Jón Ásgeir segir Kolbein Proppé falla í „djúpan pytt yfirborðsblaðamennsku“

jon-asgeir-3.jpg
Auglýsing

Jón Ásgeir Jóhann­es­son, sak­born­ingur í Aur­um-­mál­inu og eig­in­maður stærsta eig­anda 365-miðla, sakar Kol­bein Ótt­ars­son Proppé, blaða­mann Frétta­blaðs­ins, um að falla í "djúpan pytt yfir­borðs­blaða­mennsku" í grein sem hann birtir á Vísi.is í dag. Bæði Frétta­blaðið og Vís­ir.is eru í eigu 365-miðla. Í yfir­borðs­blaða­mennsku felst að "blaða­menn ­skrifa fréttir án þess að reyna að gægj­ast undir yfir­borðið til að koma auga á kjarna máls­ins. Oft felur þetta í sér að blaða­menn taka gagn­rýn­is­laust við texta frá þriðja aðila og birta. Ein­hverjir hafa kallað slíka blaða­mennsku „krana­blaða­mennsku," segir Jón Ásgeir.

Grein Jóns Ásgeirs er skrifuð í kjöl­far þess að Kol­beinn gagn­rýndi hann fyrir grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu á mánu­dag þar sem hann sagði ákæru­valdið ætla að "koma mér í fang­elsi hvað sem það kostar“. Þar stóð að á­kæru­valdið hefði eytt millj­örðum króna af fé íslenskra skatt­greið­enda síð­ustu 13 ár til að reyna að reyna að finna ein­hvern glæp svo hægt sé að taka hann úr umferð. Í grein­inni á mánu­dag sagði Jón Ásgeir sér­stakan sak­sókn­ara vera óheið­ar­legan emb­ætt­is­mann sem hefði fengið að ljúga með blessun Hæsta­rétt­ar. Vís­aði hann þar til þess að Ólafur Þór Hauks­son, sér­stakur sak­sókn­ari, sagð­ist ekki hafa vitað að Sverris Ólafs­son, einn með­dóm­ara í Aur­um-­mál­inu, sé bróðir Ólafs Ólafs­son­ar, sem var dæmdur til þungrar refs­ingar í Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða.

Hæsti­réttur ómerkti dóm­inn í Al Than­i-­mál­inu á grund­velli ummæla sem Sverrir lét falla í fjöl­miðlum í kjöl­far dóms­ins. Í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar segir að hann telji „óhjá­kvæmi­legt að virtum atvikum máls­ins að líta svo á að ummæli með­dóms­manns­ins gæfu til­efni til að draga með réttu í efa að hann hefði verið óhlut­drægur í garð ákæru­valds­ins fyrir upp­kvaðn­ingu hér­aðs­dóms­ins.“

Auglýsing

365 miðlar á bæði Vísi.is og Fréttablaðið. 365 miðlar á bæði Vísi.is og Frétta­blað­ið.

Ef það gengur og hljómar eins og önd



Kol­beinn setti gagn­rýni sína fram í dálk­inum "Frá degi til dags" í Frétta­blað­inu í gær. Þar sagði Kol­beinn Jón Ásgeir hafa málað upp mynd af nið­ur­stöðu Hæsta­réttar í sínum eigin lit­um. Og að sú mynd væri röng. „Á grein Jóns Ásgeirs er hins veg­ar ekki annað að skilja en að dóms­­kerfið í heild sinni starfi í og með til að koma hon­um í fang­elsi. Ensk­ur máls­hátt­ur seg­ir eitt­hvað á þá leið að ef það geng­ur eins og önd og hljóm­­ar eins og önd þá sé lík­­­leg­­ast um önd að ræða. Þann ágæta máls­hátt má heim­­færa á væn­i­­sýki[...]Ef Jón Ásgeir vill kenna ein­hverj­um um að Hæstirétt­ur vís­aði mál­inu heim í hérað er Sverr­ir Ólafs­­son nær­tæk­­asti kost­­ur­inn. Um­­mæl­in sem Hæstirétt­ur bygg­ir nið­ur­­­stöðu sína á lét hann falla í við­tali við RÚV og þar sak­aði hann sér­­stak­an sak­­sókn­­ara um „ör­vænt­ing­­ar­­full­ar og jafn­­vel óheiðarleg­ar aðgerð­ir“ og ým­is­­legt fleira. Sag­an á mög­u­­lega eft­ir að dæma það sem eitt af verstu við­töl­un­um, að minnsta kosti hafði það tölu­verðan kostnað í för með sér þar sem nú hefst mála­­rekst­ur á ný," sagði Kol­beinn.

Segir blaða­mann Frétta­blaðs­ins stunda "krana­blaða­mennsku"



Jón Ásgeir bregst við þessum skrifum í dag með því að birta grein á Vísi.­is. Grein­in, sem ber fyr­ir­sögn­ina "Lygi sak­sókn­ara er kjarni máls­ins" er svohljóð­andi:

"Yf­ir­borðs­blaða­mennska er stundum of ráð­andi hér á Íslandi. Yfir­borðs­blaða­mennska felst gjarnan í því að blaða­menn skrifa fréttir án þess að reyna að gægj­ast undir yfir­borðið til að koma auga á kjarna máls­ins.

Kolbeinn Óttarsson Proppé, blaðamaður Fréttablaðsins. Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé, blaða­maður Frétta­blaðs­ins.

Oft felur þetta í sér að blaða­menn taka gagn­rýn­is­laust við texta frá þriðja aðila og birta. Ein­hverjir hafa kallað slíka blaða­mennsku „krana­blaða­mennsku“.

Kol­beinn Ótt­ars­son Proppe, blaða­maður Frétta­blaðs­ins og stak­steina­höf­undur Morg­un­blaðs­ins féllu í djúpan pytt yfir­borðs­blaða­mennsku í gær, þegar þeir fjöll­uðu um grein mína, sem birt­ist í Frétta­blað­inu sl. mánu­dag. Það er raunar ekki nýlunda að stak­steina­skrif risti grunnt.

Kjarni máls­ins í grein minni er þessi:

• Sér­stakur sak­sókn­ari laug upp á einn virtasta hér­aðs­dóm­ara lands­ins.

• Sú saga sér­staks sak­sókn­ara að honum hafi ekki verið kunn­ugt um tengsl með­dóm­ara við Ólaf Ólafs­son stenst engan veg­inn.

• Við lygar sér­staks sak­sókn­ara, eftir að málið var flutt og dæmt, reidd­ist umræddur með­dóm­ari þar sem ósönn ummæli sér­staks vógu gegn æru hans.

• Umræddur með­dóm­ari lýsti áliti sínu á fram­ferði sak­sókn­ar­ans eftir að málið hafði verið dæmt.

• Það er ekki sann­gjarnt gagn­vart þeim aðilum sem sýkn­aðir hafa verið að láta þá ganga í gegnum nýja máls­með­ferð.

Hæsti­réttur vís­aði til ummæla með­dóm­ar­ans eftir að lygar sér­staks sak­sókn­ara birt­ust opin­ber­lega og taldi þau ummæli valda van­hæfi dóm­ar­ans. Þetta er frá­leit rök­semda­færsla hjá Hæsta­rétti þar sem ummæli dóm­ar­ans eiga rætur sínar að rekja til lyga sak­sókn­ar­ans eftir að dómur féll um að honum hafi verið ókunn­ugt um teng­ingar dóm­ar­ans. Þannig eru lygar sak­sókn­ara kjarni þessa máls.

Það er svo með full­komnum ólík­indum að Hæsti­réttur skuli meta dóm­ara van­hæfan vegna ummæla sem hann lætur frá sér eftir að dómur fellur vegna atvika sem áttu sér stað eftir að dómur féll. Þessi sami Hæsti­réttur sá ekk­ert van­hæfi hjá með­dóm­ara, sem varð fyrir alvar­legum fjár­hags­legum skakka­föllum í við­skiptum við Kaup­þing og dæmdi svo helstu stjórn­endur Kaup­þings í margra ára fang­elsi.

Þess vegna vís­aði yfir­skrift greinar minnar til þess að sér­stakur sak­sókn­ari hefði logið með blessun Hæsta­rétt­ar.

Það má svo spyrja þeirrar spurn­ingar hvort þum­al­putta­reglan hjá Hæsta­rétti sé sú að hér­aðs­dóm­arar séu van­hæfir ef þeir sýkna en hæfir ef þeir sak­fella?"

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None