Seðlabankastjóri veit hvað stöðugleikaskattur er og líkir honum við mengunarskatt

marpng-1.jpg
Auglýsing

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri seg­ist vita hvað stöð­ug­leika­skattur sé og líkir skatt­in­um, þegar að honum komi, við meng­un­ar­skatt. Krónu­stöður í eigu erlendra aðila sem séu fastar á efna­hags­reikn­ingi þjóð­ar­bús­ins megi líkja við mengun sem hafi áhrif á þriðja aðila án þess að hann hafi nokkuð til saka unn­ið. Því sé rétt­læt­an­legt að beita skatt­lagn­ingu til að verja þann þriðja aðila. Þetta kom fram í máli Más á opnum fundi í efna­hags- og við­skipta­nefnd sem fram fór í morg­un. Már var gestur fund­ar­ins ásamt öðrum full­trúum úr pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands.

Hægt er að horfa á fund­inn hér:

Sigmundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti það í yfir­lits­ræðu sinni á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins á föstu­dag að hrint yrði í fram­kvæmd áætlum um losun hafta áður en yfir­stand­andi þing lýkur störf­um. Sam­kvæmt áætl­un­inni muni sér­stakur stöð­ug­leika­skattur skila hund­ruðum millj­arða króna sam­hliða þeim aðgerð­um. Fyrir föstu­dag­inn 10. apríl hafði hug­takið stöð­ug­leika­skattur aldrei verið nefnt í íslenskum fjöl­miðlum eða opin­berum gögn­um.

Auglýsing

"Þá mætti líta á stöð­ug­leika­skatt, þegar hann kemur til­"...



Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, spurði Má hvort hann vissi hvað stöð­ug­leika­skattur væri og hvort hann væri fýsi­legur kostur við losun hafta.

Már svar­aði: „Já við vitum það. Það er ekki mitt á þessum punkti að útskýra það í ein­hverjum smá­at­rið­um, en það hefur alla tíð legið fyrir að sá mögu­leiki er fyrir hendi að beita skatta­tæk­inu til þess að eiga við hluta af þessu vanda­máli[­vegna eigna slita­búa föllnu bank­anna]. Það má eig­in­lega líkja, að ein­hverju leyti þessum krónu­stöðum sem eru hér fastar, þetta er eins og mengun í okkar efna­hags­reikn­ingi, efna­hags­reikn­ingi þjóð­ar­bús­ins. Þá mætti líta á stöð­ug­leika­skatt, þegar hann kemur til, sem ein­hvers­konar meng­un­ar­skatt.“

Már útskýrði þessi orð sín síðan þannig að mengun fylgdi svokölluð úthrif. Ef krónu­eignum kröfu­hafa föllnu bank­anna yrði sleppt lausum og þær myndu ryðj­ast í gegnum íslenskan gjald­eyr­is­markað þá yrðu feyki­leg áhrif á aðila sem hefðu ekk­ert með málið að ger­a.  „Það er alltaf rétt­læt­ing inn­gripa að hálfu ríkis í ein­hverju formi[..]það er það sem er til skoð­un­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None