Þingmenn fengu meira en milljón í vasann fyrir að aka sínum eigin bílum

14097534298_f246440b68_z.jpg
Auglýsing

Alþingi greiddi 28 þing­mönnum sam­tals 51,5 millj­ónir króna í svo­kallað akst­urs­gjald, eða vegna akst­urs eig­in bif­reiða, á síð­asta ári. Þar af voru 18 þing­menn sem fengu greitt meira en eina milljón króna, en greiðsl­urnar eru und­an­þegnar skatti. Þetta kemur fram í skrif­legu svari skrif­stofu Alþingis við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Akst­urs­gjald er greitt sam­kvæmt akst­urs­dag­bók þar sem þing­menn halda utan um allan akstur á sínum eigin bif­reið­u­m. ­Ferða­kostn­að­ar­nefnd, sem heyrir undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ið, ákveður akst­urs­gjald í akst­urs­samn­ingum rík­is­starfs­manna og rík­is­stofn­ana. Gjaldið skipt­ist í almennt gjald, sér­stakt gjald og svo­kallað tor­færu­gjald. Almenna gjaldið á við akstur á mal­bik­uðum vegum inn­an­bæjar og utan, sér­staka gjaldið á við akstur á mal­ar­vegum utan­bæjar og tor­færu­gjaldið mið­ast við akstur við sér­stak­lega erf­iðar aðstæð­ur, gjarnan utan vega og ein­ungis jeppa­fært.

90.000 krónur fyrir akstur til Akur­eyrar og til baka



Sam­kvæmt almenna gjald­in­u eru greiddar 116 krónur fyrir hvern ekinn kíló­metra upp að tíu þús­und kíló­metrum, 104 krónur eftir það og upp að 20.000 kíló­metrum og 93 krónur fyrir hvern kíló­metra umfram þá vega­lengd. Við útreikn­ing á sér­stöku gjaldi bæt­ist við 15 pró­senta álag ofan á almenna gjald­ið, og við útreikn­ing á tor­færu­gjaldi skal bæta 45 pró­senta álagi á almenna gjald­ið.

Miðað við ofan­grein­t ­kostar því ferð þing­manns á eigin bíl til Akur­eyrar og til bak­a ­rúmar 90.000 krónur sem greið­ast úr rík­is­sjóði. Sé vinnu­ferð­inni heitið til Egils­staða og til baka, hljóðar kostn­aður rík­is­sjóðs upp á rúmar 151.000 krón­ur. Þá kostar önnur leiðin til Sel­foss rík­is­sjóð rúmar sex þús­und krón­ur, og öku­ferð úr höf­uð­borg­inni til Sauð­ár­króks kostar rúmar 37 þús­und krón­ur.

Auglýsing

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum af vef efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins hefur ferða­kostn­að­ar­nefnd til þessa stuðst við ákveð­inn grunn við útreikn­ing akst­urs­gjalds. Á grund­velli hans var reikn­aður út rekstr­ar­kostn­aður bif­reiðar á heilu ári miðað við 15 þús­und kíló­metra akstur og síðan með­al­kostn­aður á hvern kíló­metra sem gjaldið tók svo mið af. Grunnur akst­urs­gjalds­ins skipt­ist í fastan kostnað og breyti­legan kostn­að. Í föstum kostn­aði voru afskrift­ir, skoð­un­ar­gjald, bif­reiða­gjald, ábyrgð­ar­trygg­ing og húf­trygg­ing, en í breyti­legum kostn­aði bens­ín, smurn­ing, olía, hjól­barð­ar, vara­hlutir og við­gerð­ir.

Gengur brösu­lega að fá þing­menn til að nota bíla­leigu­bíla



Rík­is­sjóður greiddi röskar 62 millj­ónir króna vegna afnota af bif­reiðum starfs­manna Alþingis árið 2013, sam­kvæmt rík­is­reikn­ingi. Árið 2012 hljóð­aði kostn­aður rík­is­sjóðs vegna þessa rúmum 54 millj­ónum króna. ­Lækk­un­ina á milli ára má skýra með ákvörðun skrif­stofu Alþingis um að greiða ein­ungis sem sam­svarar flug­far­gjaldi, ef för þing­manns var heitið þangað sem hægt var að fljúga með áætl­un­ar­flugi. Fram að því var það þing­manns­ins að ákveða hvort hann ferð­að­ist með flugi á kostnað Alþingis eða not­að­ist við einka­bíl­inn á löngum ferða­lög­um.

Skrif­stofa Alþingis hefur gripið til aðgerða til að ná þessum kostn­aði niður enn frekar, og hefur beint því til þing­manna að þeir not­ist frekar við bíla­leigu­bíla í störfum sínum heldur en sína einka­bíla. Heim­ildir Kjarn­ans herma að brösu­lega hafi gengið að fá þing­menn til að bregð­ast við til­mæl­un­um, enda um tölu­verða kjara­bót að ræða fyrir þing­menn að not­ast við sinn einka­bíl í erindum fyrir Alþingi.

Skrif­stofa Alþingis hefur gert samn­inga við bíla­leigu­fyr­ir­tæki sem eru að finna í ramma­samn­ingi Rík­is­kaupa, um afslætti af gjald­skrá bíla­leigu­bíla. Í áður­nefndu svari skrif­stofu Alþingis við fyr­ir­spurn Kjarn­ans seg­ir: „Samn­ing­arnir munu fyrst og fremst gagn­ast varð­andi akstur þing­manna sem stunda heim­an­akst­ur, það er búa ekki fjarri höf­uð­borg­ar­svæði en aka til Reykja­víkur dag­lega. Það á þó einnig við um akstur ann­arra þing­manna í lengri ferðum í eigin kjör­dæmi.“

Skrif­stofa Alþingis áætlar að hægt verði að lækka kostnað við akstur um allt að tólf millj­ónir króna á ári, með því að fá þing­menn til að not­ast meira við bíla­leigu­bíla. „Nú þegar á þessi fram­kvæmd við um nokkra þing­menn sem sýnir að þessi áætlun getur vel stað­ist. Stefnt er að setja þetta fyr­ir­komu­lag að fullu í fram­kvæmd á næst­unn­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None