Illugi seldi stjórnarformanni Orku Energy húsið sitt og leigir það

10054123454-c2aeab2ed4-o-1.jpg
Auglýsing

Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, seldi húsið sitt til stjórn­ar­for­manns Orku Energy vegna fjár­hags­erf­ið­leika skömmu eftir efna­hags­hrun­ið, og leigir það af honum núna. Í sam­tali við frétta­stofu RÚV, sem greindi fyrst frá mál­inu í hádeg­is­fréttum í dag, kveðst Ill­ugi vilja upp­lýsa um ­málið til að hafa öll mögu­leg tengsl uppi á borð­um.

Í sam­tali við RÚV segir Ill­ugi að hann hafi selt húsið sitt til að bjarga því, og full­yrðir að málið hafi ekki haft áhrif á störf sín sem mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Auglýsing


















For­svars­menn Orku Energy fóru með Ill­uga til Kína á dög­un­um, sem hefur vakið umtal ekki síst fyrir þær sakir að hann vann ráð­gjaf­ar­störf fyrir orku­fyr­ir­tækið á meðan hann tók sér frí frá þing­störfum vegna fyrri starfa hans fyrir Glitni. Ill­ugi hefur full­yrt að ferðin hafi ekki verið farin sér­stak­lega fyrir fyr­ir­tæk­ið, hann hafi heim­sótt, ásamt þremur rekt­orum og for­stjóra Rann­sókn­ar­mið­stöðvar Íslands (Rannís), háskóla og vís­inda­stofn­an­ir. Þá hafi for­svars­menn Orku Energy verið með þar í för á eigin veg­um. Ill­ugi segir að hann hafi ekki gert meira fyrir umrætt fyr­ir­tæki en fyrri ráð­herr­ar.

Hafði litlar tekjur utan þings og var í vand­ræðum



Í sam­tali við RÚV sagði Ill­ugi að hann hafi lent í fjár­hags­erf­ið­leikum eftir hrun, ábyrgðir hafi lent á honum eftir að fyr­ir­tæki tengda­föður hans varð gjald­þrota. Þá hafi hann haft litlar tekjur þegar hann var utan þings. Í frétt RÚV sagði Ill­ug­i: „Það gerði það bara að verkum að við stóðum frammi fyrir því við hjónin að við vorum að missa íbúð­ina okkar og þurftum eig­in­lega að velja á milli þess að missa hana eða selja, og þetta er staða sem þús­undir og aftur þús­undir Íslend­inga hafa staðið frammi fyrir á und­an­förnum árum. Það sem ég gerði var að ég seldi íbúð­ina mína, það er þing­lýstur samn­ing­ur.“

Ill­ugi ákvað að upp­lýsa um tengsl sín við umrætt fyr­ir­tæki að eigin frum­kvæði.











Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None