“ eins og segir í svari vara­rík­is­sak­sókn­ara. Ákvörðun um að rann­saka ekki síma Hönnu Birnu var á for­ræði lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans gilti það sama um tölvu Hönnu Birnu, það er að hún var ekki tekin til rann­sóknar í leka­mál­inu til að ganga ekki of nærri ráð­herr­an­um. Sömu heim­ildir Kjarn­ans herma að aðgangskort Hönnu Birnu hafi lík­lega verið rann­sakað hins veg­ar, eins og ann­arra í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Upp­fært klukkan 22:58

Í sam­tali við Kjarn­ann vill Hanna Birna árétta að með orð­unum „sím­anum mín­um“ í umræddu sjón­varps­við­tali hafi hún átt við borðsím­ann sinn í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, sem hafi verið skoð­aður af lög­reglu, og með orð­unum „tölv­unni minni“ hafi hún átt við að tölvu­póstur hennar á póst­þjóni ráðu­neyt­is­ins hafi ver­ið ­skoð­að­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None