Síminn og Skjárinn sameinast, framkvæmdastjóri Skjásins hættir

siminn.jpg
Auglýsing

Skjár­inn, sem rekur meðal ann­ars Skjá­einn, Skjá­bíó, Skjákrakka, Skjá­heim, Skjá­sport og Útvarps­stöð­ina K100,5, hefur verið sam­ein­aður Sím­an­um. Þetta ger­ist í kjöl­far sáttar við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um að aflétta kvöðum á sam­starfi félag­anna frá árinu 2005. Með sátt­inni er ákveðið að rekstur inn­lendrar línu­legrar sjón­varps­dag­skrár skuli vera efna­hags­lega og bók­halds­lega aðskil­inn frá öðrum rekstri Sím­ans. Eft­ir­lits­nefnd um jafnan aðgang fjar­skipta­fyr­ir­tækja, EJAF, er ætlað að hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd sátt­ar­inn­ar.

Sím­inn er því far­inn að bjóða upp á sjón­varps­efni undir eigin hatti. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands í dag. Skjár­inn var áður dótt­ur­fé­lag Sím­ans.

Þar segir að Sím­inn muni eftir sam­ein­ing­una bjóða upp á fjór­þætta þjón­ustu: tal­síma, far­síma, net­þjón­ustu og sjón­varps­efni. Þannig þjón­ust­fram­boð sé í sam­ræmi við þróun sem eigi sér stað erlendis "þar sem afþrey­ing og sjón­varps­efni tengj­ast fjar­skipta­þjón­ustu sífellt sterk­ari bönd­um".

Auglýsing

Sam­hliða um starf­semi Skjás­ins flytja að mestu í hús­næði Sím­ans í Ármúla. Frið­rik Frið­riks­son, fram­kvæmda­stjóri Skjás­ins, mun vinna að sam­ein­ing­unni en láta síðan af störf­um. Engin sér­stök yfir­stjórn verður yfir sjón­varps­starf­semi Sím­ans.

Orri Hauks­son, for­stjóri Sím­ans, segir þetta mjög spenn­andi breyt­ingu. "Breytt skipu­lag gerir við­skipta­vinum okkar kleift að nálg­ast alla þjón­ustu á einum stað.  Sam­ein­ingin kemur í kjöl­far mik­illa breyt­inga á fjöl­miðla- og fjar­skipta­mark­aði á und­an­förnum árum. Við höfum viljað breyta þeim kvöðum sem voru settar á sínum tíma og end­ur­spegl­uðu stöðu sem er ekki til staðar lengur á mark­aðn­um. Það er ljóst að þessu skrefi mun fylgja  tölu­verð rekstr­ar­hag­ræð­ing þar sem við rekum í ein­hverjum til­vikum svip­aðar ein­ingar á tveimur stöð­um. Í kjöl­far sam­ein­ingar mun ekki verða sér­stök yfir­stjórn yfir þeim þjón­ustu­þáttum sem fær­ast til Sím­ans. Ég vil þakka Frið­rik kær­lega fyrir vel unnin störf á und­an­förnum árum og óska honum vel­farn­að­ar."

Frið­rik segir þetta skyn­sam­legt skref. "Fram að þessu var sam­ein­ing ekki mögu­leg og okkur er flestum ljóst að núver­andi fyr­ir­komu­lag aftr­aði fram­þróun beggja fyr­ir­tækja Sím­ans og Skjás­ins við að bæta þjón­ustu­fram­boð sitt.  Skjár­inn hefur aldrei staðið betur en einmitt nú og ég er stoltur af þeim árangri sem náðst hefur með félagið á und­an­förnum árum og er viss um að þessi eðli­lega breyt­ing sé til far­sældar bæði fyrir við­skipta­vini Skjás­ins og starfs­fólk félags­ins.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None